Fréttablaðið - 24.08.2006, Síða 57
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 33
AF NETINU
Sorglega mikið er til af fólki, sem
gengur ekki heilt til skógar og þarf
að nota hækjur til að styðjast við.
Engin dæmi veit ég þess þó, að það
noti hjálpartækin til að berja á
öðrum, eins og Sjálfstæðisflokkur-
inn gerir með Framsóknarflokkn-
um. Þó verkfærið sé lélegt og dýrt
í rekstri, nýtir Sjálfstæðisflokkur-
inn það sem stjórntæki í ráðuneyt-
um sínum. Ríkisstjórnin dregur
dám af skapara sínum, en vinnu-
brögð hennar hafa meðal annars
vakið heimsathyggli fyrir kjána-
skap og fyrirhyggjuleysi í
umhverfismálum. Flokkurinn
drottnar yfir þjóðinni og það með
hennar samþykki, svo ótrúlegt
sem það nú er. Hann hefur með
hækju sinni, haft af þjóðinni allar
arðbærustu eignir hennar, aðeins
Landsvirkjun eftir, en margir eig-
endur þeirra, hagnast nú óhugnan-
lega mikið á þjóðinni. Nokkrir nýju
eigendanna hafa sýnt þá „rausn“
að gefa til mannúðarmála, upp-
hæðir sem þá munar álíka mikið
um og öryrkjanum tíu krónur.
Einskonar syndaaflausn eða frið-
þæging eigin sálar. Minnir nokkuð
á, þegar kunningi minn fór á
sveitaball með fulla flösku af góðu
víni. Þegar hann ætlaði að grípa til
hennar við fætur sér, var hún horf-
in. Er liðið var á ballið, birtist
hendi yfir öxl hans með hálftóma
flösku sömu gerðar og vingjarnleg
rödd bauð honum að fá sér sopa.
Náunginn kórónaði það svo með
því að slá létt á bakið á fórnardýri
sínu og segja: Ber er hver að baki
nema sér bróður eigi: Þjófurinn og
kunningi minn sneru bökum saman
við sitt hvort borðið.
Þrítugasta júní fór ég á fund
heilbrigðisráðherra. Hún tók á
móti mér, ásamt þremur ráðgjöf-
um sínum. Á dagskrá voru bíla-
styrkir til fatlaðra og heimahjúkr-
un. Sjaldan hef ég upplifað annað
eins reglugerðablaður og þar og
kom til hugar nafnið Möppudýr,
sem Vilmundur Gylfason, gaf úr
sér gengnu starfsfólki ríkisstofn-
ana. Þegar leið á fundinn, var mér
ljóst að hvorki ráðherra né ráð-
gjafar, höfðu heildstæða mynd af
því sem verið var að ræða. Skiln-
ingur þeirra á líðan og kjörum
aldraðra og fatlaðra, var víðs-
fjarri. En þær voru því duglegri
við að fletta reglugerðarblöðum,
uppfullum af þröngsýni, þar sem
minnt er á, að þau sem minna mega
sín, hljóti að sæta öðrum lífsstíl og
er höfundunum til lítils sóma. Frá
konunum fjórum kom ekkert
jákvætt í garð fatlaðra, en hamrað
á hve þeim væri meira hampað nú
en áður. Til dæmis færi meira fé
en áður í bílastyrki. Ekki var
minnst á fjölgun styrkþega og
útþynningu styrkja þar af leiðandi.
Þá varð mér hugsað til þess, hve
stjórnarflokkarnir er tilbúnir að
fara niður á lágt plan, til að kreista
upp í milljarða eftirlaunafrum-
varpið, sem almenningur á að
borga, svo þingfólk og embættis-
menn geti lifað í vellystingum síð-
ari hluta ævinnar.
Þegar Ingibjörg Pálmadóttir
færði aldur styrkþega úr 75 árum í
70, mótmælti ég því við Jón Kristj-
ánsson, sem þá var orðinn heil-
brigðiráðherra. Eftir bréfaskriftir
og fundi, hvaðst ég kæra hann
fyrir stjórnarskrárbrot. Þá var
fært aftur í 75 ár, en sá böggull
fylgdi skammrifi, að nú þurftu
fatlaðir að eiga bíla í fimm ár, í
stað tveggja. Þetta lúabragð stenst
lög. Ég hefði því betur setið heima,
því nú er fötluðum nær ógerlegt að
brúa bilið. Ráðherrann spurði hvað
ég áliti almenning yfirleitt eiga
bíla sína lengi. Eftir svar mitt,
spurði hún hversvegna fatlaðir
þyrftu að eiga bíla sína skemur en
aðrir. Ég undraðist skilningsleysið
og gerði mér ljóst, að þessi mann-
eskja yrði að þroskast mikið, til að
frá henni gætu fatlaðir vænst
sanngirni. Það er ekki nóg, að allt
líti vel út, ef tómleiki er hið innra.
Sannleikurinn er sá, að þegar
upp er staðið, kostar það ríkið lítið
meira að gera vel í bílastyrkjamál-
um, en illa. Ef sá ráðgjafi er hjúkr-
unarfræðingur, sem lét á sér skilja,
að samþætting starfsgreina sé
árangursríkari, en að huga að
vellíðan starfsfólks og skjólstæð-
inga, þá er hún stétt sinni til
skammar. Því miður var ráðherr-
ann sammála og greinilegt að for-
stjóravelvild hennar, náði ekki
niður til óbreytts starfsfólks og
skjólstæðinga heilsugæslunnar.
Þetta fólk horfir upp á að engu
skiptir hvern Framsókn setur í
ráðherrastól. Hjúkrunarfræðing-
ar, sjúkraliðar og skjólstæðingar,
hafa sagt mér: (Haft orðrétt eftir
þeim) Að á meðan Framsókn, þessi
andstyggilegi flokkur, sé við völd,
eigi þau engan málsvara hjá hinu
opinbera. Flestu sé trúað sem verst
liðnu forstjórarnir í stétt embætt-
ismanna segi, en sjónarmið starfs-
tétta og fatlaðra hunsuð. Tilvitnun
lýkur. Því geta fleiri en hjúkrunar-
forstjóri og framkvæmdastjóri
Heilsgæslunnar, þakkað Fram-
sókn. En mér skilst, að af þeirra
ráði hafi læknavæddar heilsu-
gæslustöðvar verið lagðar niður
og samþættingargrauturinn orðið
til. Tíðar tilfærslur á stöðvum
heilsugæslunnar og tilraunir með
starfsemina, hafa valdið stórskaða
á þjónustunni, sem nú er ekki svip-
ur hjá sjón miðað við sem áður var.
Hugulsemi gagnvart starfsfólki og
skjólstæðingum, ásamt mannvæn-
um framförum, hefur vikið fyrir
yfirmannahroka.
Tómlát fegurð, dvínar fljótt
í farteskinu okkar.
Fögur innra, sigrar skjótt,
smitar allt og lokkar.
Ráðherra, ráðgjafar og heimahjúkrun
UMRÆÐAN
HEILBRIGÐIS-
KERFIÐ
ALBERT JENSEN
TRÉSMIÐUR
Framsóknarmenn héldu glæsilegt
flokksþing sitt um helgina. Mikil
umfjöllum hefur verið um flokk-
inn og miðað við umræðuna vildu
margir hann feigan. Flokkurinn er
elsti flokkur landsins og stendur
traustum rótum, það kom
glögglega fram á þessu flokks-
þingi. Á því 90 ára tímabili sem
Framsóknarflokkurinn hefur
starfað hafa á annan tug stjórn-
málaflokka lagt upp laupana eða
verið slegið saman við aðra flokka.
Framsóknarflokkurinn hefur
aldrei skipt um nafn eða kennitölu
og reyndar aldrei staðið til. Flokk-
urinn hefur haft gríðarleg áhrif á
framþróun í landinu ekki bara frá
árinu 1995, en á því tímabili hefur
hann verið í farsælu samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn, heldur allt
frá árinu 1916 en á því tímabili
hefur flokkurinn verið í stjórnar-
samstarfi samtals í 60 ár.
Á flokksþinginu var ný forysta
valin. Hinn framfarasinnaði Jón
Sigurðsson hefur nú tekið við for-
mennsku í flokknum og tekur við
stjórninni af leiðtoga okkar, Hall-
dóri Ásgrímssyni, en hann hefur
verið með allra traustustu stjórn-
málamönnum þjóðarinnar. Jón er
m.a. höfundur að háskólauppbygg-
ingunni á Bifröst. Uppbyggingin á
Bifröst er lýsandi dæmi um fram-
sýni Jóns. Á sama hátt trúi ég því
að hann eigi eftir að treysta inn-
viði Framsóknarflokksins. Guðni
Ágústsson er varaformaður og á
mikinn stuðning innan flokksins
enda þrautreyndur stjórnmála-
maður. Sæunn Stefánsdóttir er
ung og efnileg og á framtíðina
fyrir sér. Enginn vafi er á þetta
þríeyki á eftir að vinna vel saman
og efla flokkinn, það er og ósk
flokksmanna.
Það þykir mörgum í meira lagi
spaugilegt að fylgjast með við-
brögðum stjórnarandstöðunnar
þegar hún fjallar um nýja forystu
Framsóknarflokksins. Formaður
Samfylkingarinnar gefur sér það
strax að hér sé ekki um neina
breytingu að ræða. Enginn spyr
hana um hver hafi verið breyting
á Samfylkingunni frá því að hún
velti Össuri Skarphéðinssyni, sem
virtist verða að takast að líma
þessa fjölskrúðugu fylkingu og
afar ólíkra afla saman. Altént er
lítið minnst á turninn sem hún sá í
augsýn og átti að verða mótvægi
við þann turn sem stundum er
talað um þegar fjallað er um
stærsta stjórnmálaflokk þjóðar-
innar. Í augnablikinu virðist sam-
líkingin um turn Samfylkingar-
innar lágreistari en efni stóðu til í
upphafi. Formaður vinstri grænna
finnur það nýjum formanni Fram-
sóknarflokksins það helst til for-
áttu að hann komi úr öðru umhverfi
en menn eiga að venjast í pólitík.
Það kemur reyndar engum á óvart
að fulltrúar vinstri grænna finni
eitthvað til þess að vera á móti og
gera athugasemdir við. Sumir
hafa einnig talað um að nýi for-
maðurinn hafi fengið þessa veg-
semd á silfurfati. Þetta er auðvit-
að fráleit samlíking því hann er
hvattur og kallaður til starfa af
flokksmönnum og stendur í raun-
inni upp úr gullstól í Seðlabankan-
um sem oft hefur verið virðingar-
embætti fyrrverandi
forsætisráðherra íslensku þjóðar-
innar. Ekki er úr vegi að rifja upp
að núverandi formaður vinstri
grænna sóttist eftir formannsemb-
ætti þegar síðast var kosið í það
embætti hjá Alþýðubandalaginu
sáluga. Hann varð undir og þegar
Samfylkingin var stofnuð kaus
hann að stofna sinn eigin flokk.
Samt kom formannsefnið þá úr
„réttu“ umhverfi. Nú er rætt um
kosningabandalag Samfylkingar
og vinstri grænna. Þess vegna má
líkja samhljómi þessara tveggja
foringja stjórnarandstöðunnar við
orðtak Steins Steinarr til minn-
ingar um misheppnaðan tónsnill-
ing. „ Vort líf, vort líf, Jón Pálsson,
er líkt og nóta fölsk.“
Við framsóknarmenn erum
hins vegar tilbúnir að stilla saman
strengi okkar undir öruggri for-
ystu Jóns Sigurssonar og höldum
áfram að gefa þann eina sanna tón
sem verður íslenskri þjóð til sókn-
ar og sóma. Framundan er ný
framsókn elsta stjórnmálaflokks
þjóðarinnar.
