Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 74
42 15. september 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is > Jón Arnór ekki með til Austurríkis Stjarna körfuboltalandsliðs Íslands, Jón Arnór Stefánsson, verður ekki með liðinu er það mætir Aust- urríki ytra á laugardag. Jón Arnór sneri sig illa á ökkla í leiknum gegn Lúxemborg í Keflavík á miðvikudag þegar Ísland vann frekar örugglega. Jón Arnór hlaut meiðslin snemma í leiknum og íslenska liðið kláraði því verk- efnið án hans. Í stað Jóns Arnórs hefur verið valinn Keflvíkingurinn Arnar Freyr Jónsson. FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari er búinn að tilkynna leikmannahópinn sem fer til Portúgals og leikur þar við heimamenn þann 28. september næstkomandi. Það eru engar breytingar á hópnum frá leiknum við Svíþjóð. Leikurinn í Portúgal er síðasti leikur liðsins í undan- keppni HM en Ísland á ekki möguleika á að komast áfram. - hbg HÓPURINN: ÞÓRA B. HELGADÓTTIR BREIÐABLIK GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR VALUR ÁSTHILDUR HELGADÓTTR MALMÖ FF GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR BREIÐABLIK KATRÍN JÓNSDÓTTIR VALUR EDDA GARÐARSDÓTTIR BREIÐABLIK GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR BREIÐABLIK MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR VALUR HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR FORTUNA DÓRA MARÍA LÁRUSDÓTTIR VALUR MÁLFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR VALUR ERNA B. SIGURÐARDÓTTIR BREIÐABLIK ERLA ARNARDÓTTIR MALLBACKENS ÁSTA ÁRNADÓTTIR VALUR ÓLÍNA G. VIÐARSDÓTTIR BREIÐABLIK GRETA M. SAMÚELSDÓTTIR BREIÐABLIK GUÐNÝ BJÖRK ÓÐINSDÓTTIR VALUR KATRÍN ÓMARSDÓTTIR KR Kvennalandsliðið: Sami hópur hjá Jörundi ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Fer með til Portúgals. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Sigurður Jónsson hætti mjög óvænt sem þjálfari Grinda- víkur á miðvikudag en aðeins tvær umferðir eru eftir af Landsbanka- deild karla. Grindavík er í fall- hættu en langt frá því að vera fall- ið og því kom það mönnum á óvart að Sigurður skyldi stökkva frá borði á þessum tímapunkti. Hann segist hafa gert það með hags- muni félagsins að leiðarljósi. „Mé fannst ég ekki vera að ná því út úr liðinu sem ég vildi og því taldi ég mig vera kominn á enda- stöð. Þess vegna fannst mér best fyrir liðið að ég stigi til hliðar,“ sagði Sigurður við Fréttablaðið í gær en árangur liðsins var farinn að taka sinn toll hjá honum sjálf- um. „Mér fannst ég ekki alveg hafa orkuna og ástríðuna lengur sem þarf að vera til staðar. Það hefur gengið á ýmsu í sumar og það má eiginlega segja að ég hafi verið búinn að tapa neistanum. Svo má ekki gleyma að árang- urinn hefur alls ekki verið ásætt- anlegur og ég ber ábyrgð á því. Ég hef alltaf verið þannig að ef maður nær ekki markmiðum sínum sé best að snúa sér að öðru. Ég velti þessu mikið fyrir mér eftir Vals- leikinn og mín niðurstaða var sú að það væri best fyrir liðið að fá breytingu fyrir lokaleikina.