Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 42
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR10
Í GARÐINUM HEIMA
HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM
ALLAN GRÓÐUR HEIMILANNA
Haustblóm
Nú eru haustlægðirnar dálítið farnar að setja svip
sinn á garðagróður jafnt sem úthaga. Plönturnar
sem voru svo skínandi fallegar í kerjum og beðum
fyrir nokkrum dögum eru byrjaðar að láta á sjá og
sumar þeirra meira að segja alveg búnar með sitt
atriði í hinum litríka blómasirkus sumarsins. En
það þýðir ekki að við þurfum að horfa upp á tóma
potta og ker eða gloppur í blómabeðunum. Nú gefst
einmitt kostur á að endurnýja í pottunum með plönt-
um sem standa út haustið, jafnvel þótt komi nokkr-
ar frostnætur.
Silfur og purpuri
Haustútgáfuna af blómakerjunum byggjum við
ekki upp með miklu blómaskrúði. Við leggjum frem-
ur áherslu á skrautleg blöð og dálítið draumkennd-
ar samplantanir þar sem beitt er saman silfurloðn-
um blöðum skrautkambsins og purpuralitum
brúskum af skrautkáli í ýmsum formum. Báðar teg-
undir standast frost og geta staðið státnar langt
fram á vetur þótt hryssingsleg hret, frost og fann-
koma gangi yfir trekk í trekk, hrekjandi allt annað
til foldar. Til að fá fleiri liti eða skemmtilegri form,
má taka greinar, – lauflausar eða í haustlitunum –
með í dæmið og stinga þeim niður þar sem vel fer á
í þessu samhengi. Einnig er auðvelt að verða sér út
um grænan mosa til að leggja ofan á moldinna milli
plantnanna. Fallegir steinar koma einnig til greina.
Sömuleiðis alls konar nettur og öruggur ljósaútbún-
aður, hvort sem það eru útikerti eða raftengdir
„utanhúss“ ljósgjafar sem svo vinsælir eru um
þessar mundir. Ef við viljum fá meira blómskrúð í
þetta er hentugt að grípa til pottakrýsans. Hann
stendur vel utandyra og þolir vel nokkura stiga næt-
urfrost ef moldin í pottinum er ekki höfð of blaut.
Silfurkambur
Silfurkamburinn er ættaður frá ströndum Miðjarð-
arhafs, en hefur teygt sig nokkuð norður eftir vest-
urströnd Evrópu eftir að farið var að rækta hann
þar. Í eðli sínu er hann marggreindur hálfrunni sem
getur náð drjúgt hálfum metra á hæðina. Hér í
Norður-Evrópu er hann ávallt ræktaður sem einært
sumarblóm og fyrst og fremst vegna blaðanna sem
eru aflöng og fjölflipuð. Blöðin eru fínhærð allt
umkring, silfurhærð og skínandi björt í kvöldhúm-
inu. Endrum og eins kemur það fyrir að plöntur lifa
af veturinn og blómgast þá gulum blómdúskum í
marggreindum skúfum upp úr miðju sumri. Plönt-
urnar þola tíu stiga frost og þeim virðist lítið gera
til þótt frjósi, þiðni, fenni eða rigni framan af vetri,
en gefst svo upp upp úr miðjum janúar. Til eru ótal-
mörg afbrigði af silfurkambi með mismunandi blað-
stærð og blaðflipum. Í garðinum þarf silfurkambur-
inn helst að fá sólríkan, fremur þurran vaxtarstað.
Svo að hann dafni sem best þarf jarðvegurinn
umfram allt að vera fljótur að þorna. Moldarblanda
sem er u.þ.b. tveir þriðju sandur er best. Áburðar-
gjöf skal stillt í hóf. Silfurkamburinn er mikið not-
aður til að afmarka beð og undirstrika blóm í sterk-
um litum. Hann fer vel í blómakerjum og er
afbragðsplanta til að hafa í frostlausum eða lítið
upphituðum gróðurskálum á veturna.
