Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 2
2 15. september 2006 FÖSTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
DÓMSMÁL Lögmenn olíufélaganna,
sem sektuð voru um 1,5 milljarð
fyrir verðsamráð á árunum 1993
til 2001, hafa hafnað kröfu ríkisins
um bótaskyldu félaganna vegna
verðsamráðs. Þetta staðfestu lög-
menn félaganna og Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, lögmaður íslenska
ríkisins, í gær. Vilhjálmur óskaði
eftir viðurkenningu á bótaskyldu
fyrir hönd ríkisins í síðasta mán-
uði.
Unnið er að gagnaöflun vegna
málsins, bæði af hálfu ríkisins og
olíufélaganna, en deilt er um hvort
samráð olíufélaganna, áður en
útboð Ríkiskaupa fór fram á haust-
mánuðum 1996, hafi valdið ríkinu
fjárhagslegu tjóni.
Hörður Felix Harðarson, lög-
maður Skeljungs, segir viðurkenn-
ingu á bótaskyldu hafa verið hafn-
að þar sem ríkið hafi ekki orðið
fyrir tjóni, að mati lögmanna olíu-
félaganna. „Við teljum að bóta-
skylda sé ekki fyrir hendi. Viður-
kenningu á henni er hafnað þar
sem við teljum að ríkið hafi ekki
orðið fyrir neinu tjóni.“
Kristinn Hallgrímsson, lög-
maður Kers, segir óumdeilt að
olíufélögin hafi haft samráð um
vissa þætti fyrir útboðin. „Olíufé-
lögin höfðu samráð fyrir útboðin
1996 en það bendir ekkert til þess
að ríkið hafi orðið fyrir neinu tjóni
vegna þess. Auk þess sem ekki
varð af útboðunum í nokkrum til-
fella.“
Í skýrslu Samkeppnisráðs
vegna verðsamráðs olíufélaganna
er tekið fram að forstjórar Olíufé-
laganna hafi hist á fundum 2.
ágúst, 7. ágúst og 5. september
1996 en útboð vegna olíukaupa
ríkisins fóru fram skömmu síðar.
Tekið er fram í skýrslunni að for-
stjórarnir hafi rætt á fundi 12.
september 1996 tillögur Kristins
Björnssonar, forstjóra Skeljungs,
um verðtilboð olíufélaganna. Þá
segir í fundargerð Olíufélagsins
frá fundi 10. september 1996 að
unnið sé að því „að tryggð sé fram-
legð af viðskiptum við opinbera
aðila.“
Í skýrslunni er greint frá því að
skjal hafi fundist í fórum Kristins
Björnssonar þar sem segir að
„sala verði gerð upp þannig að
Skeljungur hf., gefur hinum félög-
unum upp sölu til opinberra fyrir-
tækja á 3ja mánaða fresti,“ eins og
orðrétt segir í skýrslu Samkeppn-
isráðs.
Mál Reykjavíkurborgar gegn
olíufélögunum verður tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur á mánu-
dag. Krafa borgarinnar nemur
samtals rúmlega 150 milljónum
króna. magnush@frettabladid.is
Olíufélögin höfnuðu
kröfu um bótaskyldu
Olíufélögin hafa hafnað kröfu ríkisins um bótaskyldu vegna verðsamráðs í út-
boðum árið 1996. Lögmenn félaganna segja að ríkið hafi ekki orðið fyrir tjóni.
Mál Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum verður tekið fyrir á mánudaginn.
Sóley, er það ekki svona sem
við viljum hafa það?
„Nei, við lifum ekki á myrkum mið-
öldum. Jafnrétti og rafmagn skiptir
nútímafólk máli.“
Sóley Tómasdóttir, fulltrúi VG í mannrétt-
indanefnd Reykjavíkur, er ósátt við for-
stjóra OR vegna sjónvarpsauglýsingar þar
sem fáklæddar dansmeyjar eru áberandi.
Slagorð auglýsingarinnar er: Svona viljum
við hafa það.
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�����������
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
STJÓRNMÁL Gunnar Svavarsson,
forseti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar, sækist eftir fyrsta sæti á
lista Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi. Þá stefnir Tryggvi
Harðarson, fyrrverandi bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, á eitt af efstu
sætunum. Áður hafði Þórunn
Sveinbjarnardóttir alþingismaður
sagst sækjast eftir efsta sætinu.
Prófkjör verður haldið 4.
október.
Katrín Júlíusdóttir og Valdimar
Leó Friðriksson stefna að áfram-
haldandi þingmennsku; Katrín
sækist eftir öðru sætinu og
Valdimar þriðja. - bþs
Samfylkingin í Kraganum:
Þrír stefna á
fyrsta sætið
TRYGGVI
HARÐARSON
GUNNAR
SVAVARSSON
Röng fyrirsögn
LEIÐRÉTTING „Neitar sök í
morðmáli,“ var fyrirsögn
fréttar sem birtist í Fréttablað-
inu í gær um hið svokallaða
Ásláksmál. Fyrirsögnin er
röng.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu er Loftur Jens
Magnússon ákærður fyrir
stórfellda líkamsárás en ekki
fyrir morð. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LÖGREGLUMÁL Sautján ára piltur
liggur þungt haldinn á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi
eftir bílveltu sökum hraðaksturs í
fyrrinótt.
Pilturinn ók fólksbíl norður
eftir Skeiða- og Hrunamannavegi,
skammt norðan við Flúðir, ásamt
tveimur stúlkum sem voru far-
þegar í bílnum. Að sögn löreglu er
vegakaflinn tiltölulega beinn þar
sem slysið varð og voru aksturs-
aðstæður ákjósanlegar þrátt fyrir
myrkur.
Lögregla hefur vísbendingar
um að pilturinn hafi ekið töluvert
yfir leyfilegum hámarkshraða
þegar hann missti stjórn á bifreið-
inni með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Bifreiðin fór nokkrar veltur
eftir veginum og staðnæmdist á
hjólunum við hlið vegarins. Piltur-
inn var ekki í bílbelti og kastaðist
út úr bifreiðinni og hlaut alvarleg
meiðsli. Stúlkurnar tvær voru í
bílbeltum og sluppu án teljandi
meiðsla. Þeim var mikið brugðið
eftir slysið að sögn lögreglu.
Tilkynning barst lögreglunni í
gegnum Neyðarlínuna, en fyrsta
tilkynning um slysið barst frá
bænum Skipholti sem stendur
nærri slysstaðnum. Stúlkurnar
tvær tengjast heimilisfólkinu þar
á bæ.
Læknir á slysstað óskaði eftir
aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar og flutti TF-SIF piltinn þungt
haldinn á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi.
Að sögn vakthafandi læknis
þar er pilturinn alvarlega slasað-
ur, sofandi í öndunarvél.
Alls hafa nítján manns látist í
umferðinni það sem af er árinu,
margir hverjir sökum hraðakst-
urs. Í gær hleypti Umferðarstofa
af stokkunum landsátaki til að
stemma stigu við fjölda alvar-
legra slysa í umferðinni hér á
landi. - æþe
Sautján ára piltur slasaðist alvarlega í bílveltu í Hrunamannahreppi í fyrrinótt:
Grunur leikur á ofsaakstri
TF-SIF Þyrla Landhelgisgæslunnar var
send í fyrrinótt eftir sautján ára öku-
manni sem slasaðist alvarlega í bílveltu.
Hann er grunaður um ofsaakstur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við teljum að bóta-
skylda sé ekki fyrir
hendi. Viðurkenningu á henni
er hafnað þar sem við teljum að
ríkið hafi ekki orðið fyrir neinu
tjóni.“
HÖRÐUR FELIX HARÐARSON
LÖGMAÐUR SKELJUNGS
TANKAR OLÍUFÉLAGANNA Olíufélögin höfðu, samkvæmt niðurstöðu Samkeppnisráðs, samráð vegna útboða sem fram fóru í
tengslum við kaup ríkisins á olíu fyrir Landhelgisgæsluna, lögreglu og vegagerðina. Lögmenn olíufélaganna vilja meina að ríkið
hafi ekki orðið fyrir tjóni. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
ÞÝSKALAND, AP Trúarlegir leiðtogar
múslima í ýmsum löndum hafa for-
dæmt ræðu Benedikts, 16. páfa
kristinna manna, sem hann hélt
fyrir utan München á sunnudaginn.
