Fréttablaðið - 24.08.2006, Side 82
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR58
Fylkir - handknattleiksdeild
Handknattleiksdeild Fylkis óskar eftir að ráða metnaðarfullan og
áhugasaman þjálfara fyrir 4.fl okk kvenna fyrir tímabilið 2006-2007.
Hægt er að senda inn umsóknir á rafrænu formi á netfangið
fylkir@fylkir.com.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jensson í síma 695-8843
FÓTBOLTI KSÍ og Landsbankinn
boðuðu í gær til blaðamannafund-
ar í húsakynnum Knattspyrnu-
sambands Íslands þar sem áheitið
„skorað fyrir gott málefni“ var
kynnt.
Landsbankinn mun greiða
25.000 krónur fyrir hvert skorað
mark í 15. umferð Landsbanka-
deildar karla og 30.000 krónur
fyrir hvert skorað mark í Lands-
bankadeild kvenna. Neistinn,
styrktarfélag hjartveikra barna,
mun njóta góðs af áheitunum að
þessu sinni. Upphaflega ætlaði
Landsbankinn að hafa sömu upp-
hæð í Landsbankadeild karla og
kvenna en Björgólfur Guðmunds-
son, formaður bankaráðs, ákvað
að breyta upphæðinni úr 25.000
krónum í 30.000 krónur á miðjum
blaðamannafundi. „Mörkin eru
bara svo miklu fallegri í kvenna-
boltanum,“ sagði Björgólfur á
fundinum í gær. Eins og áður sagði
verður afrakstur áheitanna að
þessu sinni gefinn Neistanum,
styrktarfélagi hjartveikra barna,
en Landsbankinn lætur ekki þar
við sitja heldur fær styrktarfélag-
ið einnig boðsmiða á leiki í Lands-
bankadeildinni í þessari umferð.
„Þetta er bara okkar framlag
til góðs málstaðar,“ sagði Björ-
gólfur. Landsbankinn stefnir að
því að hafa þetta reglulegan við-
burð og framhald verður á þessu
verkefni á næstu leiktíð. „Tilefnið
er það að bankinn er 120 ára á
þessu ári og við höfum verið að
styrkja ýmis málefni. Við höfum
reynt að tengja þetta við fótbolt-
ann því við erum aðalstyrktaraðil-
inn við fótboltann í landinu í
Landsbankadeildinni og svo held
ég að við komum nálægt því að
styrkja flest félög á landinu í yngri
flokkum og fleira,“ sagði Björgólf-
ur um ástæðuna fyrir þessu góða
framtaki.
„Þetta er frábært framtak hjá
Landsbankanum og gaman að geta
tekið þátt í þessu. Það er gaman að
vita það að með hverju marki sem
maður skorar er tvöföld ánægja,
að styrkja veik börn og að skora
mark,“ sagði markahæsti leikmað-
ur Landsbankadeildar kvenna,
Margrét Lára Viðarsdóttir.
- dsd
BANKASTJÓRINN Björgólfur Guðmundsson kynnti „skorað fyrir gott málefni“ í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rausnarleg gjöf Landsbankans til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna:
Landsbankinn borgar fyrir hvert markFRJÁLSAR Á þriðjudaginn var heims- og ólympíumeistarinn í 100 m hlaupi, Justin Gatlin, dæmdur í
8 ára keppnisbann vegna lyfja-
notkunar eftir að testosterón
greindist í sýni hans, en þetta var
í annað skipti sem Gatlin fellur á
lyfjaprófi. Bandaríska frjáls-
íþróttasambandið ákvað að stytta
bannið niður í 4 ár með því skil-
yrði að Gatlin tæki að sér störf
fyrir sambandið í baráttu þess
gegn notkun ólöglegra lyfja. Í gær
gaf Alþjóðafrjálsíþróttasamband-
ið, IAAF, út þá yfirlýsingu að 4 ár
væru algjört lágmark, en IAAF
hefur vald til þess að ógilda
ákvörðun Bandaríska frjáls-
íþróttasambandsins. - dsd
Justin Gatlin:
Lágmark fjög-
ur ár í bann
JUSTIN GATLIN Er í mjög slæmum málum
þessa dagana. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Meistaradeild Evrópu
MLADA BOLESLAV-GALATASARY 1-1
STEAUA BÚKAREST-STANDARD 2-1
FK RABOTNICKI-LILLE 0-1
FENERBAHCE-DYNAMO KIEV 2-2
RUZOMBEROK-CSKA MOSKVA 0-2
AJAX-FC KAUPMANNAHÖFN 0-2
LEGIA WARSZAWA-SHAKTAR DONETSK 2-3
AEK-HEARTS 3-0
SPARTAK MOSKVA-SLOVAN LIBERCIC 2-1
CHIEVO-LEVSKI SOFIA 2-2
ARSENAL-DINAMO ZAGREB 2-1
Feitletruð lið eru komin áfram í riðlakeppnina.
