Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 12

Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 12
12 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Tveir menn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Vestur- lands fyrir fíkniefnabrot og ofbeldisverk. Annar var dæmd- ur í fangelsi, hinn í sekt. Annar mannanna réðst að manni aðfaranótt sunnudagsins 17. apríl 2005 fyrir utan Búðar- klett í Borgarnesi. Fórnarlambið marðist mikið í andliti og fékk skurð á vinstra kinnbein. Sömu nótt réðust báðir sakborningarn- ir á annan pilt á sama stað. Annar þeirra sló hann í jörðina, en hinn sló og sparkaði í andlit honum þar sem hann lá. Pilturinn missti við þetta tvær tennur úr efri gómi. Auk þessa var öðrum hinna dæmdu gefið að sök að hafa gert tilraun til fíkniefnabrots meðan hann sat í fangelsinu á Akureyri, en þá reyndi hann að smygla kókaíni inn í fangelsið. Annar mannanna var dæmd- ur í tveggja mánaða fangelsi. Honum var gert að greiða þeim sem tennurnar missti 135 þús- und krónur, svo og sakarkostn- að. Hinn var dæmdur í 50 þús- und króna sekt eða fjögurra daga fangelsi, greiði hann hana ekki innan tilskilins tíma. - jss BORGARNES Ofbeldisverkin áttu sér stað fyrir utan Búðarklett í Borgarnesi. Dómur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir fíkniefnabrot og ofbeldisverk: Sló og sparkaði í andlit pilts ÁHYGGJUFULLUR Áhyggjusvipurinn leyndi sér ekki á Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, er hann heimsótti í gær lögreglumenn sem slösuðust í óeirðunum í fyrri- nótt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UNGVERJALAND, AP Ferenc Gyurcsany, forsætis- ráðherra Ungverjalands, sagði í gær að atburð- ir þeir sem áttu sér stað í Búdapest í fyrrinótt hefðu gert hana að „lengstu og myrkustu nótt“ í sögu landsins frá því kommúnisminn féll árið 1989. Um 150 manns slösuðust í óeirðum sem upphófust eftir að spiluð var í ungverska ríkis- útvarpinu upptaka af ræðu Gyurcsanys í lokuðum hópi flokksmanna sinna, en í ræðunni segir hann að ríkisstjórn hans hefði „logið öllum stundum“ um ástand efnahagsmála í landinu í aðdrag- anda þingkosninga í apríl síðastliðnum. Mótmælendum og óeirðalögreglu laust saman við höfuðstöðvar ungverska sjónvarps- ins í Búdapest í fyrrakvöld. Mótmælendur báru lögregluna ofurliði og gengu berserks- gang í sjónvarpshúsinu. Lágu allar útsending- ar niðri um hríð. Um 150 manns slösuðust í átökunum, þar af 102 lögreglumenn. Einn var lagður inn á sjúkrahús með alvarlega höfuð- áverka, að sögn talsmanns lögreglunnar. Í viðtali við AP-fréttastof- una sagði Gyurcsany að hann hafnaði því algerlega að verða við kröfum um að víkja úr embætti vegna málsins. Hann sór hins vegar að hann myndi halda til streitu efna- hagsumbótaáætlun sinni. „Ég fer hvergi og gegni starfi mínu áfram. Það á hug minn allan að hrinda áætluninni í framkvæmd,“ segir Gyurcsany. „Ég veit að fólk á erfitt með að kyngja þessu, en þetta er eina leiðin fram á við fyrir Ungverjaland.