Fréttablaðið - 24.08.2006, Síða 16
16 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
KLÁMSTJÖRNUGANGA Tuttugu og fimm
klámmyndastjörnur beruðu á sér efri
helming líkamans í göngu um Auckland
á Nýja-Sjálandi í gær í þeim tilgangi að
auglýsa erótíska sýningu í borginni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÓLASTARF „Við byrjuðum á heim-
sóknum til nemenda í fyrra, á
fyrsta starfsári skólans, og þær
hafa mælst vel fyrir,“ segir Sif
Vígþórsdóttir, skólastjóri Norð-
lingaskóla, um heimsóknir til
nemenda í upphafi skólaárs.
Sif segir að tveir starfsmenn
skólans fari heim til hvers nem-
anda og að allir starfsmenn skól-
ans séu þátttakendur í þessu
verkefni. Í heimsóknunum er
farið yfir áherslur vetrarins og
spjallað við börnin á léttum nótum
og segir Sif þetta mikilvægan lið í
að viðhalda góðum samskiptum á
milli heimilis og skóla.
Norðlingaskóli er fámennasti
skólinn í Reykjavík, með rúmlega
hundrað nemendur, en búast má
við að þeir verði 130 í lok vetrar.
Hugmyndina að því að heimsækja
nemendur fékk Sif í Hallorms-
staðaskóla þar sem hún var skóla-
stjóri en þar hefur þessi háttur
verið hafður á í yfir tuttugu ár.
Heimsóknir nemenda eru ekki
eina nýjungin í skólastarfi Norð-
lingaskóla en þar eru allar
kennslustofur opnar og kennslu-
stundir mislangar en ekki fjöru-
tíu mínútur eins og venjan er.
„Hvert barn fer á sínum hraða í
gegnum námið og áhersla er lögð
á að þau einbeiti sér að því sem
þau hafa áhuga á.
Þrjá daga yfir veturinn eru
svokallaðir foreldraskóladagar
en þessa daga setjast foreldar á
skólabekk og nemendurnir kenna
þeim það sem þeir eru að læra.“
Sif segir mikla áherslu vera lagða
á óformleg samskipti í skólastarf-
inu og foreldrar koma gjarnan að
morgni dags í skólann til að
spjalla við kennarana.
Við skólasetningu Norðlinga-
skóla í gær sveif andi hins óhefð-
bundna skólastarfs yfir vötnun-
um en í tilefni setningarinnar
voru grillaðar pylsur við skólann.
Júlíus Vífill Ingvarsson, nýr for-
maður menntaráðs, var viðstadd-
ur setninguna. Ein af þeim nýj-
ungum sem Norðlingaskóli hyggst
bjóða upp á er útikennslustofa
neðar í hverfinu en mastersnem-
ar í útikennslu munu koma frá
Bergen og aðstoða við hönnun á
svæðinu.
Sif segir að í skólastarfinu sé
lögð áhersla á tengsl við náttúr-
una og að fyrstu tvær vikur skóla-
starfsins muni fara fram meira
og minna undir berum himni. Sif
segir allar þessar nýjungar hafa
mælst vel fyrir og að nemendur,
foreldrar og kennarar séu ánægð-
ir með starfshætti skólans.
hugrun@frettabladid.is
Skólastofurnar eru opnar og
kennslustundir mislangar
Allir nemendur Norðlingaskóla fá heimsókn frá starfsfólki skólans í upphafi skólaárs. Þetta fyrirkomulag
hefur mælst vel fyrir en skólinn býður upp á ýmiskonar nýbreytni í skólastarfi, til að mynda útikennslustofu.
SIF VÍGÞÓRSDÓTTIR SKÓLASTJÓRI Ásamt nokkrum nemendum Norðlingaskóla
SKÓLASTARF Í NORÐLINGASKÓLA
Í skólanum eru allar skólastofur opnar og
kennslustundir mislangar.
BYGGINGAR Umhverfisráðuneytinu
hefur borist umsögn frá Neytenda-
samtökunum þar sem samtökin
hafna fyrirhugaðri gjaldtöku á
byggingavörum, til að fjármagna
að hluta til starfsemi Byggingar-
stofnunar.
Neytendasamtökin benda á að
slík gjaldtaka muni leiða til hækk-
unar á verði byggingavara og neyt-
endur þurfi þar með að bera lung-
ann af kostnaði við rekstur
Byggingarstofnunar.
