Fréttablaðið - 24.08.2006, Page 78
54 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs
Hauka í körfuknattleik, hafnaði á dögun-
um tilboði frá litháísku meisturunum
Lietuvos Rytas en þeir vildu fá Ágúst
sem aðstoðarþjálfara hjá liðinu. Eftir
mikla og langa yfirlegu ákvað Ágúst
að hafna tilboðinu þó það hafi verið
freistandi enda hér á ferðinni eitt besta
lið í Evrópu.
„Það var vissulega mjög erfitt að
segja nei en aðstæður hjá mér í dag
bjóða ekki upp á að ég flytji utan með
skömmum fyrirvara. Það er mjög spenn-
andi vetur framundan með Haukunum
þar sem við ætlum aftur í Evrópukeppni
og svo er ég að setja upp körfuboltaaka-
demíu hjá Flensborg ásamt fleiru. Það
er því nóg að gera hjá mér,“ sagði Ágúst
við Fréttablaðið í gær en hann var þá að
fylgjast með leik Bandaríkjanna og Ítalíu
á HM í körfubolta.
Ágúst dvaldi í Litháen í einn og
hálfan mánuð í sumar en hann fór
utan til að gifta sig
en konan hans er frá
Litháen. Ágúst er ekki
ókunnugur í landinu
því hann dvaldi í land-
inu veturinn 2003-2004
en hann var þá að
vinna hjá þessu félagi
sem sjálfboðaliði.
„Þetta er frábært tækifæri
enda hefði ég getað unnið
eingöngu við körfubolta og
það á fínum launum. Það sem
ég stefni að er að komast út í að
þjálfa á fullum launum en þeir
héldu hurðinni opinni og svo gæti
farið að staðan verði enn í boði
næsta vor. Það gerði mér auð-
veldara fyrir að hafna tilboðinu
núna, annars hefði ég hugsan-
lega stokkið á tækifærið. Ann-
ars er mér líka sýndur mikill
heiður með þessu tilboði
því það eru hundruðir
þjálfara í Litháen sem
eru á höttunum eftir
slíku tækifæri,“ sagði
Ágúst en hann hafnaði
öðru tilboði frá Litháen
fyrr í sumar en það félag
var hvorki eins stórt né
eins gott og Lietuvos
Rytas.
ÁGÚST BJÖRGVINSSON KÖRFUKNATTLEIKSÞJÁLFARI: VINSÆLL Í LITHÁEN
Hafnaði tilboði frá litháísku meisturunum
FÓTBOLTI Það lá fyrir í upphafi
sumars að Hrafn Davíðsson, mark-
vörður ÍBV, gæti ekki leikið síð-
ustu leiki sumarsins fyrir ÍBV og
því hafði félagið út júlímánuð að
finna nýjan markvörð en þá lokaði
félagaskiptamarkaðurinn. Það
tókst ekki hjá ÍBV og því standa
eftir hinn 23 ára gamli Guðjón
Magnússon, sem er reynslulaus,
og 15 ára markvörður úr 3. flokki.
Samninga- og félagaskipta-
nefndin hafnaði beiðni Eyjamanna
á þeirri forsendu að engin „neyð-
arstaða“ væri komin upp þar sem
félagið ætti fullþroskaðan mark-
vörð sem hefði setið á bekk félags-
ins í nokkurn tíma. Undanþágu-
ákvæðið væri neyðarúrræði og
þetta atvik flokkast ekki sem
neyðarstaða að mati nefndarinn-
ar.
„Þeir greinilega telja 15 ára
leikmann gjaldgengan í efstu deild
og telja að hann sé búinn að taka
út nægan þroska til að spila með
fullorðnum mönnum. Við treyst-
um Guðjóni til að spila en erum
ekki vissir um að sá 15 ára geti
höndlað álagið ef eitthvað kemur
fyrir Guðjón,“ sagði Viðar hund-
fúll en hann setur augljóslega ekki
sama skilning á málið og KSÍ.
Hann vill meina að það sé neyðar-
ástand ef aðeins einn markvörður
af tveimur hefur enga reynslu en
KSÍ segir nóg að annar af parinu
hafi reynslu.
Birkir Sveinsson, starfsmaður
nefndarinnar hjá KSÍ, sagði við
Fréttablaðið í gær að færi svo að
eitthvað kæmi fyrir Guðjón þá
væri kominn upp önnur staða sem
gæti leitt til þess að ÍBV fengi
undanþágu fyrir nýjan markvörð.
