Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 25
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sigurrós Pálsdóttir starfar sem mat- reiðslumaður á grænmetis -og fiskiveit- ingastað í Mílanó á Ítalu. Staðurinn heitir Joia og skartar einni Michelin- stjörnu. „Ég útskrifaðist frá Hotel & Restaurant sko- len í Kaupmannahöfn í fyrra, eftir að hafa lært á Krogs-fiskerestaurant, en hef nú starfað á veitingastaðnum Joia í hálft ár,“ svarar Sigurrós þegar blaðamaður spyr hana um ferilinn í kokkamennskunni. „Ástæðan fyrir því að Mílanó varð fyrir val- inu eftir útskriftina var eiginlega sú að með því að fara þangað gátum við unnusti minn sameinað áhugasvið okkar beggja. Sjálfa langaði mig að læra meira um ítalska mat- argerð og hann vildi læra eitthvað sem hann hafði ekki komið nálægt áður. Þannig að úr varð að unnustinn fór í nám í innanhúss- hönnun og ég gat lært meira um ítalska mat- argerð með því að vinna á góðum ítölskum veitingastað.“ Joia skartar einni Michelin-stjörnu en Sigurrós segir Michelin-staðalinn marktæk- astan allra einkunnastaðla á þessu sviði. „Upphaflega var það Michelin-fyrirtæk- ið franska sem bjó til staðalinn í þeim til- gangi að hvetja Frakka til að vera duglegri að fara í ökuferðir út á land og heimsækja m.a. veitingastaði og hótel. Þetta var á ára- bilinu milli 1940 og 1950. Ein stjarna þýðir að ef þú ert í nágrenn- inu þá er það þess virði að heimsækja við- komandi hótel eða veitingastað. Tvær stjörnur þýða að ef þú ert í nágrenninu þá máttu ekki sleppa því að fara þangað og þrjár stjörnur þýða að það er þess virði að gera sér sérstaka ferð til þess eins að dvelja á hótelinu eða borða á veitingastaðnum.“ Áhugasamir matgæðingar sem eiga leið um Mílanó og langar að bragða á matnum hennar Sigurrósar geta lagt leið sína á Joia, en heimilisfangið er: Via P. Castaldi 18, 20124 Milano. margret.hugrun@frettabladid.is Kokkur í Mílanó „Ég gat lært meira um ítalska matargerð með því að vinna á góðum ítölskum veitingastað,“ segir Sigurrós Pálsdóttir eðalkokkur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Þann 1. október næstkomandi verða eigendaskipti á Greifanum á Akureyri. Fyrri eigendur, sem rekið hafa Greifann í sextán ár, ætla að snúa sér alfarið að hótelrekstri. Undir nafni Kea-hótela eiga þeir og reka sex hótel. Fjögur þeirra eru á Norðurlandi, Hótel Kea, Harpa, Norðurland og hótel Gígur, og tvö í Reykjavík, Hótel Borg og Björk. Hinir nýju eigendur Greifans eru þau Hugrún Helga Guðmunds- dóttir og Arinbjörn Þórarinsson. Bæði eru þau fædd og uppalin á Akureyri og þekkja vel til Greifans en þau hafa unnið á veitinga- staðnum um alllangt skeið. Hugrún er lærður framreiðslumaður og Arinbjörn er matvælaframleiðslufræðingur. Eigendurnir nýju munu njóta liðsinnis rekstrarfélags American Style sem kemur að verkefninu með eignaraðild. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstrarformi Greifans. - jóa Nýir greifar á Akureyri EIGENDASKIPTI VERÐA Á VEITINGAHÚSINU GREIFANUM Á AKUR- EYRI Í NÆSTA MÁNUÐI. Eigendaskipti verða á Greifanum á Akureyri í byrjun næsta mánað- ar. FRÉTTABLAÐIÐ/KK GÓÐAN DAG! Í dag er föstudagurinn 15. september, 258. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádeigi Sólarlag Reykjavík 6.50 13.23 19.54 Akureyri 6.32 13.08 19.41 Perlan er þekkt fyrir góðan mat og nú geta þeir sem fara út að borða í Perlunni valið á milli fjögurra rétta villibráðarveislu og sjávarréttaveislu á aðeins 5.950 krónur. Jólahlaðborð Perlunnar hefjast svo 23. nóvember en vegna mikillar aðsóknar síðustu árin er byrjað að taka niður borðapantanir nú þegar. Grillið býður nú upp á nýjan og glæsilegan matseðil. Innval býður viðskiptavinum sínum fimmtán prósenta afslátt í dag og á morgun af fataskápum sem eru sniðnir eftir máli án aukakostnaðar. Útsöluhorn Topphússins er fullt af góðum vörum og þar má finna yfirhafnir og ýmiss konar fylgihluti með fimmtíu prósenta afslætti. Kaldir dagar eru í verslunum Ormsson þessa dagana. Veittur er fimmtán til tuttugu prósenta afsláttur af kæli- og frystiskáp- um. ALLT HITT [ MATUR TILBOÐ ] BARMMERKJAVÉL ÁSTARINNAR Stefán Pálsson sagnfræð- ingur og friðarsinni á barmmerkjavél sinni margt að þakka. TILBOÐ 7 MATURINN HANS GEORGE George Holmes á Indian Mango gefur lesendum uppskrift að þriggja rétta máltíð. MATUR 4 H úsgagna Lagersala Krókhálsi 10simi: 557-951030 ágú-09 sep09-18 virka daga10-16 laugardag Eldhúsinnréttingar NuddstólarSpeglarRúm og margt margt fleira...Sófasett Allt að 90% afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.