Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 38
[ ]
Í hópaþjálfun á vegum Gigtar-
félags Íslands er lögð áhersla
á alhliða þjálfun með rólegum
æfingum.
Það hentar ekki öllum að demba
sér í líkamsrækt á borð við þá sem
er í boði á heilsuræktarstöðvum.
Á vegum Gigtarfélags Íslands er
boðið upp á marvíslega þjálfun
fyrir þá sem vilja fara hægar í
sakirnar og vilja æfa í rólegu og
notalegu umhverfi.
„Við erum með góða alhliða
leikfimi, jóga og vatnsleikfimi,“
segir Margrét Gunnarsdóttir,
sjúkraþjálfari og verkefnisstjóri
hópaþjálfunar hjá Gigtarfélagi
Íslands. „Við byrjuðum líka með
þyngdarstjórnunarnámskeið í
fyrra. Þar er um að ræða almenna
heilsueflingu og stuðning fyrir
fólk sem vill ná heilsusamlegri
þyngd og halda henni. Svo erum
við með bakleikfimi fyrir karla,
sem er alhliða þjálfun með áherslu
á styrkingu og liðleika.“
Það allra nýjasta er svo stott-
pilates. „Það er æfingakerfi þar
sem verið er að þjálfa og styrkja
djúpu bolvöðvana, bæði bak- og
kviðvöðvana. Það hentar mjög vel
fyrir einstaklinga með vefjagigt
og aðra sem vilja góða styrkingu
með rólegum æfingum, engum
hamagangi eða hoppum,“ segir
Margrét og bætir við að það sama
eigi við um önnur námskeið hjá
þeim. Umhverfið sé rólegt og
notalegt og æfingarnar allar
rólegar.
„Gigtarfélagið stendur fyrir
þessum æfingum og við miðum
tímana helst út frá þörfum þeirra
sem eru með gigt og þeirra sem
þurfa að fara rólega og fá góða
handleiðslu, til dæmis þeim sem
eru með viðkvæmt stoðkerfi eða
eru að fara af stað aftur eftir langt
hlé. Námskeiðin eru opin öllum en
félagar í Gigtarfélaginu fá
afslátt.“
Námskeiðin fara annars vegar
fram í húsnæði Gigtarfélagsins í
Ármúla 5 og hins vegar í Sjálfs-
bjargarlauginni í Hátúni, þar sem
vatnsleikfimin er kennd. „Þetta
eru litlir hópar, í kringum tíu til
fimmtán manns,“ segir Margrét.
„Vetrinum er skipt í þrennt: sept-
ember til jóla, jól til páska og
páskar til maí. Sérstaða okkar er
fagleg handleiðsla en starfsmenn
eru sjúkraþjálfarar og hjúkrunar-
fræðingar með sérmenntun.“
Áhugasömum er bent á að hafa
samband við Gigtarfélag Íslands í
síma 530 3600. einareli@frettabladid.is
Rólegar æfingar í notalegu
umhverfi án hopps og skopps
Í vatnsleikfimitíma. Allar æfingar á vegum Gigtarfélagsins byggjast upp á rólegri alhliða hreyfingu.
Margrét segir stott-pilates það allra nýjasta
í hópaþjálfun Gigtarfélags Íslands.
Nú er tími melónunnar genginn í garð.
Melónurnar eru á besta þroskastigi, sætar og safaríkar, og
henta vel sem snarl á kvöldin í staðinn fyrir sælgætið og
snakkið.
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Það vilja flestir hafa hröð efna-
skipti, en það þýðir að maður
„brenni“ eða nýti mikið magn af
orku (hitaeiningum) hvort sem
maður er að hreyfa sig eða í hvíld.
Maður er fljótur að nýta orkuna
sem maður neytir og safnar síður
umframfitubirgðum, sem þýðir
minni hættu á hjarta- og æða-
sjúkdómum og sykursýki II svo
eitthvað sé nefnt.