Enska úrvalsdeildin
ASTON VILLA-READING 2-1
0-1 Doyle (4.), 1-1 Angel, víti (33.), 2-1 Barry (61.)
MANCHESTER CITY-PORTSMOUTH 0-0
CHARLTON-MANCHESTER UNITED 0-3
0-1 Fletcher (49.), 0-2 Saha (80.), 0-3 Solskjær
(90.).
MIDDLESBROUGH-CHELSEA 2-1
0-1 Shevchenko (16.), 1-1 Pogatetz (80.), 2-1 Vid-
uka (90.).
BLACKBURN-EVERTON 1-1
1-0 McCarthy (50.), 1-1 Cahill (84.).
FULHAM-BOLTON 1-1
0-1 Diouf, víti (72.), 1-1 Bullard, víti (90.).
FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í
norsku úrvalsdeildinni í gær þegar
Lyn tók á móti Lilleström. Síðar-
nefnda liðið hefði getað tryggt sér
toppsæti deildarinnar með sigri
og komust gestirnir yfir snemma
leiks áður en Stefán Gíslason jafn-
aði metin fyrir Lyn úr vítaspyrnu.
Leikmaður Lilleström fékk svo að
líta rauða spjaldið seint í fyrri
hálfleik fyrir að slá til Stefáns en
engu að síður komst Lilleström í 3-
1 á 57. mínútu. Lyn klóraði í bakk-
ann tíu mínútum síðar og Stefán
skoraði síðan aftur þegar þrjár
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma og tryggði
því jafnteflið og missti Lilleström
því af toppsætinu. - esá
Lyn-Lilleström:
Stefán skoraði
tvívegis
FÓTBOLTI Marel Baldvinsson hefur
komist að samkomulagi við norska
úrvalsdeildarliðið Molde um að
ganga til liðs við félagið og leika
með því næsta tvö og hálfa árið.
Marel var í gær staddur í Nor-
egi þar sem hann gekkst undir
læknisskoðun en hann var þá
þegar búinn að ganga frá öllum
samningsatriðum. En til þess að
samningurinn tæki gildi þurftu
læknar liðsins að gefa grænt ljós á
Marel sem hefur átt í miklum
meiðslavandræðum á sínum knatt-
spyrnuferli.
Marel fékk að vita í gærkvöldi
að hann hefði staðist læknisskoð-
unina og væri því orðinn fullgild-
ur leikmaður Molde og leikur hann
því sinn síðasta leik með Breiða-
bliki um helgina.
Framkvæmdastjóri Molde,
Tarje Nordstrand Jacobsen, segir
í samtali við Romsdals Budstikke
að það hafi kostað sitt að styrkja
leikmannahópinn. „Við náðum
samkomulagi um langan samning
og því fjárfestum við nokkrum
milljónum í þessi viðskipti. Ramm-
inn sem við settum okkur var 2-3
milljónir en ég vil ekki segja hvort
kaupverðið hafi verið undir eða
yfir þvi.“
Jacobsen vísar vitanlega í
norskar krónur og má því áætla að
Marel hafi kostað á bilinu 20-30
milljónir íslenskra króna.
Marel lagðist í október í fyrra
undir hnífinn vegna meiðsla sinna
og var áður búinn að gefa út að
hann taldi sig ekki geta farið út í
atvinnumennskuna á nýjan leik.
Þetta hafi hann tilkynnt forráða-
mönnum Molde og að hann gæti í
mesta lagi æft einu sinni á dag.
„Ég tel að við höfum ekki keypt
köttinn í sekknum,“ sagði Jacob-
sen. „Ég tel að kaupin séu ekki
verri en þau sem við höfum áður
gert á leiktíðinni.“ - esá
MAREL BALDVINSSON Spilar með Molde
næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ
Marel Baldvinsson stóðst læknisskoðun í Molde í gær:
Marel kostaði 20-30 milljónir
FÓTBOLTI Hannes Þ. Sigurðsson
staðfesti við Fréttablaðið í gær að
hann vilji fara frá Stoke City sem
leikur í ensku 1. deildinni. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa norsk lið mikinn áhuga á að
klófesta kappann.
„Hér fæ ég lítið að spila og því
vil ég komast til félags þar sem ég
fæ að spila fótbolta. Um það snýst
heila málið,“ sagði Hannes í gær.
Hann vissi af áhuga einhverra liða,
ekki bara í Noregi. „Ég býst þó
ekki við að ég fari aftur til Nor-
egs,“ sagði Hannes sem lék með
Viking áður en hann hélt til Eng-
lands. Tony Pulis er knattspyrnu-
stjóri Stoke City.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að Molde hafi gert Stoke tilboð í
síðustu viku og nú sé Frederikstad
að bera víurnar í Hannes. - esá
Hannes Þ. Sigurðsson:
Vill burt frá
Stoke City
FÓTBOLTI Ensku meistararnir í
Chelsea sóttu Middlesbrough heim
á Riverside-leikvanginn í gær og
það var Úkraínumaðurinn Andriy
Shevchenko sem skoraði fyrsta
mark leiksins á 16. mínútu eftir
sendingu frá Wayne Bridge. Á 80.
mínútu fékk Middlesbrough svo
aukaspyrnu og upp úr henni skor-
aði Emanuel Pogatetz með skalla,
1-1. Mark Viduka, sem hafði komið
inn á sem varamaður í síðari hálf-
leik, skoraði síðan sigurmark
Middlesbrough á 90. mínútu. Loka-
tölur urðu 2-1 fyrir Middles-
brough.
Hermann Hreiðarsson var í
byrjunarliði Charlton sem tók á
móti Manchester United á The
Valley í gær. Þetta var fyrsti leik-
urinn sem Ian Dowie stýrði á
heimavelli Charlton frá því að
hann tók við liðinu af Alan Curbis-
hley. Fyrsta markið kom á 49. mín-
útu þegar Darren Fletcher lék á
varnarmann Charlton og þrumaði
knettinum í netið. Charlton átti að
fá vítaspyrnu stuttu síðar þegar
Hermann Hreiðarsson átti skalla
að marki sem fór klárlega í hönd
leikmanns Manchester United en
ekkert var dæmt. Louis Saha kom
Manchester United í 2-0 með
glæsilegu skoti á 80. mínútu eftir
mistök hjá varnarmönnum Charl-
ton. Ole Gunnar Solskjær rak svo
síðasta naglann í kistuna þegar
hann skoraði þriðja markið á 90.
mínútu leiksins af stuttu færi.
Það var fjör á Villa Park í Birm-
ingham þar sem Aston Villa tók á
móti nýliðunum í Reading. Ívar
Ingimarsson var í byrjunarliði
Reading og Brynjar Björn Gunn-
arsson kom inn á sem varamaður
á 36. mínútu. Kevin Doyle kom
Reading yfir á 4. mínútu en á
þeirri 34. var dæmd vítaspyrna á
Reading þegar Ibrahima Sonko
braut á Luke Moore og fékk að líta
rauða spjaldið í kjölfarið. Angel
skoraði úr vítaspyrnunni og jafn-
aði þar með metin, 1-1. Aston Villa
komst svo yfir á 64. mínútu þegar
Gareth Barry skoraði með skalla
eftir sendingu frá Peter Whitting-
ham og það urðu lokatölur leiks-
ins.
Blackburn og Everton gerðu 1-
1 jafntefli þar sem Tim Cahill jafn-
aði fyrir Everton á 84. mínútu eftir
að Benedict McCarthy hafði komið
Everton yfir í byrjun síðari hálf-
leiks.
Það voru tvær vítaspyrnur
dæmdar í leik Fulham og Bolton. Á
73. mínútu skoraði El-Hadji Diouf
úr vítaspyrnu og kom Bolton yfir
en á síðustu mínútu leiksins jafn-
aði Jimmy Bullard metin, 1-1.
Manchester City og Portsmouth
gerðu markalaust jafntefli í
Manchester.
Í Meistaradeildinni lenti Arsen-
al undir í fyrri hálfleik gegn
Dynamo Zagreb en tvö mörk undir
lok leiksins tryggði þeim ensku
sæti í riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar. Ljungberg og Flamini
skoruðu mörk Arsenal.
- dsd
MARK VIDUKA Ástralinn stóð undir nafni í gær þegar hann skoraði sigurmark Middlesbrough gegn Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
Chelsea tapaði aftur fyrir Boro
Annað árið í röð biðu Englandsmeistarar Chelsea ósigur gegn Middlesbrough á Riverside-vellinum. Shev-
chenko kom Chelsea yfir en tvö mörk á síðustu tíu mínútum leiksins tryggðu heimamönnum sigurinn.