Á vefnum sudurland.is ásakaði
Viðar KSÍ um að reyna að koma
ÍBV úr efstu deild.
„Þeir hjá KSÍ virða þessa skoð-
un okkar einskis og að mínu mati
vinna þeir að því öllum árum að
ÍBV falli um deild,“ sagði Viðar
við vefinn en hann gekk ekki eins
langt er Fréttablaðið ræddi við
hann í gær.
„Ég er ekki ánægður með KSÍ,
hvernig get ég verið ánægður með
þessi vinnubrögð? Ég veit að það
eru engir Vestmannaeyingar í
þessari nefnd,“ sagði Viðar en
telur hann að verið sé að vinna
markvisst gegn ÍBV. „Ég veit að
minnsta kosti að liðunum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu myndi ekk-
ert leiðast að koma okkur út úr
deildinni. Mér heyrist að það sé
stundum vandamál að fljúga eina
ferð til Eyja á ári.“
henry@frettabladid.is
Félögin yrðu eflaust fegin
að losna við ferð til Eyja
Viðar Elíasson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, er hundfúll út í KSÍ eftir að
undanþágubeiðni þeirra um nýjan markvörð var hafnað.
UNGUR OG ÓREYNDUR Hinn 23 ára gamli
Guðjón Magnússon er fyrsti kostur þar sem
Hrafninn er floginn.
SKILUR EFTIR SIG STÓRT SKARÐ Hrafn Davíðsson stóð sig vel í Eyjamarkinu í sumar og hans
skarð er augljóslega vandfyllt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Svo gæti farið að gamla
kempan Birkir Kristinsson standi
í marki Eyjamanna gegn KR í
kvöld. Eyjamenn eru í mar-
kvarðavandræðum þar sem
Hrafn Davíðsson er farinn til
Bandaríkjanna og varamaður
hans, Guðjón Magnússon, er
óreyndur. ÍBV er í vondri stöðu í
deildinni og þarf að hafa sig alla
við til að halda sætinu í deildinni.
„Þeir eru búnir að margreyna
að fá mig en ég segi alltaf nei.
Reyndar er ekki hægt að neita því
að ég er farinn að skoða málið af
meiri alvöru eftir því sem nær
dregur leiknum,“ sagði Birkir við
Fréttablaðið í gær. „Þetta er engin
óskastaða og ég ætlaði ekki að
koma mér í þessa stöðu enda hef
ég lítið sem ekkert æft síðasta
árið. Því er samt ekki að neita að
Eyjahjartað slær alltaf og ég vil
allt fyrir félagið gera. Við sjáum
hvað setur.“
Ferill Birkis endaði á leiðin-
legan hátt gegn FH í júlí í fyrra
þegar herðablaðið klofnaði og
hann hefur verið heilt ár að jafna
sig af þeim meiðslum.
„Líkaminn er annars í ágætu
standi, það virðist vera alveg
sama hvað maður borðar mikið,“
sagði Birkir sem neitaði því að
vera búinn að taka endanlega
ákvörðun þegar Fréttablaðið
ræddi við hann. Til stóð að æfa
seinnipartinn og taka síðan
ákvörðun.
Hinn ungi og óreyndi Guðjón
Magnússon er í erfiðri stöðu þar
sem leikirnir framundan eru
mjög mikilvægir og svo virðist
hann ekki njóta mikils trausts
manna í Eyjum. Hann lætur það
ekki trufla sig.
„Ég er klár ef kallið kemur
enda er ég í þessu til að spila.
Sjálfstraustið er í lagi og maður
verður að hafa bein í nefinu og
sýna hvað í sér býr þegar maður
fær tækifærið. Annars er ekki
alveg komið á hreint hvort ég
spili,“ sagði Guðjón. - hbg
Eyjamenn pressa stíft á gömlu kempuna Birki Kristinsson að klára sumarið með þeim í markinu:
Engin óskastaða en vil allt fyrir félagið gera
BIRKIR KRISTINSSON Gæti snúið til baka á
KR-vellinum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Fimmtánda umferð
Landsbankadeildar karla hefst í
kvöld með þremur leikjum. KR
mætir ÍBV vestur í bæ, ÍA tekur á
móti Keflavík og Grindavík og
Víkingur mætast suður með sjó.
Umferðinni lýkur síðan á sunnu-
dag þegar FH tekur á móti Breiða-
blik og Valsmenn heimsækja Fylki
í Árbæinn.
