Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 10
10 15. september 2006 FÖSTUDAGUR
FJÁRMÁL Þess eru dæmi, að nem-
endur í framhaldsskólum sem
hyggjast bjóða sig fram til forystu-
starfa fyrir nemendafélög biðji
banka og fyrirtæki um fjárstyrki
til baráttunnar. Í staðinn verði þeir
sem styrkina veita látnir sitja fyrir
um viðskipti við viðkomandi nem-
endafélög.
„Í Verslunarskólanum, og flest-
um öðrum skólum að ég tel, leita
menn eftir styrkjum í kosningabar-
áttunni,“ segir Vilmundur Sveins-
son, formaður nemendafélagsins í
Verslunarskóla Íslands. „Það hefur
verið leitað til banka sem og ann-
arra fyrirtækja. Það er gífurlegur
kostnaður sem menn eru að taka á
sig í þessu. Það hefur bæði verið
leitað eftir styrkjum í peningum og
vörum. Ef um er að ræða matvöru-
fyrirtæki þá hafa frambjóðendur
leitað eftir matvöru til að gefa nem-
endum til að auka fylgið. Svo þarf
maður eitthvað af peningastyrkj-
um til að geta staðið fyrir prent-
kostnaði og öðru þess háttar.“
Spurður hvaða upphæðir væri
verið að tala um í kosningasjóð
frambjóðanda sagði Vilmundur að
dekka þyrfti prentunarkostnað eins
og áður segir og jafnvel kaup á
bolum. Það gæti hlaupið á einhverj-
um hundruðum þúsunda. Þetta
kostaði sitt.
Spurður hvað bankar og fyrir-
tæki fengju í staðinn fyrir veittan
styrk sagði Vilmundur að þau
fengju vilyrði fyrir því að til þeirra
yrði leitað fyrst um samstarf við
nemendafélagið.
„Við erum með níu manns í
stjórn, sem fengu styrki frá mis-
munandi fyrirtækjum í kosninga-
baráttunni. Síðan buðum við öllum
bönkum það sama hvað varðaði
samstarf við nemendafélagið. Svo
unnu bankarnir út frá því sem við
vildum fá frá þeim,“ segir Vilmund-
ur sem kveðst ekki vilja gefa upp
hve hár samstarfssamningurinn sé
sem gerður var við Landsbankann.
Atli Þór Árnason, formaður
nemendafélags Fjölbrautaskólans
við Ármúla, segir lítið um styrki til
kosningabaráttu og þeir séu án
skuldbindinga.
Ásta María Harðardóttir, for-
maður nemendafélags Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ, kveðst ekki
þekkja þess dæmi að nemendur í
framboði hafi leitað styrkja í kosn-
ingabaráttunni upp á loforð um við-
skipti. jss@frettabladid.is
KOSNINGASTYRKIR Formaður nemenda-
félags Verzlunarskólans segir að leitað
hafi verið til banka og fyrirtækja vegna
styrkja. Stúlkan á myndinni er óviðkom-
andi fréttinni.
Lofa viðskiptum
gegn kosningastyrk
Þess eru dæmi að nemendur í framhaldsskólum biðji banka og fyrirtæki um
styrki til kosningabaráttu um trúnaðarstörf. Í staðinn veita þeir vilyrði fyrir
viðskiptum nemendafélags við þá sem styrkina veita, en þeir geta verið allháir.
EISTLAND, AP Evrópskir sjóherir
fundu og eyðilögðu yfir hundrað
sprengjur á strönd Eistlands í
þessari viku, í átaki sem ætlað er
að hreinsa strendur Eystrasalts-
ríkjanna af sprengjum sem varpað
var í fyrri og seinni heimsstyrj-
öldunum.
Talið er að um 80.000 sprengj-
um hafi verið komið fyrir
meðfram ströndum Eistlands,
Lettlands, Litháens og Rússlands í
heimstyrjöldunum.Skip frá
Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og
Rússlandi tóku þátt í aðgerðinni. - smk
Sprengingar í Eistlandi:
Eyða gömlum
sprengjum
SPRENGJA SPRENGD Eitt hundrað og
fjórtán sprengjur voru eyðilagðar við
Eistlandsstrendur í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VATÍKANIÐ, AP Fornleifafræðingar
Vatíkansins munu opna fornar
grafhvelfingar í næsta mánuði,
en þær fundust þegar grafið var
fyrir bílastæði.