Samtökin telja eðlilegra að þeir
sem nýta sér þjónustu stofnunarinn-
ar greiði sjálfir fyrir hana. Að öðru
leyti verði kostnaður við Byggingar-
stofnun greiddur af ríkissjóði. - æþe
Neytendasamtökin:
Ekki gjald á
byggingavörur
BYGGINGAR Samtök verslunar og
þjónustu (SVÞ) áætla að um 200
milljónir króna leggist á kaupendur
almennrar byggingavöru vegna
breytinga sem eru boðaðar í frum-
varpi Jónínu Bjartmarz umhverfis-
ráðherra um stofnun svonefndrar
Byggingarstofnunar. Um er að
ræða nýtt eftirlit með þessum vöru-
flokki og áætla SVÞ að leggja þurfi
0,3 til 0,4 prósenta gjald á almennar
byggingavörur til að fjármagna eft-
irlitið. Samtökin vara við frekari
álögum og segja að þær muni leiða
til hærri byggingakostnaðar.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri SVÞ, segir fundi með starfs-
mönnum ráðuneytisins um frum-
varpið hafa leitt í ljós marga lausa
enda. „Við erum mjög ósáttir við
allt að 200 milljóna króna aukagjald
á byggingavörur án þess að lækkað
verði vörugjald sem við höfum
gagnrýnt lengi. Þetta er skattur og
af hverju er hann ekki tekinn af
fjárlögum eins og aðrir skattar,“
spyr Sigurður en bætir því jafn-
framt við að margt sé til bóta í nýju
frumvarpi; ekki síst sameining eft-
irlitsstofnana á einn stað.
Byggingarstofnun er ætlað að
taka yfir verkefni sem nú eru í
höndum Skipulagsstofnunar, Bruna-
málastofnunar, Neytendastofu og
Vinnueftirlits ríkisins en fjárfram-
lög ríkisins til þessara stofnana
fylgja þeim til Byggingarstofnunar
ef af verður. - shá
Samtök verslunar og þjónustu gagnrýnir frumvarp um Byggingarstofnun:
Mótmæla nýrri skattheimtu
FRÁ BYGGINGARSTAÐ Samtök verslunar og
þjónustu vilja meina að ný skattheimta á
byggingavörur muni fylgja nýrri stofnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTAMÁL Nemendum við
Grunnskóla Bolungarvíkur fækk-
ar á milli ára, úr 151 í 134 í haust.
Soffía Vagnsdóttir skólastjóri
segir aðeins fjögur sex ára börn
koma í skólann í haust og því verði
nemendum í fyrsta og öðrum bekk
kennt saman. Nemendum fjórða
og fimmta bekkjar verður einnig
kennt saman og fækkar bekkjar-
deildum við skólann úr ellefu í
átta.
Soffía segir að enn verði bið á
að uppskera ástarvikunnar skili
sér inn í skólakerfið en aðeins eitt
barn fæddist í kjölfar tveggja síð-
ustu ástarvikna.
Flestir voru nemendur Grunn-
skóla Bolungarvíkur um 250 fyrir
26 árum. - hs
Færri nemar á Bolungarvík:
Slök uppskera
ástarviku
SKOTLAND Alex Salmond, leiðtogi
Skoska þjóðarflokksins, SNP, vill
að Skotland verði sjálfstætt ríki
sem yrði hlekkur í „velmegunar-
boga“ með Norðurlöndunum, frá
Íslandi til Finnlands. Frá þessu er
greint í blaðinu Scotland on Sun-
day.
Salmond stefnir að því að ná
kjöri til forsætisráðherra skoska
heimastjórnarþingsins, en kosn-
ingar fara fram til þess á næsta
ári. Komist hann í aðstöðu til þess
vill Salmond fá valinn hóp sér-
fræðiráðgjafa í efnahagsmálum
til að leiðbeina sér hvernig best sé
að haga málum til að markmiðum
SNP verði náð: að árlegur hag-
vöxtur verði um 4 prósent, íbúum
Skotlands fjölgi um 3 prósent á
næstu tíu árum, og að skoskt efna-
hagslíf verði í hópi þeirra fimmt-
án samkeppnishæfustu í heimi
innan fimmtán ára.
Talsmenn SNP segja að sjálf-
stætt Skotland, með full yfirráð
yfir olíulindunum í lögsögu þess,
myndi strax og sjálfstæðið tæki
gildi verða ríkasti hluti Bretlands-
eyja og stökkva upp í áttunda sæti
yfir Evrópuþjóðir með hæstu með-
altekjur á mann, úr átjánda sæti.
Ísland er í því fimmta. - aa
ALEX SALMOND Leiðtogi Skoska þjóð-
arflokksins, SNP, stefnir að sjálfstæðu
Skotlandi. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Sjálfstæðissinnar í Skotlandi:
Vilja í velmegunarlið
með Norðurlöndum
ORKUVEITA Borgarfulltrúar vinstri
grænna gagnrýna ákvörðun
stjórnenda Orkuveitu Reykjavík-
ur um að starfsmaður ætti ekki að
tjá sig um málefni Kárahnjúka-
virkjunar.
Fulltrúarnir Svandís Svavars-
dóttir og Árni Þór Sigurðsson hafa
sent Guðlaugi Þór Þórðarsyni,
stjórnarformanni Orkuveitu
Reykjavíkur, bréf vegna málsins.
Þar er farið fram á að Guðlaugur
beiti sér fyrir því að starfsmenn
Orkuveitunnar fái notið sjálf-
sagðra og stjórnarskrárbundinna
lýðréttinda. Einnig skuli hann
aflétta fyrirmælum um að þeir
megi ekki tjá sig um brýn þjóðfé-
lagsmál. - sþs
Vinstri grænir senda OR bréf:
Starfsmenn
megi tjá sig