Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 67
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 35
vaxtaauki!
10%
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
MIÐAVERÐ 1000 KR.
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
ALDURTAKMARK 20 ÁRA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
LAUGARD. 16. SEPT. ‘06
Í SVÖRTUM
FÖTUM
STÓRDANSLEIKUR
Í SVÖRTUM
FÖTUM
STÓRDANSLEIKUR
Í kvöld verða haldnir tónleikar
undir yfirskriftinni Reykjanes
rokkar í Frumleikhúsinu í Kefla-
vík. Þetta eru seinni tónleikarnir
sem eru haldnir undir þessari yfir-
skrift en hinir fyrri voru í gær-
kvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum.
Öllum hagnaði verður varið í
kynningu á hugmynd Landvernd-
ar um að gera Reykjanesskaga að
eldfjallagarði og fólkvangi.
Þrjár kynslóðir tónlistarmanna
úr Reykjanesbæ og nágrenni
leggja málefninu lið og rokka fyrir
Reykjanes í sátt við umhverfið.
Fram koma Deep Jimi and the Zep
Cream, Heiða og heiðingjarnir,
Rúnar Júlíusson, Æla, Hinir guð-
dómlegu neanderdalsmenn, Þröst-
ur Jóhannesson, Koja, Tommy gun
og Victory or death.
Miðasala fer fram á www.midi.
is, í verslunum Skífunnar og
Hljómvali í Keflavík.
Rokk á Reykjanesi
REYKJANES ROKKAR Rúnar Júlíusson, Sverrir úr Koju, Halli Valli úr Ælu og Davíð úr
Koju.
Vetrarstarf Íslensku óperunnar
var kynnt með hátíðarbrag á dög-
unum en þar kennir ýmissa grasa.
Þrjú stór óperuverkefni verða
sett upp í Ingólfsstræti á þessu
starfsári auk annarra tónleika og
samstarfsverkefna svo húsið
mun án efa iða af lífi langt fram á
vor.
Í lok mánaðarins minnist óper-
an 250 ára afmælis Mozarts og
setur upp æskuverk hans, Brott-
námið úr kvennabúrinu, með
einvala lið á fjölunum. Með aðal-
hlutverk fara suður-afríska
söngstjarnan Angela Gilbert,
Katharina Th. Guðmundsson,
Finnur Bjarnason og Snorri Wium
en hljómsveitinni stýrir Kurt
Kopecky.
Ný íslensk ópera, Skuggaleik-
ir, eftir Karólínu Eiríksdóttur við
texta rithöfundarins Sjón verður
frumflutt í nóvember en hún
byggir á sögunni Skugganum
eftir H.C. Andersen. Söngvararn-
ir Ásgerður Júníusdóttir, Eyjólf-
ur Eyjólfsson, Ingibjörg Guð-
jónsdóttir og Sverrir Guðjónsson
taka þátt í uppfærslunni en dans-
höfundur er Ástrós Gunnarsdótt-
ir. Guðni Franzson verður hljóm-
sveitarstjóri en um leikstjórn,
leikmynd og búninga sér Messí-
ana Tómasdóttir.
Þriðja verkefni Íslensku óper-
unnar er The Rake‘s Progress
eftir Igor Stravinskí sem sýnd
verður í febrúar. Óperan var
frumsýnd í Feneyjum árið 1951
og hefur síðan verið sett upp víða
um heim en þetta er í fyrsta sinn
sem hún hljómar hérlendis. Leik-
stjóri hennar verður Halldórs E.
Laxness en þar syngja meðal ann-
ara þær Ingveldur Ýr Jónsdóttir
og Hulda Björk Garðarsdóttir
ásamt Ágústi Ólafssyni og Gunn-
ari Guðbjörnssyni. Hljómsveit-
arstjóri er Kurt Kopecky.
Sem fyrr verður efnt til hádeg-
istónleika á vegum óperunnar en
Finnur Bjarnason tenór ríður á
vaðið og kemur fram ásamt Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur píanó-
leikara í október.
Óperustúdíóið setur upp tvær
stuttar óperur eftir Puccini á vor-
dögum með nemendum tónlistar-
skólanna á höfuðborgarsvæðinu
undir stjórn Daníels Bjarnason-
ar. Hann stýrir einnig Kammer-
sveitinni Ísafold sem heldur
„öðruvísi“ Vínartónleika í byrjun
árs ásamt söngvurunum Ágústi
Ólafssyni og Huldu Björk Garð-
arsdóttur.
Enn fremur mun Óperukór
Hafnarfjarðar undir styrkri
stjórn Elínar Óskar Óskarsdóttur
setja upp Cavaleria Rusticana
eftir ítalska tónskáldið Pietro
Mascagni en þær sýningar eru
fyrirhugaðar í apríl.
Fræðslustarfi óperunnar verð-
ur framhaldið. Á næstunni hefst
námskeið tengt uppfærslunni á
Brottnáminu úr kvennabúrinu en
auk þess er stefnt að fleiri kynn-
ingum og vettvangsferðum fyrir
almenning.
Nánari upplýsingar um starf
Íslensku óperunnar er að finna á
heimasíðunni www.opera.is. - khh
Dýrlegur óperuvetur
SÓPRANSÖNGKONAN ANGELA GILBERT Hefur fengið lof og prís fyrir frammistöðu
sína í Bandaríkjunum og syngur í fyrsta verkefni vetrarins hjá Íslensku óperunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI