Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 69
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 37
Í BÚNINGSHERBERGINU DAVID BOWIE
NEW YORK DOLLS:
One Day It Will Please Us to
Remember Even This
„Endurkomuplata þessarar goð-
sagnakenndu sukksveitar verður
að teljast ágætlega heppnuð. Það
fara fáar sveitir betur með skítugt
pönkskotið Stones-rokk en New York
Dolls.“ TJ
CURSIVE:
Happy Hollow
„Cursive verður enn metnaðarfyllri
og stórtækari á fylgifiski hinnar frá-
bæru The Ugly Organ. Sellóleikarinn
farin og búið að fylla upp í skarðið
með heilli lúðrasveit.“ BÖS
OUTKAST:
Idlewild
„Þeir OutKast-félagar Andre 3000 og
Big Boi klikka ekki á Idlewild. Platan
kraumar af sköpunargleði og er
sneisafull af flottum popplögum. Ein
af plötum ársins.“ TJ
CHRISTINA AGUILERA:
Back to Basics
„Þó að Back to Basics sé misjöfn að
gæðum og á köflum of tilgerðarleg
er hún samt besta plata Christinu
Aguilera til þessa.“ TJ
RAZORLIGHT:
Razorlight
„Johnny Borrell og hina liðsmenn
Razorlight þyrstir í virðingu og frama.
Þeir hafa tækifæri á því en til þess
að ná því verða þeir að hætta búa
til tónlist eins og þeir halda að við
viljum heyra og byrja að gera tónlist
sem að þeir sjálfir vilja heyra.“ BÖS
DJ MARGEIR:
Blue Lagoon Soundtrack
„DJ Margeir hefur með Blue Lagoon
Soundtrack sett saman persónuleg-
an og metnaðarfullan mixdisk sem
blandar saman gömlu og nýju, raf-
tónlist, poppi, dubbi, djass og reggí.“
TJ
PÉTUR BEN:
Wine for My Weakness
„Wine for My Weakness er ótrúlega
sterk frumsmíð sem skýtur Pétri Ben
beint í fremstu röð íslenskra popp-
tónlistarmanna.“ TJ
LILY ALLEN:
Alright, Still
„Frumraun Lily Allen er fínasta
reggípopp. Áhrifavaldar hennar skína
þó kannski örlítið of mikið í gegn í
> Lög vikunnar
The Rapture - Get
Myself Into It
Nýja efnið svíkur
engan.
Tapes ‘N Tapes -
Cowbell
Heitasta indie-bandið
í dag.
Christina Aguilera - Ain’t No Other
Man
Hressandi smellur hjá stelpunni.
Pétur Ben - White Tiger
Fyrsta lagið af plötu ársins,
hingað til.
Fergie - London
Bridge
Söngkona Black
Eyed Peas á
svipuðum nótum
og hljómsveit
hennar.
Albert Hammond Jr., gítarleikari
New York-sveitarinnar The Strok-
es, gefur út sína fyrstu sólóplötu
þann níunda október.
Platan nefnist Yours to Keep og
hefur að geyma lög sem hinir með-
limir The Strokes höfðu ekki
áhuga á að nota. „Ég bauð fram
lögin mín einu sinni eða tvisvar en
var hafnað,“ sagði Hammond.
„Það var ekki Julian [Casablancas,
söngvari] sem hafnaði þeim held-
ur hinir strákarnir.“
Hammond segist samt sem
áður ekkert hafa orðið fúll heldur
ákveðið að nota lögin í sólóverk-
efni sitt. „Mér finnst ég ekkert
vera fastur í þessari hljómsveit.
Ég er bara ánægður með að hafa
gert plötuna,“ sagði hann. „Eftir
erfið tónleikaferðalög langar
mann stundum að vinna á eigin
spýtur.“
Höfnuðu lögunum
THE STROKES Hammond, lengst til
vinstri, var hafnað af félögum sínum í
hljómsveitinni.
Kaffivél
Kaffibollar
Ávaxtakarfa
Nýkreistur ávaxtasafi
9 flöskur af Evian-vatni
Heitt vatn og hunang
Förðunarspegill, vel lýstur
Fatahengi
12 handklæði
Bjórkassi
2 franskar rauðvínsflöskur
2 franskar hvítvínsflöskur
NÝJAR PLÖTUR
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir