Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 18

Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 18
 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Svona erum við Fljótlega eftir að Göran Persson, fyrrverandi forsæt- isráðherra Svíþjóðar og leiðtogi sænskra jafnaðar- manna, lýsti því yfir að hann myndi hætta hófust vangaveltur um hver yrði næsti leiðtogi jafnaðar- manna. Það geta þó liðið margir mánuðir þar til þetta skýrist. Hverjir koma helst til greina? Háværar raddir eru uppi um að kona taki við sem leiðtogi og eru fjórar konur einkum nefndar. Þetta eru þær Margot Wallström, sem þykir koma helst til greina, Mona Sahlin, Ulrica Messing og Carin Jämtin. Hvenær eiga leiðtogaskiptin sér stað? Skiptin eiga sér stað næsta vor, sennilega í mars. Þá verður auka flokksþing haldið og þá verður eitt- hvert eitt nafn kynnt sem almenn samstaða verður um. Auðvitað væri hægt að halda flokksþingið fyrr en það þykir ekki æskilegt. Betra þykir að hafa tímann fyrir sér og hafa ígrundað málið vel og rætt það innan flokksins. Er ljóst að kona tekur við? Það er ekki frágengið mál en það er samt skýr ósk innan flokksins. Ef kona tekur við verður 117 ára gömul hefð brotin. Margot Wallström hefur lengi verið ofarlega á óskalistanum innan Jafnaðarmannaflokksins. Hún hefur áður sagt nei en nú stendur sem sagt til að reyna að tala hana inn á að verða formaður flokksins. FBL GREINING: LEIÐTOGAEFNI SÆNSKRA JAFNAÐARMANNA EFTIR GÖRAN PERSSON? Háværar raddir um að kona taki við Organistar friðelskandi fólk Deilur hafa verið um uppsögn dómorganista í Skálholti. Guðmund- ur Sigurðsson, formaður stjórnar Organistadeildar FÍH, segir að mikið mun meira felist í starfi organista en fólk geri sér grein fyrir. Hvað felst í starfi organista? Það er mjög margt. Orgel- leikur, kórstjórnun og mikil mannleg samskipti. Þetta er mikið þjónustustarf við almenn- ing. Starfið snýst ekki bara um að spila á orgel. Hvað eru organistar menntaðir? Organistar eru upp til hópa hámenntaðir tónlistarmenn. Þetta er fólk með mikla færni og mennt- un í orgelleik og kórstjórn og mætti njóta meiri virðingar sem fagstétt. Eiga organistar alltaf í einhverjum deilum? Nei, alls ekki. Organistar eru upp til hópa friðelskandi fólk og við báðum ekki um þennan hávaða sem nú stendur yfir. SPURT OG SVARAÐ ORGANISTAR GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Vogi, kallaði eftir því í Fréttablaðinu á dögun- um að stjórnvöld reyndu að taka á vímuefnavandanum með trúverðugum hætti. Forvarnarstarf hefur verið eflt nokkuð á síðustu árum en vímuefnaneysla, og þá sérstaklega neysla áfengis, hefur aukist mikið síðastlið- inn áratug. Aðeins lítill hluti fólks sem þjáist vegna fylgikvilla vímuefnaneyslu leitar sér hjálpar á meðferðar- sjúkrahúsum eða öðrum heilbrigðisstofnunum. Þessi veru- leiki gerir það að verkum að ein- ungis lítill hluti vandans, sem virð- ist vera rótfast samfélagsmein, kemst upp á yfirborðið. Sá hluti vandans, sem starfs- fólk heilbrigðisstofnana vinnur daglega við að uppræta, er átakan- legur og erfiður viðureignar. Neysla áfengis aukist umtalsvert Í umræðu um vímuefnavanda gleymist oft sú staðreynd, að áfengi er sá vímugjafi sem flesta dregur til dauða og dýrast er fyrir samfélagið að berjast gegn. Að því leytinu til finna heilbrigðisstofn- anir fyrir því með skýrum hætti að neysla á hreinu áfengi hefur aukist um meira en 35 prósent frá því árið 1993 hér á landi, eins og greint var frá í Fréttablaðinu fyrir skömmu. Neyslan hefur farið úr 4,6 lítrum af hreinu áfengi á alla Íslendinga yfir fimmtán ára aldri árið 1993, í rúma sjö lítra árið 2005. Miðað við þessar tölur drekkum við ekki lengur minnst allra Norðurlandaþjóða og „er ekki lengur marktækur munur á drykkju okkar og Svía, Norð- manna og Færeyinga ef marka má tölurnar frá Hagstofunni“, eins og segir orðrétt í ársskýrslu SÁÁ. Finnar og Danir drekka mest allra Norðurlandaþjóða en áfengisneysla þeirra er um tvö- falt meiri en hjá Íslendingum. Þverskurður af vímuefnavand- anum Í vettvangsferð sem blaðamaður fór í á dögunum á meðferðarsjúkrahús- ið á Vogi, undir leiðsögn Þórarins Tyrfingssonar, blasti við þverskurð- ur af djúpstæðu samfélags- vandamáli. Fólk á öllum aldri, úr öllum stéttum samfélagsins, var þar saman komið til að taka á vímuefna- fíkninni og reyna að leggja grunn að betra lífi. Rannsóknir á áfengissjúkling- um og vímuefnafíklum hafa leitt í ljós að sjúkdómar, sem rekja má til vímuefnaneyslu, eru algengir og alvarlegir. „Sjúkdómarnir eru þrálátir og valda áralangri óvirkni og fötlun. Ef bati fæst ekki, deyja flestir úr fylgikvill- um á aldrinum 45 til 65 ára. Þrátt fyrir þetta eru læknar seinir til að greina þessa sjúkdóma og þeirra er sjaldnast getið sem orsakaþátta í dauðsföllum, slys- um og fylgikvillum,“ segir orð- rétt í skýrslu SÁÁ. Andleg líðan sjúklings og aðstandenda Einn alvarlegasti fylgifiskur óhóf- legrar vímuefnaneyslu er andleg vanlíðan sjúklings og hans nán- ustu. Hrikaleg dæmi eru til um hvernig fíkniefnaneysla fjöl- skyldumeðlims hefur grafið undan trausti, samheldni og venjubundnu lífi fjölskyldunnar. Því fylgir and- leg þjáning fjölskyldunnar, sem óhjákvæmilega gengur í gegnum neyslulífernið með þeim sem á í hlut. Til þess að forða fjölskyldum frá því að upplifa þær hörmungar sem fylgja vímuefnavandanum hefur forvarnarstarf verið aukið umtalsvert á síðustu árum. Það gerir gagn og sýna rannsóknir að neysla ungmenna hefur minnkað. Þrátt fyrir þær niðurstöður „sýna allar upplýsingar sem teknar eru saman að vandinn er að aukast“, eins og Þórarinn lét hafa eftir sér í Fréttablaðinu er hann óskaði eftir hugarfarsbreytingu hjá stjórnvöldum vegna vímuefna- vandans. „Það þýðir ekki að bregð- ast við vandanum með því að lækka kostnað við meðferðir í sífellu“, sagði Þórarinn á dögun- um er hann gagnrýndi heilbrigðis- ráðuneytið sérstaklega. Áhersla á forvarnir Stjórnvöld leggja megináherslu á að efla forvarnarstarf þegar kemur að opinberum aðgerðum gegn vímuefnaneyslu. Í einföldu máli byggist hugsjónin við slíka aðferðarfræði á því grundvallar- atriði að beina ungmennum frá því að lenda í klóm fíkniefna. Ein- hugur ríkir um það, meðal sér- fræðinga á sviði vímuefna, að þessi stefna sé skynsamleg. Henni hefur verið framfylgt í skólum, ýmsum félagasamtökum og ekki síst í íþróttafélögunum. Þau hafa um árabil lagt áherslu á uppeldis- legt gildi íþróttastarfs og þá stað- reynd að skýr fylgni er á milli þess að ungmenni leiðist síður út í að neyta vímuefna og þess að taka þátt í íþróttastarfi. Umdeilt hefur verið um árabil hversu mikið fé hið opinbera þarf að leggja til reksturs meðferðar- stofnana og hafa þær raddir heyrst reglulega, að þær séu fjár- sveltar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lýsti á dögunum yfir stríði á hendur fíkniefnum um leið og hann fjallaði ítarlega um þá vá sem vímuefnavandinn er í nútíma samfélögum. Undir orð forsetans hafa fjölmargir tekið og reyna með því að skapa samstöðu í erf- iðri baráttu. Óraunhæft er að uppræta vímu- efnavandann innan fyrir fram ákveðinna tímamarka, það hefur margsannast. En sú viðleitni allra að trúa því að líf án vandans sé betra og til þess að fallið að bæta og lengja líf fólks er sá drifkraftur sem þarf að mati viðmælenda Fréttablaðsins að vera kjarninn í þeirri hugarfarsbreytingu sem Þór- arinn kallaði eftir í Fréttablaðinu. Í baráttu gegn vímuefnavánni FRÉTTASKÝRING MAGNÚS HALLDÓRSSON magnush@frettabladid.is FRÁ VOGI Þórarinn fór í gegnum starfsferla á Vogi með blaða- manni. Fólk úr öllum stéttum leitar sér hjálpar á meðferðar- stofnunni til þess reyna að koma lífi sínu á réttan kjöl. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA > Lögskilnaðir á Íslandi Heimild: Hagstofa Íslands 1965 52 7 56 0 16 4 1985 2005 7 6 5 4 3 2 1 0 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 175 150 125 100 75 50 25 0 4,7 7,1 6,7 6,46,46,36,2 5,9 5,5 4,8 4,9 5,2 lít ra r fjö ld i20 64 88 177168 ÁFENGISNEYSLA Á HVERN ÍBÚA, 15 ÁRA OG ELDRI (LÍTRAR) AMFETAMÍNFÍKN OG MISNOTKUNM, NÝ TILFELLI: KARLAR KONUR 86 43 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.