Allt eru þetta áhugaverðir leik-
ir enda spennan á botni deildar-
innar hreint ótrúleg. ÍA og ÍBV
eiga mest undir enda sitja þau á
botninum með 14 stig en þau mæt-
ast síðan í 17. umferð í leik sem
gæti skorið úr um framtíð þeirra.
Leikir kvöldsins hefjast allir
klukkan 18 og verða í beinni
útsendingu á Boltavakt Vísis.
Landsbankadeild karla:
Þrír leikir
í kvöld
SKAGAMENN Mega ekki við því að tapa
stigum gegn Keflavík í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI
FH 14 9 3 2 24-11 30
KEFLAVÍK 14 6 4 4 27-15 22
VALUR 14 5 6 3 21-14 21
KR 14 6 2 6 15-25 20
VÍKINGUR 14 5 4 5 19-11 19
FYLKIR 14 5 4 5 20-20 19
GRINDAVÍK 14 4 5 5 21-19 17
BREIÐABLIK 14 5 2 7 21-28 17
ÍA 14 4 2 8 19-25 14
ÍBV 14 4 2 8 13-32 14
> Við mælum með...
að forráðamenn ÍBV í knattspyrnu líti í
eigin barm og hætti að væla yfir því að
þeir fái vonda og ósanngjarna meðferð
hjá starfsmönnum KSÍ í Laugardal. Sem
og að allir
séu á móti
þeim og
vilji þá
niður í
1. deild.
Þeir vissu
í marga
mánuði að
þeir yrðu að
ná sér í nýjan
markvörð og
hvaða tíma þeir
hefðu til þess. Það er
dapurt að horfa upp á slíkan málflutn-
ing því sú staða sem komin er upp er
engum að kenna nema nákvæmlega
þeim sjálfum.
FÓTBOLTI Jose Mourinho er allt
annað en sáttur við Knattspyrnu-
samband Evrópu sem ákvað að
setja ensku meistarana í 2. styrk-
leikaflokk fyrir dráttinn í riðla-
keppni meistaradeildar Evrópu
sem fram fer í dag. Í fyrsta styrk-
leikaflokki eru Barcelona, AC
Milan, Inter Milan, Real Madrid,
Valencia, Manchester United,
Liverpool og Arsenal.
„Inter Milan er sett í flokk fyrir
ofan okkur þó að við séum enskir
meistarar en Inter endaði í 3. sæti
á Ítalíu,“ sagði Mourinho. Uppröð-
un UEFA í flokka fer eftir frammi-
stöðu liðanna í Evrópukeppnum
síðustu fimm ár og einnig er tekin
inn í frammistaða landsliða land-
anna sem liðin koma frá. Liver-
pool og Arsenal þurftu t.d. að fara
í gegnum forkeppni til að komast í
riðlakeppnina að þessu sinni en
þau lið eru sett fyrir ofan Chelsea
vegna árangurs þeirra í Evrópu-
keppninni síðustu fimm ára. - dsd
Mourinho illur út í UEFA:
Chelsea gæti
mætt Barca
JOSE MOURINHO Er ekki sáttur þessa
dagana með störf UEFA.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Adriano Galliani, varafor-
seti AC Milan, flaug í gær til Madr-
id til viðræðna við forráðamenn
Real Madrid um hugsanleg kaup á
brasilíska sóknarmanninum Ron-
aldo. „Við vitum að Ronaldo hefur
áhuga á að koma til okkar en fyrst
þurfum við að ræða við Real Madr-
id,“ sagði Galliani en Ronaldo lék á
sínum tíma fimm leiktíðir með hinu
Mílanó-liðinu, Internationale.
Carlos Teves hefur einnig verið
orðaður við AC Milan en eflaust
verða nokkrir leikmenn til viðbót-
ar orðaðir við þá þar til lokað verð-
ur fyrir leikmannakaup 31. ágúst
nk. - dsd
Ronaldo:
Hugsanlega á
leið til Milan
RONALDO Gæti verið á leiðinni aftur til
Ítalíu þar sem hann lék í 5 ár með Inter.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Tap gegn Slóvökum
Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu,
skipað leikmönnum átján ára og yngri,
tapaði í gær fyrir Slóvakíu, 3-1, á alþjóð-
legu móti sem fer fram í Tékklandi þessa
dagana. Oddur Ingi Guðmundsson kom
Íslandi yfir snemma leiks en Slóvakar
skoruðu þrívegis áður en leiknum lauk.
Næsti leikur liðsins verður á morgun
gegn Póllandi.