“ Sigurður segist þó ekki vera búinn að fá nóg af fótbolta. Hann muni taka sér frí frá boltanum næstu vikurnar en hann útilokar ekki að snúa aftur á hliðarlínuna hjá nýju liði. - hbg Sigurður Jónsson hafði hagsmuni Grindavíkur að leiðarljósi og ákvað að hætta: Hafði ekki lengur orkuna og ástríðuna Goddi.is S. 5445550. Lovisa bjálkahús alls 31 fm. fallegt lítið sumar-eða gestahús kr. 728.000,- LCI-958TR stærð 152x244 sm. 12” dekk ber 750 kg. kr. 84.500 LCI-850, 122x244 sm. kr. 48.800,- Slöngubátur 380 sm. fyrir atvinnu-og áhugamenn. kr. 179.000,- Gerðin MA-420/0AL sameinar gæði, endingu, áreiðanleika og lágt verð. Kr. 189.000,- m/álbotni Valko, gestahús, 11,0 fm. ósamsett kr. 215.000,- FÓTBOLTI Skagamenn hafa ákveðið að spýta í lófana fyrir næsta sumar og ÍA vill fá Guðjón Þórðarson til að reisa veldið við á nýjan leik og koma ÍA aftur á meðal bestu liða landsins. Skjótt skipast veður í lofti því fyrr í sumar, þegar Ólafur Þórðar- son hætti með ÍA-liðið, afþakkaði stjórn ÍA krafta Guðjóns og réð þess í stað tvíburana Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni til þess að klára sumarið. Þessi stjórn verður þó ekki áfram en heimildir Fréttablaðsins herma að ný stjórn með Gísla Gíslason, fyrrum bæjarstjóra á Akranesi, í broddi fylkingar sé til- búin að taka við rekstri knatt- spyrnudeildarinnar og hún hefur, samkvæmt sömu heimildum, verið í viðræðum við Guðjón. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ganga viðræður við Guðjón mjög vel og ekki er ólíklegt að tilkynnt verði um ráðningu hans fljótlega eftir helgi gangi allt upp. Eiríkur Guðmundsson mun hætta sem formaður meistara- flokksráðs í lok tímabilsins en hann hefur lítil afskipti af deildinni þessa dagana þar sem hann er sest- ur á skólabekk. „Ég hef heyrt af því að verið sé að ræða við Guðjón og sú saga gengur í bænum,“ sagði Eiríkur en hann varðist allra frétta og vildi sem minnst ræða málið. Hann væri búinn að taka ákvörðun um að hætta og því skipti hann sér ekki af því sem væri að gerast hjá deildinni þessa dagana. Guðlaugur Kristinn Gunnars- son, framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar ÍA, staðfesti við Fréttablaðið að líklegt væri að skipt yrði um stjórn. „Stjórn knatt- spyrnudeildar er ekki að ræða við Guðjón en á móti kemur að stjórn- in er hugsanlega að hætta fljótlega. Það er verið að vinna í því að finna nýjan formann og hefur verið rætt við einn einstakling í því sambandi. Ég veit þó ekki hvort hann er tilbú- inn að taka við,“ sagði Guðlaugur en hann telur líklegt að þessi ein- staklingur, sem er Gísli samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, sé byrjaður að huga að málefnum deildarinnar þar sem fjöldi leik- manna sé með lausan samning fljótlega eftir að tímabili lýkur. Arnar Gunnlaugsson, annar þjálfara ÍA, sagði aðspurður að hann og Bjarki væru vel opnir fyrir því að halda áfram með liðið tækist þeim að halda því uppi. Ekki náðist í Guðjón Þórðarson í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. henry@frettabladid.is Kóngurinn á leið heim? Guðjón Þórðarson mun hugsanlega taka við liði ÍA á nýjan leik. Viðræður hafa átt sér stað uppi á síðkastið og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ganga þær vel og ekki er ólíklegt að tilkynnt verði um ráðninguna í næstu viku. HEIM Í HEIÐARDALINN Guðjón Þórðarson er sterklega orðaður við ÍA þessa dagana en þeir sem munu taka við stjórnartaumunum hjá félaginu á næstunni vilja gjarna fá Guðjón til að rífa ÍA upp úr meðalmennskunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR Kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu mætti ofjörlum sínum í gær þegar liðið steinlá fyrir þýska liðinu Frankfurt, 5-0. Blikastelpur byrjuðu þó leikinn mjög vel og fengu tvö ágæt færi til að skora. Fyrst átti Elín Anna Stein- arsdóttir skalla yfir mark Þjóðverjanna og á 18. mínútu komst Guðlaug Jónsdóttir í dauðafæri en skot hennar var varið. Eftir það sóttu Frank- furtarar stíft og sókn