“ Gyurcsany fordæmdi „skemmdarfýsn“ þeirra á að giska tvö þúsund til þrjú þúsund mótmælenda sem réðust inn í sjónvarpshúsið. Hann sagðist jafnframt hafa fullt traust á lög- reglunni að koma aftur á friði og ró. Bræðin sem hin umdeilda upptaka hefur leyst úr læðingi er rakin til sparnaðaraðgerða stjórnvalda, sem þau hafa gripið til í því skyni að freista þess að hemja fjárlagahallann, sem stefnir í að verða meira en tíu prósent af vergri landsframleiðslu í ár, og þar með langmesti hallinn sem um getur í aðildarríkjum Evrópu- sambandsins. Meðal aðgerða sem boðaðar hafa verið í þessu skyni eru skattahækkanir, uppsagnir fjölda ríkisstarfsmanna, og að tekin verði upp þjónustugjöld í heilbrigðisþjónustu og skóla- gjöld fyrir flesta háskólanema. Samsteypustjórn Sósíalistaflokks Gyurc- sanys og frjálsra demókrata var fyrsta ríkis- stjórn Ungverjalands sem náði endurkjöri eftir að lýðræði komst aftur á í landinu árið 1990. audunn@frettabladid.is VERKSUMMERKI ÓEIRÐA Eyðilagður lögreglubíll fyrir utan höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvarpsins í Búdapest í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Þrýsta á afsögn Gyurcsanys Birting upptöku þar sem ungverski forsætisráðherrann Gyurcsany segir ríkisstjórn sósíalista hafa logið um ástand efnahagsmála fyrir kosningar í vor hefur valdið mikilli reiði meðal Ungverja. Hann neitar að víkja. Ég fer hvergi og gegni starfi mínu áfram. FERENC GYURCSANY FORSÆTISRÁÐHERRA UNGVERJALANDS ATVINNUMÁL Meirihluti starfs- manna matvöruverslana, veitingastaða og kráa er yngri en 25 ára. Þetta leiða nýjar tölur frá Hagstofu Íslands í ljós en þeirra er getið í vefriti fjármálaráðu- neytisins. Í október á síðasta ári voru 46 prósent þeirra sem störfuðu í matvöruverslunum tvítugt fólk eða yngra og sextíu prósent allra sem þar störfuðu höfðu ekki náð 25 ára aldri. Svipaða sögu er að segja af veitingahúsum og krám, þar voru 61 prósent starfsmanna 25 ára og yngri. Samtals starfa um níu þúsund manns í þessum tveimur atvinnugreinum. - kdk Starfsfólk matvöruverslana: Meirihluti ungt fólk MENNINGARMÁL Pólsk menningar- hátíð verður haldin dagana 28. september - 1. október næstkom- andi. Hátíðin hefur verið tvö ár í undirbúningi og með henni verður ýtt úr vör stærstu kynningu á pólskri menningu sem fram hefur farið hér á landi. Landsvirkjun styrkir menningar- hátíðina en íslensk/pólska vináttu- félagið og Landsvirkjun hafa undir- ritað samstarfssamning sem hefur það að markmiði að kynna pólska menningu á Íslandi og stuðla að skilningi á fjölmenningu og nútímasamfélagi á Íslandi. Í byrjun tíunda áratugarins fluttu margir Pólverjar til Íslands í leit að betur launuðum stöfum og nú eru þeir langstærsti hópur inn- flytjenda. Flestir þeirra eru dreifðir um landið í ýmsum störf- um þar sem lítillar sérmenntunar er krafist. Menningarhátíðinni er ætlað að kynna menningarlegan bakgrunn þessa fólks. Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni eru heimsfrægir pólskir listamenn eins og Krzysztof Pend- erecki, sem mun stjórna Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Þá verða sýnd- ar pólskar kvikmyndir og tónleikar haldnir til heiðurs Szymon Kuran tónlistarmanni sem lést á síðasta ári. Þeir sem vilja kynna sér dag- skrá menningarhátíðarinnar betur er bent á heimasíðuna www. polska.is. - hs Pólsk menningarhátíð verður haldin um næstu mánaðamót: Pólsk menning kynnt í Reykjavík UNDIRRITUN SAMNINGSINS Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkj- unar, ásamt Önnu Wojtynska og Mörtu Macuga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.