Fréttablaðið - 24.08.2006, Page 40
[ ]
Mæðgurnar Jósefína og Helga
selja gamla muni með sál á
Selfossi.
Helga Salbjörg Guðmundsdóttir
bjó í Danmörku í átta ár og heillað-
ist þá af gömlum hlutum og hvernig
Danirnir notuðu þá í óhefðbundnar
uppstillingar. „Það heillaði mig
hvernig það er bara eitt eintak til
af hverjum hlut og hvernig hver
hlutur hefur sögu bak við sig,“
segir Helga. Hana dreymdi um það
í mörg ár að opna fornmunabúð og
hún lét svo drauminn loks rætast í
júlí þegar hún opnaði verslunina
Maddömurnar á Selfossi í félagi
við móður sína, Jósefínu Friðriks-
dóttur.
„Við erum með almúgamublur,“
segir Helga. „Hundrað ára furu-
skápa og annað slíkt, postulín,
silfur, ljósakrónur og eiginlega
allt mögulegt milli himins og jarð-
ar. Flest húsgögnin koma frá Dan-
mörku, Svíþjóð og Austurríki en
við værum alveg til í að kaupa
íslenska hluti, til dæmis úr dánar-
búum eða frá fólki sem vill losa sig
við gömul húsgögn.“ Auk hús-
gagna er að finna í búðinni lín og
tau, lampa og ljósakrónur og
fjöldann allan af skemmtilegum
smáhlutum.
Verslunin er í fimmtíu fermetra
húsnæði við Kirkjuveg á Selfossi
og þær mæðgur segjast selja hluti
með sál. Hvað nafnið varðar segir
Helga að þeim hafi fundist það
hæfa þeim sjálfum. „Við erum svo
maddömulegar. Þetta er íslenskt
og gamalt nafn.“
Maddömurnar opnuðu 22. júlí
og móttökur hafa verið vonum
framar. „Það kom okkur á óvart
hvað fólk var fegið. Margir höfðu á
orði að loksins væri komin búð með
öðruvísi vörur. Fyrir utan Sunn-
lendinga kemur hingað fólk sem er
að keyra í gegnum bæinn og fólk
úr sumarbústöðum. Þetta er eina
antikverslunin á Suðurlandi, fyrir
utan Reykjavík. Viðtökurnar voru
það góðar að ég þurfti að hoppa til
Danmerkur aftur og kaupa meira
og á von á gámi á næstu dögum,“
segir Helga að lokum. -ee
Maddömur með sál
Það er miklu skemmtilegra að elda með
áhöldum sem hafa sál, eins og þessi vigt. Snyrtiborð fyrir fínar dömur á öllum aldri.
Gullfallegur skenkur sem væri fínn í bað-
herbergið eða svefnherbergið.
Fínn sími frá því snemma á síðustu öld.
Helga og Jósefína í verslun sinni, Maddömurnar, sem selur hluti með sál. LJÓSMYNDIR: EGILL BJARNASON
Það er þægilegt að geta fengið sér úrvalskaffi
í rólegheitum heima hjá sér, þar að auki geta
kaffivélar verið ansi flottar inni í eldhúsinu.
Ný sending af baðkörum,
mikið úrval, gott verð.
Eigum einnig vinsælu Subway salernin frá
Villeroy & Boch.
Handrið og
stigasmíði
Mikið úrval af handriðum inni
sem úti. Stigar fáanlegir á lager
- Gerum tilboð í sérsmiði.