Skrautkál
Skrautkálið tilheyrir sömu tegund og færir okkur
grænkál, höfuðkál, rauðkál, brokkólí og blómkál og
ber langt og margbrotið vísindaheiti. Nefnilega:
Brassica oleracea var acephala forma laciniata.
Þetta þarf ekki að leggja á minnið! Okkur nægir að
vita að skrautkálið er ræktað eins og allt annað
venjulegt kál, jafnvel þótt það sé mesta tilhalds-
drósin í sinni fjölskyldu. Það er tvíært og sunnar í
álfunni safnar það vetrarforða og myndar þéttar
plöntur sem minna meira á hvítkál. En hér norður í
björtu sumarnóttunum hefur það tilhneigingu til að
hlaupa í njóla, blómgast og bera fræ á fyrsta sumri.
En það gerir ekkert til. Við höfum vanist þessu og
okkur finnst ekkert athugavert við þessa hegðun,
þótt garðyrkjukollega sunnan að reki í rogastans.
Og enda þótt hægt sé að fá skrautkálið til að haga
sér eðlilega í þessum efnum með því að sá og ala
plönturnar upp eftir Jónsmessuna þegar sólargang-
ur fer að styttast. Þá væru plönturnar búnar að ná
útplöntunarstærð í lok ágúst og hefðu september og
eitthvað fram í október til að vaxa upp í það að vera
áberandi. Í venjulegum árum gerist það ekki hér,
svo við skulum bara vera ánægð áfram með „skraut-
kálsnjólana“ okkar. Blöð skrautkálsins eru afar
skrautleg í ýmsum purpurarauðum, gulum og
rjómahvítum tilbrigðum. Oftast eru blöðin mjög
flipótt og kögruð á svipaðan hátt og grænkál. Þau
eru ágætlega æt og gaman er að nota þau í hrásalöt
en við suðu missa þau lit og verða fremur óspenn-
andi. Í beðum, kerjum og öðrum samplöntunum
heldur skrautkálið lit sínum og lögun langt fram
eftir vetri. Auðvelt er að flytja og færa plönturnar
án þess að það trufli þær nokkuð. Þetta má nota sér
og flytja nokkrar plöntur þétt saman eftir að þær
hafa náð fullri stærð á haustin, þannig að þær myndi
eins konar blómvönd.
Vínrekkar fást í ýmsum stærð-
um og gerðum.
Allir unnendur góðra vína ættu að
eiga vínrekka á heimilinu. Vínið
geymist svo miklu betur ef flösk-
urnar eru látnar liggja svo tappinn
þorni ekki upp. Í verslunum má víða
finna fallega vínrekka og hönnuðir
keppast við að hanna nýstárlega og
fallega rekka sem eru sannkölluð
heimilisprýði. Útgáfurnar eru fjöl-
margar og rekkarnir eru úr ýmsum
efnum: viði, stáli, gleri eða jafnvel
plasti. Þeir fást líka í öllum stærð-
um og gerðum, sumir taka einungis
eina flösku en aðrir eru ætlaðir
mörgum tugum.
Vínrekkarnir eru margir hverjir
fallegir út af fyrir sig en skemmti-
legastir eru þeir þó þegar komin er
flaska í hvert hólf.
Geymslur fyrir gæðavín
Fallegur vínrekki frá Rosendahl sem fæst
víða.
Skemmtileg hönnun
frá Echelon.
Framúrstefnulegur plastrekki úr versluninni
Casa. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Þessi skemmtilegi vínrekki úr stáli fæst
í versluninni Casa.
Skemmtilegur og ódýr vínrekki úr IKEA.
Tekur 12 flöskur og lítið mál að kaupa
nokkra og festa þá saman.
Fallegur vínrekki úr kross-
viði frá Mod livin.
Bæjarlind 6, Kóp. • s. 5347470 • www.feim.is
Opi› virka daga 10-18 og laugardaga 11-15
Lokadagar
útsölunnar
Garðhúsgögn
enn meiri verðlækkun