Fréttablaðið - 24.08.2006, Page 88

Fréttablaðið - 24.08.2006, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ���������� ���������� Nína og Valdimar skráðu sig í Og1 og spara þannig tugþúsundir króna á ári í símakostnað. Þau hjónin njóta þess meðal annars að hringja í alla heimasíma og eitt heimasímanúmer í útlöndum fyrir 0 kr. Þau hringja líka í GSM vini sína fyrir 0 kr., fá meiri hraða á Netinu fyrir lægra verð og afslátt af Sýn. Og1 er fyrir heimili sem hafa allt hjá Og Vodafone: GSM, heimasíma og ADSL. Og1 er fjölskylduvænt, enda hefur það sýnt sig að fólk talar meira saman eftir að það skráir sig í Og1! Þú getur líka byrjað að spara frá og með næsta símtali með því að ganga frá málinu strax í dag. Komdu í næstu verslun Og Vodafone eða til umboðsmanns, hringdu í þjónustuver 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is til að fá nánari upplýsingar. 20.000 heimili spara tugþúsundir króna! Frá því að ég var lítill hef ég alltaf fylgst vandlega með vísindum og vísindamönnum í fjölmiðlum. Ég byrjaði ungur að horfa á Nýjustu tækni og vísindi í Sjónvarpinu, eða Nýjustu tæknindi og vísindi eins og ég kallaði þáttinn lengi framan af. Ég hef alltaf lesið vandlega vísinda- fréttir í dagblöðunum og undanfarin ár hef ég líka verið áskrifandi að tímaritinu Lifandi vísindi. Yfirleitt læt ég fræðsluefni í sjónvarpi ekki framhjá mér fara. ÉG hef mikinn áhuga á geimvís- indum. Alheimurinn heillar mig. En ég hef líka áhuga á náttúruvís- indum og öllum tæknilegum fram- förum, læknavísindum og eðlis- fræði. Ég hef áhuga á skammtafræði. Jarðfræði er áhugaverð, þróunarsagan og hvernig allt funkerar í heiminum, frá smæsta atómi upp í risastjörn- ur í fjarlægum vetrarbrautum. MARGIR vina minna eru vísinda- menn. Einn besti vinur minn er til dæmis doktor í eðlisfræði. Ég hef líka tekið ástfóstri við nokkra fræga vísindamenn. Einstein er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann var einstakur maður. En hrifnastur er ég þó af Stephen Hawking og kenn- ingum hans um tímann, svarthol og fleira. VÍSINDALEG aðferð er fullkomn- asta leið mannsins að sannleika og byggir á endurtekinni reynslu við ákveðnar aðstæður. Ég ber mikla virðingu fyrir vísindum. En vís- indin hafa líka sínar takmarkanir. Þau geta til dæmis ekki mælt feg- urð eða skilgreint kærleika. Mér hefur alltaf þótt skrítið að lesa „Vísindamenn telja ...“ eins og það sé einhverskonar hálf-sannleikur. Vísindamenn eru engir guðir. Vís- indin hafa í raun aldrei sannað neitt. (Það er vísindalega sannað). Og vísindamenn hafa oftar en ekki rangt fyrir sér. Og það sem einn telur rétt efast annar um. OFT verða merkustu uppgötvanir til fyrir tilviljun eða vegna óhapps eða jafnvel fikts. Og það sem vís- indamenn halda er oft ekkert réttara en það sem einhver annar heldur. Ég hef til dæmis alltaf verið fullviss um að vitsmunalíf leynist annars staðar en hér á jörðinni. Vísindamenn hafa ekki alltaf verið því sammála en virðast þó vera að gefa hugmyndum mínum meiri og meiri gaum. SANNLEIKURINN er sá að við vitum mest lítið, hvort sem við erum vísindamenn eða ekki. Og þess meira sem við vitum þess minna virðumst við skilja. Vísindamenn telja

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.