Vort líf, vort líf!
UMRÆÐAN
FLOKKSÞING
FRAMSÓKNAR-
FLOKKSINS
ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON
SVEITARSTJÓRI
Hann er mælskur, það verður ekki
tekið af honum. Hann er líka mælsk-
ur þegar hann kemur fram á arabísk-
um sjónvarpsstöðvum og kallar á alla
sanna Araba og múslima til að sam-
einast gegn hættunni sem steðjar af
Bush og Blair. Og hann er mælskur
þegar hann kallar Sýrlandsforseta
eina heiðvirta leiðtoga Araba eða
þegar hann ræðst á þá Líbana sem
hafa gagnrýnt Hizbullah.
Meint peningatengsl hans við
Saddam Hussein eru ekki þau einu
sem hann hefur verið bendlaður við.
Benazir Bhutto og Nawaz Sharif borg-
uðu honum fyrir að verja yfirvöld í
Pakistan á tíunda áratugnum.
Hann er mælskur þegar hann kallar
leiðtoga Vesturlanda verri morðingja
en Hitler og að kapítalisminn hafi
drepið fleiri en nokkuð annað. Nú,
eða þegar hann segir að útlendingar
[Bandaríkjamenn og Ísraelar] séu að
nauðga tveimur af fallegustu dætrum
Araba, Bagdad og Jerúsalem.
Hann er einhver versti tækifær-
issinni breskra stjórnmála og flokk-
urinn hans, öfugmælið RESPECT, er
þar besta dæmið. Þar náðist að safna
saman Trotskyistum (sem Galloway
fram af því hafði alltaf átt í ýmsum
deilum við), múslimum og ýmsum
eftirlegukindum af vinstri vængnum
sem ekki höfðu borið sitt barr eftir
að bylting öreiganna missti stuðning
sinn að austan.
Þetta hagsmunabandalag hefur
síðan í kjölfarið færst nær múslimska
hluta bandalagsins, gömlu vinstri-
mönnunum til nokkurrar gremju,
þar sem jafnréttismálum hefur verið
sópað undir teppi til að höfða betur
til íhaldssamra múslima, bæði í
London og Birmingham, en helsti
leiðtogi flokksins er engu að síður
ein kona. Benda óánægjuraddirnar
innan RESPECT á að George hefur t.d.
forðast að kjósa í Westminster þegar
jafnréttismál eru á dagskrá, sér í lagi
varðandi kynhneigð. RESPECT stend-
ur fyrir Respect, Equality, Socialism,
Peace, Environmentalism, Commun-
ity og Trade union. Finnst mörgum,
þ.m.t. þeim sem studdu fylkinguna í
upphafi, að flest af þessu hafi setið á
hakanum í stefnuskrá flokksins og t.d.
er ekki lengur opinber stefna hans
jafnrétti óháð kynhneigð. Femínistar
kvarta undan því sama.
Gagnrýnendur innan flokksins
hafa sumir verið opinberlega sak-
aðir um íslamafóbíu þegar þeir hafa
gagnrýnt aukna félagslega íhaldssemi
í flokknum.
Aukinheldur hafa nokkrir blaða-
menn, sumir gyðingar, ásakað bæði
RESPECT og Galloway um óbeinan
antisemítisma í ræðu og riti, þ.m.t. á
kosningafundum meðal múslima.
Ágúst Flygenring á semsagt.net
Af hverju George Galloway er
hræðilegur stjórnmálamaður
GEORGE GALLOWAY
FLOKKSÞING FRAMSÓKNAR Halldór Ásgrímsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins,
óskar Jóni Sigurðssyni, nýkjörnum formanni flokksins, til hamingju.
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS