Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 www.benni.is Opið virka daga frá kl. 9.00 - 18.00. Lau. 12.00 - 16.00 Vel slípaður demantur Frumsýning Tosca Chevrolet Tosca frá GM – stærsta bílaframleiðanda í heimi Kalos Aveo Lacetti StationLacetti Sport Lacetti Þekking frá öllum heimsálfum skilar sér í eðalvagni General Motors, stærsti bílaframleiðandi heims, hefur í meira en 100 ár kappkostað að framleiða bíla sem skara fram úr. Í dag framleiðir GM bíla í öllum heimsálfum í hátækniverksmiðjum undir ströngu gæðaeftirliti, sem gerir GM kleift að bjóða framúrskarandi bíla á mjög viðráðanlegu verði. Tosca er nýtt flaggskip Chevrolet í Evrópu, fólksbíll í fullri stærð, sannkallaður demantur. Taktu þátt í sigurför Chevrolet, komdu og skoðaðu Tosca í nýja Chevrolet sýningarsalnum og láttu koma þér á óvart hversu ljúfur þessi gripur er. Við erum á Tangarhöfða 8-12 í nýjum Chevrolet sýningarsal. Þar bíður eftir þér kaffi og reynsluakstur. Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 Umboðsmenn: Bílahornið hjá Sissa, Keflavík. Bílasalan Ós, Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu búa tvær ólíkar þjóðir. Annars vegar fólkið í 101 Reykjavík og hins vegar allir hinir. Þó ég búi ekki sjálfur í 101 hef ég í mörg ár rannsakað heim þeirra sem þar búa. Enda er vart annað hægt. Í íslenskum kvikmynd- um, sjónvarpsþáttum og skáld- sögum búa söguhetjurnar nær undantekningarlaust í 101 Reykjavík. Þar býr hinn dæmigerði Íslendingur sam- kvæmt hugarheimi rithöfunda þessa lands. Í EINU skiptin sem Grafar- vogsbúi eða Kópavogsbúi kemur fram í skáldverki er það í kaldhæðnislegu sam- hengi og viðkomandi er und- antekningalaust plebbi með stóru P-éi, eða eitthvað alvar- lega brenglaður. Úthverfabúi er fulltrúi fyrir firringu nútím- ans í íslenskum skáldverkum. EN sá sem býr í 101 er fulltrúi hins heilbrigða og venjulega, enda búa skáld og rithöfundar flestir í 101 Reykjavík og eðlilegt að listamönnum, og reyndar öllum mönnum, finn- ist nágrannar sínir heilbrigðir og eðlilegir. Hið óþekkta og ógnvekjandi býr handan við lækinn. ÞAÐ er orðið ár og dagur síðan fjallað var um venjulegan Íslending í íslenskri kvikmynd. Enda eru flestar íslenskar myndir í dag gerðar fyrir pínu- lítinn evrópskan „Art house“ bíómarkað. Það er eins og íslenskir kvikmyndagerðar- menn skammist sín fyrir að sýna Reykjavík eins og hún raunverulega er, utan þessa frímerkis sem er 101. SKYLDI þó ekki vera minni- máttarkennd gagnvart evr- ópskum þjóðum sem skarta borgum með mörg hundruð ára byggingarsögu að baki. Afhverju vilja íslenskir kvik- myndagerðarmenn fela það að stærsti hluti Reykjavíkur byggðist upp eftir seinni heimstyrjöldina? Afhverju erum við svona feimin við að vera við sjálf? ER það útaf álfaímyndinni sem búið er að markaðssetja svo vel og vandlega fyrir erlend- um þjóðum? Samkvæmt henni búa allir Íslendingar í gömlum, skrítnum bárujárnshúsum í Þingholtunum og trúa á álfa og huldufólk. EN það er lygi. Og lygi gengur aldrei upp nema í svo og svo langan tíma. Við þurfum að spyrja okkur hvenær tíminn kemur til að koma út úr skápn- um. Hér á Íslandi er markaður fyrir íslenskar bíómyndir löngu orðinn ónýtur af þeirri einföldu ástæðu að íslenskur almenningur nær ekki sam- bandi við þær. Hvernig væri að prófa að láta söguhetju næstu myndar búa í Breiðholt- inu? Svo væri hægt að vinna sig austar. 101 ����������������������� ����������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.