Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 56
 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR24 ... að Matthew Adams er yngstur þeirra sem farið hafa í endajaxla- töku? Tannlæknir dró tvo endajaxla úr honum á Midland-læknastöðinni Í munn- og kjálkasjúkdómum í Mich- igan í Bandaríkjunum 24. október 2002. Þá var Matthew aðeins níu ára og 339 níu daga gamall. ... að Svíinn Ola Skinnarmi er yngstur þeirra sem farið hafa yfir Suður- skautið? Hann komst á leiðarenda í Scott Base á Suðurskautslandinu 20. desember 1998, þá 26 ára gamall eftir 47 daga, 1.200 km langa skíðagöngu yfir þetta frosna land. Í eftirdragi hafði hann 120 kg af birgðaseðlum en lauk samt ferðinni fyrr en hann átti von á. ... að Bandaríkjamaðurinn Bob Hatch smellir fingrum manna hæst? 17. maí 2000 smellti hann fingrum svo hátt að samkvæmt hljóðmælingu var smellurinn 108 db. Það jafngildir hávaða í sláttuvél í eins metra fjarlægð. ... að félagar í Hundaþjálfunarfélagi Norður-Norðymbralands hafa mynd- að lengstu hundagöng? Fjórir hundar hlupu milli fóta félagsmanna sem voru 222 talsins og stóðu í einfaldri röð á Alnwick Castle-mótinu í Norð- ymbralandi á Bretlandi 25. júlí 2005. ... Mauna Kea (Hvítafjall) á Hawaii- eyju er mesta fjall jarðar? Tindur þess er 10.205 m ofan við ræturnar en þær teygja sig djúpt niður í Hawaii-álinn. Þar af eru 4.205 m yfir sjávarmáli. ... að elsta steingerða krabbadýr ver- aldar fannst í Shropshire á Bretlandi í júlí 2005? Jarðfræðingarnir bresku, Mark Williams og David Siveter og Þjóðverjinn Dieter Waloszek, til- kynntu að þeir hefðu fundið 0,5 mm langt steingert krabbadýr. Aldurs- mælingar gefa til kynna, að það sé 511 miljón ára gamalt, sem þýðir að þetta örsmáa dýr er elsta krabbadýr sem vitað er um. ... að Damaskus á Sýrlandi er elsta höfuðborg í heimi? Talið er að menn hafi búið þar frá árinu 2.500 f.Kr. ... að Fahif bin Abdul Aziz, konungur Sádi-Arabíu, er talinn vera ríkasti konungur heims? Tímaritið Forbes áætlar að auðæfin hafi numið 1.625 miljörðum króna árið 2004. ... að That´s alright með Elvis Presley er elsta lagið sem komst á topp bandaríska smáskífulistans? Lagið sem komst í efsta sæti bandaríska listans og þriðja sæti þess breska árið 2004, hafði verið tekið upp og gefið út árið 1954, hálfri öld áður, en þá naut það engrar velgengni. ... að hjólbrettagoðsögnin Tony Hawk frá Bandaríkjunum er fyrstur manna til að fara 900-hjólabrettastökkið (hálfur þriðji hringur í loftinu)? Það gerði hann á X-leikunum í San-Franc- isco 27. júní 1999. 900 stökkið dreg- ur nafnið sitt af því að brettakappinn snýst í 900 gráður en það er ein erfiðasta brellan í hjólabrettaíþrótt- inni. Hawk heppnaðist stökkið í sinni elleftu tilraun þetta kvöld. ... að sýningin Schools Variety Spect- acular státar af stærsta leikarahópn- um? Í lokaatriði sýningarinnar sem Rolf Harris kynnti komu fram 2.100 börn. Viðburðurinn fór fram í Sydney, Ástralíu, í nóvember 1985. ... að liðvagnarnir Alligator Jumbulances eru stærstu sjúkra- bílarnir? Bresku góðgerðasamtökin Across Trust reka þessa risavagna sem eru 18 m langir og eru hannaðir til að flytja sjúka og fatlaða til sumar- leyfisstaða í Evrópu. VISSIR ÞÚ ... Það er Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, sem gefur okkur innsýn í kaupvenjur sínar að þessu sinni. 1. Hver er uppáhaldsbúðin þín? Sæl- kerabúð Nings - ódýrasta utanlands- ferðin sem maður kemst í. 2. Hvað finnst þér skemmtilegast að kaupa? Mér finnst óhemju skemmtilegt að gramsa í kössum með notuðum hljómplötum. 3. Verslar þú í útlöndum? Já, framandi mat, hljóðfæri, föt og plötur. 4. Einhverjar venjur við innkaup? Ekki nema þær að hugsa fram í tímann og að næsta vísareikningi. 5. Tekurðu skyndiákvarðanir í fatakaupum? Já, segi ég, en konan mín segir að það sé bull. KAUPVENJUR Gramsar í notuðum plötum 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 Hrísey liggur í utanverð- um Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey, sem einnig er eina eyjan hér við land þar sem fleiri búa en í Hrísey. Eyjan er 7,5 km að lengd og 2,5 km að breidd þar sem hún er breiðust að sunnanverðu. Eyjan mjókkar til norðurs og þar rís hún hæst í um 110 metra yfir sjávarmáli. Þar stendur viti sem reistur var árið 1920. Í Hrísey búa um 200 manns í sjáv- arþorpi með hellulögðum götum, fallegum görðum og útsýni til fjalla- hringsins um Eyjafjörð. Ferjan Sævar siglir til Hríseyjar og gengur á einnar til tveggja stunda fresti frá Árskógssandi. Siglingin tekur aðeins korter. Norðurhluti Hríseyjar, Ystabæjarland, er alfriðað land í einkaeigu. Sérstakt leyfi landeiganda þarf til að fá að fara um þann hluta eyjarinnar. EYJAN: HRÍSEY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.