Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 72
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR48
Tónlistarmaðurinn Pétur
Ben heldur tónleika í Iðnó
í kvöld í tilefni af útgáfu
fyrstu plötu sinnar, Wine
For My Weakness, sem kem-
ur út hjá 12 Tónum í dag.
Öll lögin á plötunni eru frumsam-
in og fóru upptökur að mestu fram
í Sundlauginni undir stjórn Péturs
og Bigga Poolboy sem sá einnig
um allan lokafrágang. Platan inni-
heldur ellefu lög og hefur eitt
þeirra, White Tiger, þegar fengið
að hljóma í útvarpi.
Áhrif frá Neil Young og Dylan
„Ég hef verið með þetta efni í
handraðanum. Svo eftir að ég
kláraði „sándtrakkið“ við Börn á
vordögum fór ég á fullt í að klára
plötuna,“ segir Pétur Ben.
Hann segist fara um víðan völl
á plötunni og taki m.a. áhrif frá
Neil Young, Bob Dylan, Ninu Sim-
one og Radiohead. „Hún er svolít-
ið þjóðlagaskotin og líka rokkuð á
köflum. Svo fer hún niður í strengi
og kassagítar og þannig hugguleg-
heit,“ segir Pétur sem naut m.a.
aðstoðar trommarans Sigtryggs
Baldurssonar á plötunni. Einnig
syngur þar konan hans Péturs,
Anna Kristín Guðmundsdóttir.
Ómetanlegur Mugison
Þó svo að Pétur hafi ekki gefið út
plötu áður hefur hann verið á kafi í
tónlistinni undanfarin ár. Hann
hefur samið tónlist fyrir leikhús
auk þess sem hann samdi eins og
áður segir tónlistina við nýjustu
mynd Ragnars Bragasonar, Börn,
sem er væntanleg í kvikmyndahús
í næsta mánuði. Auk þess hefur
hann unnið töluvert með Mugison
og bæði spilað með honum á tón-
leikum og á plötunni Mugimama is
this Monkeymusic? Mugison kemur
þó hvergi við sögu á Wine for my
Weakness. „Hann hefur mest verið
andlegur stuðningur því hann hefur
svo mikið að gera sjálfur. En ég
notaði hann samt og var að fá hann
í heimsókn til að hlusta og síðan var
hann að ráðleggja mér með umslag-
ið á plötunni. Hann var algjörlega
ómetanlegur þótt hann spilaði ekk-
ert á þessari plötu.“
Pétur játar að vinnan við leik-
hús- og kvikmyndatónlistina eigi
sinn þátt í fjölbreytni plötunnar.
Einnig hafi tónsmíðamenntun
hans úr Tónlistarskóla Reykjavík-
ur komið að góðum notum en hann
lauk námi þaðan vorið 2004.
Sjálfsbaráttuplata
Pétur segir að platan sé nokkurs
konar sjálfhjálparmeðal, eins og
nafnið Wine for my Weakness
gefur til kynna. „Ég hef verið að
lækna sjálfan mig af eigin krank-
leikum. Eru ekki allir meingallað-
ir,“ segir hann í léttum dúr og
bætir við: „Þetta er fyrst og fremst
sjálfsbaráttuplata.“ Útgáfutón-
leikarnir í Iðnó í kvöld hefjast
klukkan 22.00 og er aðgangseyrir
1000 krónur. freyr@frettabladid.is
Sjá umsögn um plötu Péturs á bls. 52
Í baráttu við sjálfan sig
PÉTUR BEN Tónlistarmaðurinn Pétur Ben heldur útgáfutónleika í kvöld í tilefni af sinni fyrstu plötu, Wine for my Weakness.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hasarmyndaleikarinn Jackie Chan
á í viðræðum við kínverska leik-
stjórann Zhang Yimou um að þeir
geri nýja mynd saman. Enn sem
komið er hafa þeir þó ekki fundið
rétta handritið.
Zhang er þekktur fyrir myndir
á borð við Hero og House of Flying
Daggers. Hann hefur tvívegis
unnið Gullna ljónið á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum.Nýjasta mynd
hans nefnist Curse of the Golden
Flower. Með aðalhlutverk í henni
fara Gong Li og Chow Yun-fat.
Chan ræðir
við Yimou
JACKIE CHAN Hasarmyndaleikarinn Jackie
Chan ætlar að starfa með Zhang Yimou.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Leikarinn David Hasselhoff hefur
nú fallið fyrir Lundúnum og langar
helst að flytja þangað. Hasselhoff er
nýskilinn og er á
leiðinni til London á
næstunni til að leita
sér að húsnæði í
Chelsea eða Rich-
mond.
Síðustu tvær
ferðir hans til borg-
arinnar hafa hins
vegar ekki gengið
vel, í fyrra skiptið
var honum ekki
hleypt upp í flugvél
á Heathrow sökum ofurölvunar og í
seinna skiptið fór hann á spítala með
einkennilegt raksturssár á hendi.
Féll fyrir
Lundúnum
HASSELHOFF
Nýskilin og vill
flytjast búferlum
frá Þýskalandi til
Englands.
Leikonan Kate Hudson hefur dreg-
ið sig út úr kynningarherferð nýj-
ustu kvikmyndar sinnar „You, me
and Dupree“ um heiminn þveran
og endilangan um þessar mundir.
