Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 21
Samkeppniseftirlitið hefur opnað
enska útgáfu af heimasíðu sinni á
slóðinni www.samkeppni.is/en.
Með þessu segist Samkeppniseftir-
litið vilja leggja sitt af mörkum til
þess að efla þekkingu í útlöndum á
samkeppnismálum hér.
„Heimasíðu Samkeppniseftir-
litsins er ætlað að vera öflug upp-
lýsingaveita um samkeppnismál,“
segir á vef stofnunarinnar, en þar
er meðal annars að finna upplýs-
ingar um skipulag, málshraða,
málsmeðferð, lög og reglur um
samkeppnismál og erlent samstarf,
sem og leiðbeiningar um hvernig
erindi til Samkeppniseftirlitsins
skulu úr garði gerð. Þá er á vefnum
hægt að senda inn ábendingar um
möguleg brot á samkeppnislögum,
auk þess sem þar er að finna
ákvarðanir eftirlitsins og aðrar
fréttir um samkeppnismál.
„Ákvarðanir eftirlitsins verða
þó ekki þýddar, en yfirlit yfir
ákvarðanir, meginniðurstöður, og í
einstökum tilvikum útdráttur máls
verður aðgengilegur á ensku,“
segir í tilkynningu á vef Sam-
keppniseftirlitsins. - óká
SAMKEPPNISEFTIRLITSVEFURINN Nýver-
ið voru opnaðar á vef Samkeppniseftir-
litsins síður á ensku.
Samkeppnis-
mál á ensku Jean-Claude Trichet, bankastjóri
Evrópska seðlabankans, er sagður
ýja að frekari hækkun stýrivaxta
á evrusvæðinu í viðtali við ítalska
vikublaðið L‘Espresso, sem kemur
út dag.
Trichet segir bankann fylgjast
grannt með verðbólguþróun innan
aðildarríkja myntbandalags Evr-
ópusambandsins og muni bankinn
grípa til frekari aðgerða til að
sporna gegn því að verðbólga
raski stöðugleikanum.
Seðlabanki Evrópu hefur hækk-
að stýrivexti sína fjórum sinnum
frá því í desember á síðasta ári,
um 25 punkta í hvert sinn, og
standa vextirnir á evrusvæðinu í
þremur prósentum. Fjármálaskýr-
endur túlkuðu orð Trichets í gær
sem svo að bankinn muni hækka
stýrivexti sína á ný um fjórðung
úr prósenti að loknum vaxta-
ákvörðunarfundi bankastjórnar-
innar í næsta mánuði.
Spurður hvort stýrivextir bank-
ans fari í 3,5 prósent fyrir árslok
svaraði Trichet því ekki beint
heldur sagði bankann verða að
koma í veg fyrir að verðbólga fari
langt fram úr væntingum. Búist
er við að verðbólga á evrusvæðinu
verði nálægt 1,9 prósentum á
næstu fimm árum, að hans sögn.
Helstu áhættuþættirnir eru hins
vegar hækkanir á olíuverði, aukn-
ir óbeinir skattar og launaskrið en
síðasttaldi liðurinn gæti sett strik
í reikninginn, að sögn Jean-Claude
Trichets. - jab
JEAN-CLAUDE TRICHET Bankastjóri
Evrópska seðlabankans ýjar að frekari
hækkun stýrivaxta á evrusvæðinu í
viðtali sem birtist í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vaxtahækkun á evrusvæðinu
Frosti Bergsson, fyrrum stjórnar-
formaður Opinna kerfa, og Síminn
hf., hafa gengið til liðs við upplýs-
ingafyrirtækið Titan ehf., sem
tekur til starfa á næstu vikum og
ætlar sér stóra hluti á upplýsinga-
markaði.
Titan mun í fyrstu einbeita sér
að söluráðgjöf á miðlægum lausn-
um fyrir stærri fyrirtæki en stefnt
er að því að færa hratt út kvíarn-
ar. Fyrirtækið hefur tryggt sér
viðskiptasamninga fyrir vörur frá
Cisco, HP, Sun og fleiri þekktum
framleiðendum. - jab
Titan hefur
senn starfsemi
vaxtaauki!
10%
Mike Turner, forstjóri breska her-
gagnaframleiðandans BAE Syst-
ems, sem á 20 prósenta hlut í
EADS, móðurfélagi flugvélafram-
leiðandans Airbus, segir líkur á að
Airbus muni á næstu dögum til-
kynna um
enn frek-
ari tafir á
afhend-
ingu A380
risafar-
þegaflug-
véla frá
félaginu.
Airbus hefur tvívegis á árinu
greint frá töfum á framleiðslu
flugvélanna vegna vandræða í raf-
kerfi þeirra. Gengi bréfa í EADS
hefur lækkað um fjórðung vegna
þessa auk þess sem æðstu stjórn-
endur félagsins þurftu að taka
poka sinn í kjölfarið.
Stjórn EADS hefur vísað á bug
fréttum þess efnis að afhending
risaþotanna dragist enn frekar og
segir lítinn fót fyrir þeim. Enn sé
verið að rannsaka ástæður þess að
framleiðsla flugvélanna tafðist
upphaflega.
Kostnaður við hönnun A380
risaþotanna nemur nú 12 milljörð-
um evra eða rúmlega 1.000 millj-
örðum íslenskra króna. - jab
AIRBUS A380 RISAÞOTA
Tafir á afhend-
ingu risaþota?