Í ræðunni rifjaði páfinn upp orð
Manuels Paleologus, sem var 14.
aldar keisari í Býzans, um íslams-
trú: „Sýnið mér hvað Múhameð
hefur fært [heiminum] sem er
nýstárlegt og þér munið einungis
finna illa hluti og ómannúðlega, til
að mynda skipun hans um að boða
trú með brugðnu sverði.“
Benedikt tók fram að hann væri
að vitna í „hranaleg“ orð annars
manns, en lét ekkert uppi um hvort
hann væri sammála þeim eða ekki.
Ræðan fjallaði um heilagt stríð eða
tengsl ofbeldis og trúar. Einnig
ræddi páfinn muninn á kristni og
íslamstrú út frá heimspeki- og
sögulegum bakgrunni.
Æðsti trúarleiðtogi Tyrklands
hefur krafist tafarlausrar
afsökunarbeiðni frá páfanum, en
páfinn heldur þangað í nóvember.
AP hefur eftir talsmanni Vatíkans-
ins að páfinn hafi „ekki verið að
lýsa íslamstrú sem óhjákvæmilega
ofbeldisfullri“. - kóþ
Ræða Benedikts páfa um íslamstrú vekur reiði:
Ill trú og ómannúðleg
BENEDIKT PÁFI HEILSAR ÞÝSKALANDI
Fjölmargir leiðtogar múslima hafa for-
dæmt páfann fyrir ræðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERSALIR, AP Sérsveit frönsku
lögreglunnar skaut gíslatöku-
mann til bana í gær. Maðurinn
var 25 ára gamall og réðst inn í
pósthús í bænum Lemay, sem er
65 kílómetra fyrir vestan
Parísarborg, um fjögur leytið í
gær og krafðist peninga. Þegar
það gekk ekki eftir og lögreglan
kom á vettvang tók hann fimm
menn í gíslingu.
Talsmaður lögreglunnar segir
að maðurinn hafi neitað að
gefast upp í samningaviðræðun-
um og verið skotinn eftir að
hann hafi skotið á lögregluna.
Gíslarnir eru ómeiddir, en í
geðshræringu. - kóþ
Gíslatakan í Frakklandi:
Ætlaði sér að
ræna pósthúsið
Eldsupptök kunn
Bruninn í eiturefnageymslu Efnamót-
tökunnar í Gufunesi í lok ágúst var
af völdum rafgeymis sem þar var í
hleðslu. Allt tiltækt slökkvilið á höf-
uðborgarsvæðinu var kallað út vegna
brunans.
SLÖKKVILIÐ
VIÐSKIPTI Hlutafjárútboði Marel
hf. lauk í gær. Í boði voru 75
milljónir nýrra hluta á genginu 74
krónur fyrir hvern hlut og var
heildarsöluvirði útboðsins því 5,5
milljarðar króna. Alls óskuðu
fjárfestar eftir að kaupa hluti í
Marel fyrir ríflega 35,8 milljarða
króna sem er umfram heildar-
markaðsverð félagsins.
Hörður Arnarson, forstjóri Marel,
segist mjög ánægður með þann
stuðning sem fjárfestar voru
tilbúnir að veita fyrirtækinu.
„Framundan eru spennandi tímar
þar sem unnið verður úr þeim
fjölmörgu tækifærum sem
fyrirtækið stendur frammi fyrir.“
- shá
Hlutafjárútboð Marel hf.:
Gríðarlegur
áhugi fjárfesta
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á
sextugsaldri var handtekinn
þegar óeinkennisklæddir
lögreglumenn gerðu húsleit í
tveimur íbúðum í Hafnarfirði í
gærdag. Við leit fannst hass,
amfetamín og LSD. Einnig var
lagt hald á meint þýfi, hnífa,
skotvopn og skotfæri sem
fundust við leit í öðru húsinu.
Við aðgerðina naut lögreglan í
Hafnarfirði aðstoðar sérsveitar
Ríkislögreglustjóra, lögreglunn-
ar í Kópavogi og starfsmanna
tollgæslunnar.
Aðgerðin var hluti af eftirlits-
starfi lögreglunnar í Hafnarfirði
en fylgst mun hafa verið með
íbúðunum tveimur um nokkurn
tíma. Varðstjóri lögreglunnar
vildi ekki gefa upplýsingar um
magn þeirra eiturlyfja sem gerð
voru upptæk né hvort fleiri
tengist málinu þegar eftir því
var leitað í gærkvöldi. - shá
Húsleit lögreglu í Hafnarfirði:
Fíkniefni og
vopn fundust