Ástæðan mun vera vegna þess að
mikið hefur gerst í hennar einkalífi
upp á síðkastið og segist hún ekki
geta haldið andliti lengur.
Hudson skildi við mann sinn
Chris Robinson eftir sex ára hjóna-
band fyrir stuttu og aðeins nokkrum
dögum seinna kom fram að Hudson
ætti í ástarsambandi við meðleikara
sinn í kvikmyndinni, Owen Wilson.
Hudson er hrædd um að það eina
sem hún þurfi að tala um við blaða-
menn sé einkalífið og segist hún ein-
faldlega ekki hafa orku í það.
Lokar sig af
KATE HUDSON Leikkonan hefur gengið í
gegnum margt að undanförnu og hefur
dregið sig út úr herferðinni í kringum nýj-
ustu mynd sína You, me and Dupree.
Athafnakonan unga Nicole Rich-
ie hefur verið mikið í slúðurpés-
um upp á síðkastið vegna holda-
fars síns. Þegar hún skaust fram
í sviðsljósið ásamt fyrrverandi
vinkonu sinni Paris Hilton í
sjónvarpsþáttunum Simple Life
var hún heilbrigð ung stúlka en
svo fór að halla undir fæti og er
hún búin að grennast svakalega
á stuttum tíma eins og myndirn-
ar sýna.
Nicole Richie neitar þó stað-
fastlega að hún þjásit af hinum
hræðilega sjúkdómi lystarstoli
og segir ástæðuna fyrir kílóa-
hruninu vera stress og tauga-
veiklun sem veldur því að hún
missir matarlystina.
Þetta þykir mjög slæmt þar
sem Richie er mikil fyrirmynd
ungra stelpna og þyngdartap
hennar ekkert sem unglings-
stúlkur ættu að herma eftir.
Richie segist þó borða eins mikið
og hún getur til þess að þyngja
sig og af myndunum að dæma
mun þarf mikið til.
ÁGÚST 2006 Þetta eru nýjustu myndirnar
sem hafa verið teknar af Richie og eins
og sjá má er hún gjörsamlega að hverfa.
Slúðurblöðin hamast á því að sýna nýjar
og nýjar myndir af henni og segja hana
þjást af lystarstoli en hún neitar því. Dæmi
hver fyrir sig.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Nicole Richie er að hverfa
APRÍL 2005 Aðeins nokkrum mánuð-
um síðar er Richie orðin tálguð á öllum
líkamanum. Það slettist upp á vinskapinn
hjá henni og Hilton og hún verður meira
áberandi á rauða dreglinum.
NÓVEMBER 2004 Hér er Richie búin að
missa nokkur kíló en segir þó við fjölmiðla
að hún sé í átaki með einkaþjálfara.
ÁGÚST 2003 Svona leit Richie út þegar
hún byrjaði í sjónvarpsþáttunum vinsælu
Simple Life. Heilbrigð og sælleg.
Ólafur Geir Jónsson, fyrr-
verandi Herra Ísland,
hefur ásamt vini sínum,
Árna Árnasyni, keypt
herradeildina í Gallerí
Keflavík, sem opnar á
ný eftir breytingar á
morgun. „Guðrún Jóns-
dóttir hefur átt og rekið
Gallerí Keflavík undan-
farin þrjú ár og það má
líklega segja að ég hafi
verið hennar stærsti
viðskiptavinur í
herradeildinni,“
segir Ólafur Geir
og bætir við:
„Einhvern tíma
spurði hún mig
að því í ein-
hverju gríni
hvort ég vildi
ekki bara kaupa
alla herradeildina.
Ég hló nú bara og
gerði ekkert í því fyrr en ég fór að
ræða þetta við Árna, vin minn. Við
ákváðum síðan að skella okkur
bara á þetta og keyptum deild-
ina.“
Vinirnir hafa nú ráðist í breyt-
ingar og stækkun á herradeild
verslunarinnar og munu bjóða upp
á meira vöruúrval en verið hefur.
„Við erum búnir að vera að stúss-
ast mikið í búðinni undanfarið.
Settum upp plasma-sjónvarp og
plexígler og fleira.“ Gallerí Kefla-
vík er rekið í nánu samstarfi við
NTC-veldið en allar vörur eru
teknar inn í gegnum NTC. „Við
verðum með bestu merkin í búð-
inni hjá okkur eins og Diesel,
4You, Energy, Matinique og
margt fleira,“ segir Ólafur Geir
og bætir því við að þeir félagar
hafi líklega aldrei verið eins
spenntir fyrir neinu eins og þessu
nýja verkefni. „Nú erum við að
byggja upp okkar eigin verslun og
erum uppfullir af áhuga,“ segir
fyrrum Herra Ísland glaður. - sig
MIKIÐ AÐ GERA Ólafur Geir er
athafnasamur maður en auk
þess að eiga og reka nú
herradeild Gallerí Kefla-
víkur er hann einnig
skemmtanastjóri á
skemmtistaðnum
Keypti herrafataverslun í Keflavík
VINSÆLL Óli Geir nýtur mikilla vinsælda í
Keflavík og á eflaust eftir að slá í gegn á
nýjum vettvangi.