Fréttablaðið - 24.08.2006, Side 35
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Fylltir hælar, slöngustígvél og víniltöskur
Að vanda er skótískan fyrir veturinn mikið til samansett af leðurstíg-
vélum. Það má kannski segja að stígvél séu meira en nokkurn tíma
áður í tísku. Sérkennið í vetur eru þó stígvél með fylltum hæl
(platform) en slíkir hælar sáust mikið á skóm nú í sumar. Reyndar
voru stígvél nokkuð áberandi í sumartískunni þó yfirleitt séu þau
frekar í vetrarlínunni. Fyllti hællinn er í takt við tíðarandann sem
síðustu misseri hefur mikið mótast af sjöunda áratugnum. Stígvélin
eru úr ýmiss konar leðri svo sem mjúku lambsskinni eða sterkara
kálfskinni, jafnt flatbotna sem með tíu sentimetra hæl og hællinn er
að sjálfsögðu breiður. Aðalnýjungin í vetur er lakkað leður eða þá
„vínill“ sem ekki er verra þar sem í töskunum má finna sama efni.
Hjá tískuhúsi Chanel er aðalhandtaskan í vetur væntaleg í búðir 1.
september, það er hin svokallaða „Coco´s cabas“ sem er eins konar
sekkur úr vínil eða leðri. (Litlar töskur eru alveg úti – því stærri, því
betri.) Svo mikil er eftirvæntingin eftir þessari nýju tösku að búðirn-
ar setja æsta viðskiptavini á biðlista til þess að tryggja sjúkustu fórn-
arlömbum tískunnar sitt eintak af hinni ómissandi tösku. Enda er hún
í tískuþáttum í öllum blöðum Parísar þessa dagana.
Sum stígvélanna eru loðfóðruð með kanínu eða mink. Loðfóðrið rímar
að sjálfsögðu við loðfeldina sem sjást nú meira. Ekki má heldur
gleyma slönguskinninu sem, eins og í handtöskum, hefur nú hafið
innreið sína í skótískuna, bæði í kvöldskóm en einnig í stígvélum.
Þetta má til dæmis finna í vetrarlínu Sergio Rossi og hjá Gucci. Það
er eins víst að finna megi krókódílastígvél þó ég hafi ekki enn rekist
á þau sem passa vel við metsölutösku tískuhúss Yves Saint Laurent í
ár, „Muse“, sem í vetur er að sjálfsögðu úr krókódílaskinni.
Pilsin eru stutt í vetur og hvað betra en hástígvél sem ná upp á mið
læri við þau. Á hátískusýningu Chanel fyrir veturinn 2006-7 var það
nær eina skótauið sem Karl Lagerfeld bauð upp á.
Stundum hef ég heyrt að efnissalar ákveði í raun hvaða litir ráði ríkj-
um í tískunni í hverri árstíð með þeim efnum sem þeir bjóða hönnuð-
um á efnakaupstefnum áður en þeir setjast niður og hanna. Hönnuð-
irnir spila svo úr því sem er í boði og því enda þeir allir á því að hanna
meira eða minna í sömu litum. Ekki veit ég hvort sama skýring eigi
við um öll þau villtu skinn sem eru í vetrartískunni hjá hinum ýmsu
tískuhönnuðum að þessu sinni, hvort sem um er að ræða handtöskur
eða skó. Ætli einhver hafi ekki verið með rýmingarsölu á skinnum!?
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Íþróttamenn eru fyrirmyndir
margra, ekki einungis atgervi
þeirra heldur líka klæðaburður.
Þess vegna er til mikils að vinna
fyrir stærstu framleiðendurna að
fá skærustu stjörnurnar til að
klæðast og keppa í fötum frá þeim.
Það eru fleiri en körfubolta- og
knattspyrnumenn sem þiggja háar
fjárhæðir frá hinum og þessum
framleiðandanum því nú þegar
Opna bandaríska meistaramótið
(US Open) hefst í næstu viku velta
tískuspekúlantar fyrir sér hverju
Maria Sharpova, ein skærasta og
jafnframt fallegasta tennisstjarna
heims, muni klæðast á vellinum.
Á þriðjudaginn var sagði Maria
að það myndi koma á óvart í hverju
hún yrði. Þessi orð lét hún falla á
kynningu Tag Heuer í Bloom-
ingdales en upplýsti þó að hún
myndi ekki alltaf klæðast eins og
færi það eftir því hvort leikirnir
færu fram að morgni eða kvöldi.
Þess má geta að stílisti Mariu er
engin önnur en stílisti ofurstjarn-
anna, sjálf Rachel Zoe. Hin 19 ára
gamla Maria mun þó vonandi geta
einbeitt sér að mótinu sjálfu, en við
sama tilefni sagði hún fréttamanni
Vogue að hún hlakkaði til mótsins,
sérstaklega til þess að spila fyrir
framan æsta aðdáendur í New
York. - tg
Tískan í tennis
Maria Sharapova, tennisdrottning frá Rússlandi.
Outlet
Mörkinni 1
neðri hæð
• Mörkinni 1•
500
1.000
1.500
2.000
Aðeins 4 verð
Leður og rússkin
50% afsláttur
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
Stærðir 40-46
verð kr: 3.995.-
Stærðir 36-41
verð kr: 9.695.-
Stærðir 37-40.1/2
verð kr: 9.995.-
Stærðir 36-41
verð kr: 4.545.-
Stærðir 40-46
verð kr: 3.995.-
SKÓR
Fæst í apótekum
um land allt.
ALCO-GEL
Sótthreinsandi handgel.
Engin flörf fyrir sápu og vatn.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI