Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 26
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR26
70
0
kr
.
80
0
kr
.
80
0
kr
.
200420031997
55
3
kr
.
2000
hagur heimilanna
Bryndís segir óbrigðult
ráð að setja dagblað á
hringinn á borðinu og
strauja síðan yfir það með
heitu straujárni. „Þetta ráð
dugar bæði á hringi sem koma vegna
heitra og blautra glasa svo fremi sem
hringirnir eru nýlegir. Sama ráð má einn-
ig nota til að ná vaxblettum úr dúkum.“
Bryndís segist nota húsráð þegar
hún komsist á snoðir um þau og þessa
dagana er hún að fikra sig áfram með að
nota rabarbara í eftirrétti og bökur. „Ég
brytja rabarbarann niður og frysti hann
og þannig er hann handhægur í næstur
uppskrift.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
HRINGINA AF BORÐINU
■ Bryndís Hlöðversdóttir, deildarfor-
seti lagadeildar Háskólans á Bifröst,
kann gott ráð til að ná glasa-
hringjum af viðarborði.
„Þetta kemur vel á vondan, ég held að ég sé einn
sá allra harðasti neytandi sem fyrirfinnst,“ segir
Gunnar Hansson leikari þegar hann er spurður
um hans bestu og verstu kaup á ævinni. „Flestum
mínum kaupum fylgir yfirleitt einhvers konar
samviskubit. Fram að því að ég kaupi eitthvað eru
það bestu kaup lífs míns en svo sé ég eftir því. Ég
keypti til dæmis um daginn galdrakúst í gegnum
sjónvarpsmarkað um daginn sem ég var mjög
spenntur fyrir. Svo kom á daginn að hann var ekki
alveg jafn góður og var sagt í auglýsingunni,“ segir
hann. „Þetta var eins og svo mörg kaup hjá mér,
súrsæt tilfinning. Ég ætla ekki að afskrifa hann
algjörlega en þetta gætu verið ein verstu kaup sem
ég hef gert. Ég sem var að vonast til að fá góða
græju til að þrífa.“
Hann nefnir líka tölvur sem bæði bestu og verstu
kaup sem hægt er að gera. „Það er ótrúlega gaman
að leika sér í tölvum en það heldur ekkert jafn illa
verði. Þetta er held ég eina varan þar sem það er
samþykkt að eftir ár er hún komin niður í þrjátíu
prósent af upphaflegu verði.“
Hann segir sín bestu kaup hafa verið golfkylfusett.
„Þetta var Ping-golfsett sem ég keypti þegar ég
var fjórtán ára og notaði þangað til ég var þrjátíu
og eins árs. Þá seldi ég það á mjög góðu verði
til félaga míns sem notar þær
enn þann dag í dag. Ég fékk
mér síðan annað golfsett
sem ætti að endast mér út
ævina. Annars kemur fíkn
mín best fram í vörukaup-
um. Ég missi mig í að
kaupa eitthvað og fæ svo
samviskubit. Oft breytast
bestu kaupin í þau
verstu eftir að
ég er búinn
að borga
vöruna.“
NEYTANDINN: GUNNAR HANSSON LEIKARI
Einn harðasti neytandi sem fyrirfinnst
Sjónvarpsáhorf, ein helsta
tómstundaiðja landsmanna,
getur verið jafn dýrt og
það er skemmtilegt. Frétta-
blaðið kannaði hvað það
kostar að horfa á sjónvarp á
Íslandi í dag.
Eina rás þurfa allir sjónvarps-
eigendur að borga fyrir, en það
er sjálft Ríkissjónvarpið. Þar er
afnotagjald 2.705 krónur á mánuði
fyrir útvarps- og sjónvarpsnotkun.
Ekki er um neina aðra pakka að
ræða hjá Ríkissjónvarpinu, enda
aðeins ein sjónvarpsrás í boði.
Undir merkjum Skjásins eru
sjónvarpsstöðvarnar Skjár Einn
og Skjár Sport, sem sýnir enska
boltann. Skjárinn býður líka upp á
gagnvirkt sjónvarp þar sem áhorf-
endur geta pantað sér bíómynd-
ir og horft á þegar þeim hentar.
Jafnframt er hægt að horfa á
fjölda erlendra sjónvarpsstöðva í
gegnum Skjáinn.
Ekki þarf að greiða fyrir áskrift
að Skjá Einum en bíómynd kost-
ar 250-450 krónur eftir því hvort
hún er ný eða gömul. Hægt er að
horfa á hana í einn sólarhring frá
því borgað er fyrir hana. Mánað-
aráskrift að Skjá Sporti kostar
2.495 krónur en 1.990 krónur bindi
viðskiptavinur sig í tólf mán-
uði. Hægt er að blanda erlendu
sjónvarpsrásunum saman í ótal
áskriftarleiðir en vilji maður ná
öllum þeim erlendu rásum sem
Skjárinn hefur upp á að bjóða kost-
ar mánaðaráskriftin 3.995 krónur.
Innifalið í því verði eru um sextíu
sjónvarpsrásir.
Digital Ísland býður upp á Stöð
2 og Sýn ásamt fjölda erlendra
sjónvarpsstöðva. Mánaðaráskrift
að Stöð 2 kostar 5.450 krónur en
4.995 skuldbindi viðskiptavinur
sig í tólf mánuði. Áskrift að Sýn
kostar 4.790 krónur á mánuði.
Líkt og hjá Skjánum er boðið
upp á ýmis konar samsetningar
á erlendum stöðvum en sé keypt
áskrift að þeim öllum, fjörutíu
og fimm talsins, kostar það 4.290
krónur mánaðarlega.