þeirra bar árangur á 25. mínútu þegar þýska liðið skoraði mjög umdeilt mark. Staðan var 1-0 í hálfleik en í síðari hálfleik settu þýsku stúlkurnar í fluggír og rúlluðu yfir Blikastúlkur. „Fyrri hálfleikur var bara mjög góður hjá okkur. Við vörðumst mjög vel og beittum góðum skyndisóknum og með heppni hefðum við alveg getað skorað eitt, jafnvel tvö mörk. Við förum 1-0 undir inn í hálfleik og það var klárt rangs- töðumark sem þær skoruðu. Kannski alveg óþarfi að þær séu að fá gefins mark í svona leik,“ sagði Guðmundur Magnússon, þjálfari Breiðabliks. Guðmundur sagði að dagskráin hefði verið stíf undanfarna daga og augljós þreyta hefði verið í liðinu í leiknum. „Við spiluðum 120 mínútur á móti Val á laugardaginn og mjög erfiðan leik á þriðjudaginn við Helsinki og það var ákveðin þreyta í liðinu. Við fengum líka á okkur mark snemma í síðari hálfleik og það var erfitt að rífa sig upp úr því,“ sagði Guðmundur. Hann bætti við að þýska liðið hefði líka bætt aðeins í sóknina í síðari hálfleik og þá hefði verið erfitt að ráða við þær. Breiðablik mætir Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi á sunnudaginn í síðasta leik riðilsins. Vitebsk gerði 0-0 jafntefli við Helsinki í gær og þau úrslit þýða að Breiðabliki nægir jafntefli á sunnudaginn til að komast upp úr riðlinum. „Það verður bara annar hörkuleikur þar sem tvö jöfn lið mætast og að sjálfsögðu förum við í þann leik til að vinna hann,“ sagði Guðmundur. BASL Á BREIÐABLIKI Í EVRÓPUKEPPNINNI: STEINLÁ FYRIR ÞÝSKA LIÐINU FRANKFURT, 5-0, Í HELSINKI Það var ákveðin þreyta í liðinu í leiknum FÓTBOLTI Atli Eðvaldsson og stjórn knattspyrnudeildar Þróttar komust í gær að samkomulagi um að Atli léti af störfum sem þjálfari liðsins eftir sumarið en Atli er aðeins á sínu fyrsta ári með liðið. Skilnaðurinn er í góðu og Atli mun stýra liðinu í lokaumferð 1. deildar um helgina. Atli skrifaði á sínum tíma undir þriggja ára samning við Þrótt en í samningn- um var gert ráð fyrir því að Þróttur færi upp um deild í sumar. Ef það markmið næðist ekki gátu báðir aðilar sagt upp samningnum og það varð ofan á að Atli og Þróttur ákvaðu að skilja að skiptum. Atli sagði við Fréttablaðið í gær að hann væri ekki hættur í þjálfun, hann hefði einfaldlega of gaman af því. Um leið óskaði hann Þrótti velfarnaðar í framtíð- inni. - hbg Breytingar hjá Þrótti: Atli hættir eftir eitt sumar ATLI EÐVALDSSON Stýrði Þrótti í eitt stormasamt ár. FÓTBOLTI Ryan Giggs gæti verið frá keppni í allt að þrjár vikur eftir að hafa þurft að yfirgefa völlinn í leik Manchester United og Celtic á miðvikudaginn. Giggs tognaði aftan í læri eftir hálftíma leik en þessi snjalli leikmaður hefur byrjað tímabilið frábær- lega fyrir United liðið. Giggs er ekki eini miðjumaður Manchester United sem er frá vegna meiðsla þvi Ji-sung Park fór nýverið í aðgerð út af ökklameiðslum og verður frá keppni næstu þrjá mánuðina. - dsd Manchester United: Giggs og Park báðir meiddir FÓTBOLTI Juan Roman Riquelme, leikmaður Villarreal, tilkynnti í gær að hann væri hættur að leika með argentíska landsliðinu, en hann er aðeins 28 ára gamall. Riquelme sagði að ástæðan fyrir þessari ákvörðun væri veikindi móður sinnar. „Frá því að HM endaði þá hefur móðir mín tvisvar verið flutt á sjúkrahús og það er mín ábyrgð að hugsa um hana. Þetta var í raun og veru auðveld ákvörðun af því að fjölskyldan mín gengur fyrir,“ sagði Riqu- elme. - dsd Juan Roman Riquelme: Hættur með landsliðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.