Ef við höfum hæg efnaskipti eru
minni líkur á að við náum góðum
árangri þrátt fyrir þokkalegt
fæðuval og vel hannaða æfinga-
áætlun. Það getur því verður
vandasamt mál að missa umfram-
fitu. Sum okkar hafa óvirkan
skjaldkirtil eða aðra kvilla sem
draga úr efnaskiptum og erfitt er
að ráða við nema með lyfjum. En
flest getum við stjórnað efna-
skiptum okkar töluvert með réttu
fæðuvali á réttum tímum og auk-
inni hreyfingu. Á sama hátt
getum dregið úr efnaskiptunum
með lélegu fæðuvali í stærri
skömmtum og lítilli sem engri
hreyfingu. Þetta er í þínum hönd-
um!
Árangursríkasta leiðin til að
auka efnaskipti líkamans á heil-
brigðan hátt
Ef þú vilt koma „trukki“ á efna-
skiptin og koma þeim í sitt besta
mögulega ástand eru margar
máltíðir á dag vafalaust besta
lausnin. Líklega hafa margir sagt
þér þetta áður og þú átt eftir að
heyra þetta aftur og aftur. Borð-
aðu fimm til sex sinnum á dag,
um það bil á þriggja tíma fresti,
tiltölulega lítið í einu og þú setur
efnaskiptin í hærri gír en þau
hafa verið. Það er engin afsökun
að hafa engan tíma, þetta þarfn-
ast bara skipulags og fyrirhyggju
í upphafi, eins og að hafa alltaf
epli/banana eða orkustöng í tösk-
unni/bílnum svo maður missi
ekki úr máltíð. Fljótlega kemst
þetta í vana eins og allt annað
sem þú hefur vanið þig á. Ef dag-
skráin er þéttskipuð þarf að
ákveða kvöldið áður hvað þú
ætlar að borða daginn eftir, sér-
staklega í millibita. Taktu eitt-
hvað hollt með þér svo þú endir
ekki í kökuveislu í vinnunni eða
freistist til að hlaupa út í sjoppu
eftir Snickers!
Margir máltíðir á dag halda líka
blóðsykrinum jöfnum, sem þýðir
minni þörf fyrir sætindi.
Gæðin skipta máli
Ef þú ert ein/n af þeim sem ætla
að koma sér í heilbrigða rútínu í
haust eftir sumarfríið með reglu-
legri hreyfingu og huga betur að
fæðuvalinu, skaltu byrja á að
skoða tíðni máltíðanna. Skiptu
því sem þú borðar venjulega yfir
daginn í fimm til sex máltíðir á
dag og þú ferð að nýta orkuna
betur en áður. Gæði fæðunnar
skipta líka máli. Því hreinni
(minna unnin) sem fæðan er, því
betri. Veldu ávexti, grænmeti,
gróft kornmeti, baunir, ferskan
fisk og kjöt sem oftast og efna-
skiptin fara að vinna eins og
túrbóvél. Það er ekki að ástæðu-
lausu sem Solla „græna“ nefnir
gott hráefni sem fyrsta þáttinn í
lögmálum sínum.
Morgunmaturinn er mikilvæg-
astur
Þegar við missum úr máltíð hægj-
um við á efnaskiptunum, aukum
líkur á vöðvarýrnun og komum
jafnvel líkamanum í sveltis-
ástand. Í slíku ástandi fer líkam-
inn að hægja á sér og halda í fitu-
forðann til að hafa einhverja
orku. Þegar loksins er borðað eru
miklar líkur á að máltíðin verði
of stór, sem líkaminn nær ekki að
vinna úr og breytir umframhita-
einingum í fitu. Þetta verður víta-
hringur sem erfitt er að komast
út úr!
Þegar við borðum ekki morgun-
mat byrjar líkaminn ekki að
starfa eins og hann á að gera.
Vélin fer ekki að vinna af sama
krafti og hún getur unnið. Láttu
það því verða þitt fyrsta verk að
venja þig á næringarríkan morg-
unmat, ef þú ert ekki vön/vanur
því nú þegar. Þú finnur muninn!
Kær kveðja, Borghildur
Tengsl efnaskipta og tíðni máltíða
������������
��������������������
��������������������������������
A
R
G
U
S
0
6
-0
3
5
0
�������������������� ������������������������� ��������
������������
���������������������������������
����������������������������
Öflugasta
sjónvarpsdagskráin