Vilji sjónvarpsáhorfandi ekki
missa af neinu þarf hann því að
borga fyrir áskrift að Ríkissjón-
varpinu, Stöð 2, Sýn og Skjá Sporti.
Ef erlendar sjónvarpsstöðvar eru
ekki teknar með inn í reikninginn
borgar þessi tiltekni áhorfandi um
fimmtán þúsund krónur á mánuði
fyrir sjónvarpsáhorf sitt.
Ætli hann að ná einhverjum
erlendum stöðvum þarf hann að
bæta um fjögur þúsund krónum
við mánaðarlega, gefið að hann
kaupi sér aðeins einn heildar-
pakka með erlendum rásum.
salvar@frettabladid.is
15.000 á mánuði fyrir ís-
lenskar sjónvarpsstöðvar
SJÓNVÖRP Eitt sjónvarpstæki dugir varla til ef ná á öllum íslenskum sjónvarpsstöðvum sem
boðið er upp á. Vasarnir þurfa líka að vera nokkuð djúpir því mánaðaráskrift að Ríkissjón-
varpinu, Stöð 2, Sýn og Skjá Sporti kostar um fimmtán þúsund krónur. Erlendar stöðvar
bætast síðan ofan á það verð, en margvíslegir pakkar eru þar í boði.
RÚV 2.705
Stöð 2 5.450
Sýn 4.790
Skjár sport 2.495
Bíómynd hjá Skjánum 250-450
hver mynd
Erlendar rásir (Heildarpakki)
Digital Ísland 4.290
Skjárinn 3.995
Ballettskólar borgarinnar bjóða flestir upp á nám-
skeið fyrir börn frá þriggja eða fjögurra ára aldri.
Yngstu börnin, þriggja til sex ára, mæta einu sinni í
viku og kosta námskeiðin frá 15.800 og upp í 17.000 krónur fyrir eina önn.
Klassíski listdansskólinn er með kennslu í Mjóddinni fyrir fimm til sex ára börn. Nám-
skeiðið kostar 17.000 og er ballettbúningur innifalinn í verðinu.
Ballettskóli Guðbjargar Björgvins á Seltjarnarnesi býður upp á forskólanámskeið
fyrir fjögurra til sex ára börn sem kostar 15.800, en einnig er námskeið fyrir þriggja
ára sem nefnist Barnaleikur og kostar 14.900.
Ballettskóli Eddu Scheving er með kennslu í safnaðarheimili Háteigskirkju við
Háteigsveg og í Grafarvogi og kostar námskeið fyrir þriggja til sex ára 15.800.
Námskeið fyrir þriggja til sex ára í Ballettskóla Sigríðar Ármann kostar 16.500 en
kennsla fer fram í Skipholti og í íþróttahúsi Breiðabliks.
Innritun er hafin í öllum skólunum.
■ Hvað kostar ballettnámskeið fyrir yngstu börnin?
Svipað verð
Svo gæti farið að örbylgjuflögur
(RFID) verði teknar upp í stað
greiðslukorta þegar greitt er fyrir
vörur og þjónustu. Örbylgjuflög-
unum væri hægt að koma fyrir
í farsímum og yrðu þeir þannig
alþjóðlegt greiðslutæki sem gætu
komið í stað greiðslukortsins.
Stærstu verslunarfyrirtæki heims
hafa gert tilraunir og þróað þessa
tækni í samstarfi við þekkt tækni-
fyrirtæki eins og Nokia.
Um 20 milljónir Bandaríkja-
manna eiga nú greiðslukort með
örgjörva sem gerir korthafanum
kleift að ljúka kaupum með því
að bera kortið að snertilausum
kortalesara í stað þess að renna
kortinu í gegnum segulrandarles-
ara eða afhenda það sölumanni.
Sum stærstu verslunarfyrirtæki
Bandaríkjanna eru þegar farin að
samþykkja greiðslu snertilausra
korta.
Öryggi við notkun þessarar
tækni er umdeild og hafa Sam-
tök verslunar og þjónustu hvatt
aðildarfyrirtæki sín til að fara
sér hægt varðandi fjárfestingar
við þær breytingar sem notkun
greiðslukorta með örflögum kall-
ar á. Bent hefur verið á að bank-
ar og fjármálastofnanir í Evrópu
hafi greitt fyrirtækjum fyrir að
taka upp þessa tækni.
Með nýrri örbylgjutækni gæti farsíminn leyst hefðbundin greiðslukort af hólmi:
Greiðslukortið í farsímanum
FARSÍMI Svo gæti farið að farsíminn
yrði alþjóðlegt greiðslutæki.
Og Vodafone hefur tekið í notkun netsíma og nettengingu fyrir verktakafyrirtæki
sem vinna við virkjun Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði. Virkjunin var fyrir utan
hefðbundið þjónustusvæði á síma og neti og því þurfti Orkuveita Reykjavíkur að
leggja þrjú hundruð metra langa ljósleiðaratengingu til þess að hægt væri að tengja
fyrirtækin um Netið. Hugmyndin er að auðvelda starfsmönnum aðgengi að háhraða-
neti innan sem utan vinnutíma. Erlendir starfsmenn geta verið í betra sambandi við
fjölskyldur sínar og hægt verður að sinna bankamálum gegnum heimabanka í stað
þess að keyra til Reykjavíkur, svo dæmi séu tekin.
■ Verslun og þjónusta
Nettenging vel utan alfaraleiðar
Útgjöldin
> Bíómiði á venjulega sýningu
Heimild: Hagstofa Íslands (1997-2003)