Fréttablaðið - 20.09.2006, Side 27
[ ]
Rannís stendur fyrir vökunni sem ber
yfirskriftina Stefnumót við vísinda-
menn, en dagurinn er tileinkaður vís-
indamönnum og haldinn hátíðlegur í
helstu borgum Evrópu.
Á Vísindavökunni fá vísindamenn
tækifæri til að koma rannsóknum
sínum og niðurstöðum á framfæri
á auðskiljanlegan og skemmtileg-
an hátt enda á Vísindavakan á að
höfða til almennings á öllum aldri.
Í aðdraganda vísindavökunnar verða
boðið nokkrum sinnum í vísindakaffi
á kaffistofu Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu sem hefst kl. 20. Þar
munu vísindamenn sitja og ræða
um rannsóknir sínar á mannamáli.
Í kvöld ber fundurinn yfirskriftina,
Má bjóða þér sjálflýsandi svín, en þá
verður rætt um erfðabreytt matvæli.
Annað kvöld verður fundur með
heitinu, Pálmatré við Jökulsárlón, þar
sem fjallað verður um hnattrænar
breytingar og áhrif þeirra á Ísland.
www.khi.is
viðburður }
Vísindavaka
Vísindavaka verður haldin í annað
sinn föstudaginn 22. september í
Listasafni Reykjavíkur frá kl. 17-21.
Prófatíðin á það til að læðast aftan að námsmönnum sem
verða alltaf jafn hissa þegar desember rennur upp. Byrjið strax á
heimavinnunni.
Kristín Þorbjörnsdóttir hjúkr-
unarfræðingur hóf mastersnám
í heilsuhagfræði við Háskóla
Íslands nú í haust og henni líst
mjög vel á námið.
Kristín útskrifaðist sem hjúkrun-
arfræðingur 1991 og hafði skoðað
möguleika til framhaldsnáms á
Íslandi þegar hún datt niður á
heilsuhagfræðina. „Mig er búið að
langa aftur í nám í svolítinn tíma
og þar sem ég hef unnið bæði í klín-
ískri vinnu og við stjórnun fannst
mér þetta nám áhugavert framhald
af því og spennandi að geta horft á
heilbrigðisþjónustuna með augum
hagfræðinnar,“ segir hún.
Núna starfar Kristín sem verk-
efnisstjóri á geðsviði Landspítal-
ans og hún telur að námið eigi
eftir að nýtast henni vel í starfinu.
„Þetta nám er nákvæmlega það
sem ég var að leita eftir sem er
svona annað sjónarhorn á heil-
brigðisþjónustuna. Í heilsuhag-
fræðinni skoðum við stefnumótun
í heilbrigðisgeiranum, hvernig
forgangsröðunin er og forvarnar-
starfið, hvað heilbrigðisþjónustan
kostar og hvort hægt er að gera
eitthvað öðruvísi.“
Heilsuhagfræði er fjörutíu og
fimm eininga nám svo þeir sem
eru í fullu námi geta klárað það á
einu og hálfu ári. „Ég tek þetta
með vinnunni svo ég er í hálfu
námi en ég stefni á að klára innan
tveggja til þriggja ára,“ segir
Kristín.
Kristín er í þremur námskeið-
um núna í haust og hún segir að
henni lítist vel á þau öll. „Einn
kúrsinn heitir bara heilsuhag-
fræði, annar kostnaður og nytja-
greining og sá þriðji stjórnun og
stefnumótun heilbrigðisstétta.
Þetta er mjög fjölbreytt og það
var einmitt það sem heillaði mig
við námið, hvað það er fjölbreytt
og opnar margar dyr.“
emilia@frettabladid.is
Nýtt sjónarhorn
Kristín segir að námið og starfið fari vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STUTT OG HNITMIÐUÐ NÁMSKEIÐ
UM HVERNIG STOFNA Á FYRIRTÆKI
VERÐA HALDIN AÐ HALLVEIGARSTÍG
1 Í LOK ÞESSA MÁNAÐAR OG BYRJUN
OKTÓBER.
Skattlagning fyrirtækja, félagaform
og frádráttarbær rekstrarkostnað-
ur eru meðal umfjöllunarefna á
námskeiðum sem
verða haldin í
Húsi iðnaðarins
að Hallveigarstíg
1 á næstunni.
Fyrirlesari er Anna
Linda Bjarna-
dóttir héraðs-
dómslögmaður
sem nú heldur
slík námskeið
í 18. sinn. Þar
upplýsir hún fólk
um ýmsa þætti sem nauðsynlegt
er að kunna skil á þegar fyrirtæki
er stofnað og leiðir það í gegnum
raunhæf verkefni. Fræðir það um
úttektir úr félögum og arðgreiðslur
sem og skattlagningu fyrirtækja
og réttarstöðu þeirra gagnvart
skattayfirvöldum. Ábyrgð stjórnenda
í einkahlutafélögum og hlutafélög-
um kemur þar líka við sögu, ásamt
öðrum mikilvægum atriðum.
Annars vegar er um þriggja hluta
morgunnámskeið að ræða og
hins vegar þriggja hluta síðdeg-
isnámskeið. Í báðum tilfellum er
boðið upp á léttan málsverð í hléi.
Námskeiðslýsing er á www.isjuris.
is og skráning og upplýsingar í síma
894-6090 eða á alb@isjuris.is
Að stofna fyrirtæki
Anna Linda
Bjarnadóttir
BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662
// Háskólanám í Hótelstjórnun er fjárfesting til framtíðar
IHTTI, SHMS og HIM Sviss (Montreuxv, Leysin og Neuchatel)
Alþjóðlegt Hótelstjórnunar og/eða ferðamálanám
Kynning á þremur af bestu Hótelstjórnunarháskólum Evrópu
Verður á Sólon, 2. hæð, fimmtudaginn 21. sept. kl. 17.30
Fulltrúi skólanna verður á skrifstofu Exit.is kl. 16.00 – 17.00 sama dag
BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662
// ISIC, IYTC og ITIC skírteinin
Þú ferðast ekki án þeirra. Afslættir og víðtæk þjónusta.
ISIC skírteinið er útbreiddasta afsláttar- og námsmannaskírteinið í heimi.
IYTC er afsláttarskírteini fyrir ungt fólk á aldrinum 12 - 25 ára, sem ekki
er í námi. ITIC er alþjóðlegt kennaraskírteini með margvíslegum fríðindum.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja Þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Þau hafa
lengt sinn
sól ar hring!
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor.”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum
því stúdent.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.Hvað segja nem end ur okk ar
um nám skeiðið:
Frá bært, mark visst, hnit mið að, ævi á byrgð, nyt sam legt, krefj andi,
skemmti legt, mjög gott, skipu lagn ing, ein beit ing, já kvæðni, mik il aðstoð,
góður kenn ari, spenn andi, ár ang urs ríkt, hvetj andi, góð fljón usta.
Nýtt 6. vikna nám skeið 16. okt. (nokkur sæti laus)
Nýtt!! 3. vikna hrað nám skeið 13. okt.
SUÐURNES 3 vikna hraðnámskeið 12. október
3 vikna fyrirtækjanámskeið 12. október (kl. 13-16)
Skrán ing er hafin á á www.h.is og í síma 586-9400
Einstakt enskunámskeið
Fyrir þá sem vilja styrkja enskugrunninn,
tala og skilja enska tungu.
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.tungumal.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799