Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 7
Sjónvarpið getur verið áhrifa-
ríkara en móðurfaðmur sam-
kvæmt nýrri ítalskri rannsókn.
Sjónvarp getur virkað eins og
verkjalyf á börn og er mun áhrifa-
ríkara en huggun frá móður, sam-
kvæmt lítilli ítalskri rannsókn sem
gerð var í háskólanum í Siena. Nið-
urstöðurnar voru byggðar á rann-
sóknum á 69 börnum á aldrinum sjö
til tólf ára. Þeim var skipt í þrjá
hópa og blóð tekið úr börnunum á
meðan á rannsókninni stóð. Börn
í fyrsta hópnum voru ein við blóð-
tökuna, börn í öðrum hópnum höfðu
mæður sínar hjá sér sem töluðu til
barnanna og hugguðu þau. Börnin í
þriðja hópnum fengu hins vegar að
horfa á teiknimyndir á meðan. Eftir
að blóðtökunni lauk voru börnin
látin gefa stig í samræmi við hversu
mikinn sársauka þau fundu. Börnin
sem fundu mest til, voru í fyrsta
hópnu. Stigin sem fyrsti hópurinn
gaf voru um þrefalt hærri en þriðja
hópsins, sem fékk að horfa á teikni-
myndir. Börnin sem fengu huggun
frá móður sinni, voru mitt á milli.
Svo virtist sem mæðurnar ættu erf-
itt með að bregðat jákvætt við sárs-
auka barna sinna og þess vegna
væru teiknimyndirnar betri. Svo
virtist sem sársaukaþröskuldur
barnanna sem horfðu á sjónvarpið
hefði hækkað. Greint var frá þessu
á fréttavef Reuters. - keþ
Sjónvarp sem verkjalyf barna
Betra getur verið fyrir börn að horfa á
sjónvarp en fá huggun frá mömmu, ef þau
þjást . NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Hjálpar í baráttunni gegn
tannskemmdum.
Vísindamenn hafa nú þróað tyggi-
gúmmí sem inniheldur gagnlegar
bakteríur til varnar tannskemmd-
um. Hlutverk þeirra er að hindra
aðrar bakteríur í að festast og
valda skemmdum á tönnum.
Samkvæmt fréttavef BBC
minnka tyggigúmmíbakteríurnar
þéttni annarra baktería og hindra
að þær geti fest sig á tennurnar
þar sem þær myndu breyta sykri í
sýru og eyðileggja þannig glerj-
unginn. Þýska efnafyrirtækið
BASF hefur prófað tyggigúmmíið
á fjölda fólks og segir niðurstöður
sýna stórlækkað hlutfall baktería.
Búist er við að tyggjóið, sem og
tannkrem og munnskol með sömu
eiginleikum, komi á markað á
næsta ári. Vísindamenn leggja
mikla áherslu á að tyggjóið kemur
ekki í staðinn fyrir tannburstun,
en árangurinn verði enn betri sé
hvort tveggja notað.
Önnur hugsanleg not fyrir
gagnlegar bakteríur eru í lyktar-
eyðum, þar sem þær gætu gert illa
lyktandi bakteríur í handarkrik-
um óvirkar. - elí
Bakteríu-
tyggjó
Þó að bakteríutyggjóið geri gagn kemur
það ekki í staðinn fyrir tannburstun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýjar leiðir í umönnun lang-
veikra.
Norræn ráðstefna um ALS/MND
verður haldin á Hótel Selfossi 26.
og 27. september 2006. Ráðstefn-
an er fyrir alla sem vilja kynna
sér nýjar leiðir í umönnun lang-
veikra og stendur frá 9 til 22 báða
dagana.
Ekkert kostar að sækja fyrir-
lestrana en skráning fer fram á
póstfanginu mnd@mnd.is. Allir
fyrirlestrar eru á ensku en verða
þýddir jafnóðum á skjá á
íslensku.
ALS/MND
ráðstefna
Ráðstefnan fer fram á Hótel Selfossi.
FRÉTTABLAÐIÐ/NJÖRÐUR
Vertu ígó ummálum!
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
Ný og kraftmikil TT-námskeið!
Innritun hafi n í síma 581 3730.
Þú léttist og styrkist andlega og líkamlega!
Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri.
TT-1
• Lokuð 9 vikna námskeið 3 x í viku
• Fræðslufundir 1x í viku, vigtun og mælingar
• Líkamsrækt
• Glæsilegur lokafundur þar sem sérfræðingar í hári
og förðun veita ráð
• Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi þar sem
alger trúnaður ríkir
• Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfi nu og tækjasal
TT-2
• Lokuð 9 vikna framhaldsnámskeið eftir TT-1
Loksins! TT á besta tíma: 16:30 og 17:40 og
aukið rými fyrir morgunhænurnar: 6:15 og 7:20
Barnagæsla – Leikland JSB
Vertu velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
opnu
m
nÝja
n,
stÆr
ri og
enn b
etri
staÐ
!
opnu
narh
ÁtÍÐ
10. se
ptem
ber
kl. 1
4 - 17