Í grafhvelfingunum fundust
steinkistur, mósaíkgólf, freskur
og áletranir frá tíma Ágústusar
keisara og til valdatíma Konstan-
tínusar, sem ríkti til ársins 337.
Boðið verður upp á leiðsögn
um grafhvelfingarnar í tilefni af
500 ára ártíð safna Vatíkansins.
- kóþ
Menjar undir Vatíkaninu:
Fornar grafir
opnar öllum
FRAMKVÆMDIR Eins og glöggir vegfarendur í
Reykjavík hafa tekið eftir eru framkvæmdir
við niðurrif Faxaskálans í Reykjavíkurhöfn
vel á veg komnar.
„Það gengur bara vel. Verktakinn fékk
skálann úthlutaðan 1. ágúst síðastliðinn og
var þá byrjað að tæma allt innan úr honum.
Svo var byrjað á fimmtudaginn að rífa
steinsteypuna,“ segir Stefán Hermannsson
hjá Austurhöfn sem hefur yfirumsjón með
framkvæmdunum.
Stefán gerir ráð fyrir Faxaskáli muni
hverfa sjónum manna á næstu tveimur
vikum en öll vinna við niðurrifið muni taka
um sex til átta vikur.
„Samhliða þessum framkvæmdum er
verið að fylla í hluta hafnarinnar sem er köll-
uð Austurbugt því lóðin undir tónlistarhúsið
nær aðeins út í höfnina á því svæði. Það er
mikilvægt að vinnunni við fyllinguna ljúki á
tilsettum tíma því að uppfyllingin þarf að
vera orðin þurr áður en eitthvað er hægt að
aðhafast þar,“ segir Stefán.
Hann segir að um tíu verkfræðingar og
arkitektar vinni nú að verkfræðilegri
hönnun hússins.
„Tillöguteikningin var bara lítill mæli-
kvarði á hvernig húsið á að líta út. Núna er
verið að vinna að tæknilegum útfærslum,
hvernig rafmagns- og loftræstikerfið eigi að
vera útbúið og svo framvegis.“
Byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins á
að ljúka seint á árinu 2009 eða í byrjun árs
2010 að sögn Stefáns. Kostnaður við bygg-
ingu þess er í kringum tólf milljarða króna.
- æþe
Framkvæmdir við niðurrif Faxaskálans eru komnar á fullt skrið:
Skálinn horfinn eftir tvær vikur
FAXASKÁLI RIFINN Svo að tónlistar- og ráðstefnuhús
megi rísa við Reykjavíkurhöfn var Faxaskálanum fórn-
að. Hann hverfur sjónum manna eftir hálfan mánuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FLÓÐHESTAMÓÐIR Flóðhestamóðirin
fylgist stolt með afkvæmi sínu sem
kom í heiminn 1. september í dýra-
garði í Kalkútta á Indlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍFEYRISSJÓÐIR Öryrkjabandalag
Íslands, ÖBÍ, er þessa dagana að
ítreka bréf sem send voru fjórtán
lífeyrissjóðum til að spyrjast fyrir
um skerðingar á lífeyrisgreiðslum
öryrkja og taka á móti svörum frá
lífeyrissjóðunum. Sigursteinn
Másson formaður segir að svörin
séu stöðluð og ekki unnið í því að
svara hverjum og einum.
„Það er alltaf látið í það skína
að undirliggjandi ástæða sé hin
svonefnda örorkubinding
sjóðanna. Menn þurfa því að
styrkja sjóðina í stað þess að fara
með þessum hætti gegn þeim sem
lægstu kjörin hafa í þjóðfélag-
inu,“ segir hann. - ghs
Öryrkjabandalagið:
Fyrirspurnir
ítrekaðar