Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 44
■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
Samtök iðnaðarins eru stærstu
hagsmunasamtök atvinnurekenda á
landinu með um tólf hundruð fyrir-
tæki og félög sjálfstæðra atvinnu-
rekenda innan sinna vébanda. Helgi
Magnússon formaður segir Sam-
tök iðnaðarins mjög breið. Innan
samtakanna séu einyrkjar og iðn-
meistarar, álver og allt þar á milli.
„Þetta er gríðarlega mikil flóra og
þess vegna erum við oft á tíðum að
sætta mjög ólík sjónarmið.“
Helgi segir hafa borið á því í
opinberri umræðu undanfarin ár
að aðilum innan samtakanna hafi
verið teflt saman. Þannig hafi
verið talað um að hátækniðnaður
eigi ekki samleið með stóriðjunni.
„Við erum alls ekki sammála þessu
og teljum að það sé svigrúm fyrir
alla undir sama þaki. Við leggjum
megináherslu á að allir geti unnið í
góðri sátt og að rými sé fyrir alla.“
Minna hefur farið fyrir þessari
umræðu nú eftir að krónan hóf að
styrkjast á ný gagnvart erlendum
gjaldmiðlum. „Hér fyrr á árinu var
talað um að virkjana- og stóriðju-
framkvæmdir væru að ryðja öðrum
atvinnugreinum út. Með þeim
breytingum sem hafa orðið á gengi
krónunnar á þessu ári hefur sam-
keppnisstaða margra greina batnað
til muna,“ segir Helgi.
Helgi telur nauðsynlegt fyrir
þjóð á borð við þá íslensku að nýta
auðlindir og þau tækifæri til tekju-
öflunar sem gefast. Sík nýting sé
einfaldlega nauðsynleg sé ætlunin
að standa undir því velferðarþjóð-
félagi sem við höfum komið okkur
upp. „Án þess að nýta náttúru-
auðlindir okkar og tekjumöguleika
getum við ekki gert sömu kröfur.
Hins vegar á ekki að ganga svo
hart fram að landið bíði þess ekki
bætur.“
FRELSISBYLTING
Samtök iðnaðarins hafa boðað til
fundar hinn 5. október næstkom-
andi um náttúruvernd og nýt-
ingu náttúruauðlinda; framsögu á
fundinum hafa þeir Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra, Andri Snær
Magnason rithöfundur og Illugi
Gunnarsson, stjórnarmaður í Lands-
virkjun.
Helgi segir fundinn til marks
um þá stefnu samtakanna að reyna
að sætta sjónarmið náttúruverndar-
sinna og þeirra sem vilja nýta
auðlindir. „Við viljum umfram allt
stuðla að upplýstri umræðu um
hvernig megi ná sátt í samfélaginu
milli náttúruverndar- og nýtingar-
sjónarmiða. Þetta eru að okkar mati
meðal mikilvægustu úrlausnarefni
íslensks samfélags.“
Samtök iðnaðarins hafa talsverð
samskipti við ríkisvaldið. Einkum
við gerð löggjafar sem snertir iðnað
í landinu. „Stundum þurfum við að
takast á, enda ekki hægt að búast
við því að allir séu sammála öllum
stundum. Samtök iðnaðarins eru
hagsmunasamtök og við verðum
að líta eftir hagsmunum okkar
félagsmanna, smárra sem stórra.
Við reynum að koma okkar sjónar-
miðum á framfæri af festu, en með
sanngirni að leiðarljósi.“
Afstaða samtakanna er sú að
ríkisvaldið eigi að setja lagaramma,
innan þess ramma þurfi athafna-
frelsið að rúmast. Helgi telur það
hlutverk samtakanna að láta heyra í
sér þegar gengið er á athafnafrelsið
og að berjast fyrir auknu olnboga-
rými.
Helgi segir íslenskt samfélag
hafa gjörbreyst til batnaðar síðustu
fimmtán ár. Raunar væri umfjöllun
um þá byltingu sem orðið hefur efni
í heila bók; frjálsræði í viðskiptum
hafi aukist og ríkisvaldið í auknum
mæli dregið sig í hlé. „Þótt samtök
á borð við okkar séu alltaf að berj-
ast fyrir einhverju og að láta í sér
heyra verður maður að vera sann-
gjarn og viðurkenna að hér hefur
orðið alger bylting. Við búum í
miklu betra samfélagi nú en fyrir
nokkrum árum.“
Helgi telur að fólkið í landinu
finni áþreifanlega fyrir þeirri breyt-
ingu sem orðið hefur. Kaupmáttur
í landinu hafi aukist til muna,
atvinnuleysi sé nánast ekkert og
hagvöxtur hafi verið mikill undan-
farin ár. „Við þurfum auðvitað að
fást við einhver vandamál. Aðal-
atriðið er þó að það sé alltaf meira
til skiptanna fyrir samfélagið í heild.
Umræðu um tekjuskiptingu í þjóð-
félaginu lýkur aldrei, en er meira á
borði stjórnmálamanna en samtaka
á borð við okkar.“
Helgi telur afar mikilvægt að
haldið verði áfram á þeirri braut
sem mörkuð hefur verið. Með því
að veita atvinnulífinu, fyrirtækjum
og fólkinu í landinu svigrúm verði
tækifærin til.
OPINSKÁ UMRÆÐA UM ESB
Samtök iðnaðarins vilja skoða
mögulega aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu og upptöku evrunn-
ar sem gjaldmiðils. Fjörutíu og
sex prósent landsmanna eru sama
sinnis en þriðjungur því mótfallinn,
samkvæmt nýlegri könnun Sam-
taka iðnaðarins. Í könnuninni kom
fram að 58 prósent landsmanna
væru hlynnt því að taka upp aðildar-
viðræður við Evrópusambandið en
einungis fjórðungur mótfallinn.
Fjörutíu og sjö prósent svarenda
vildu taka upp evru, en fjörutíu
prósent töldu upptöku evrunnar
ekki fýsilegan kost.
Helgi segir samtökin lengi hafa
viljað stuðla að virkri umræðu
um Evrópumálin. Sú umræða sé í
fullum gangi og raunar sjái ekki
fyrir endann á henni. „Þegar gengi
krónunnar sveiflast, líkt og það
gerði fyrr á þessu ári, er óhjákvæmi-
legt að umræða um Evrópusam-
bandið og evruna magnist. Þetta
er gríðarlega stórt og flókið mál og
hvorki upptaka evru né innganga í
Evrópusambandið getur orðið ein-
hver galdralausn. Hins vegar má
opinská og málefnaleg umræða
um þessi mál ekki deyja út.“ Helgi
segist raunar ekki eiga von á stórum
tíðindum af þessum málum í bráð,
enda kosningavetur í nánd og fátt
bendi til þess að Evrópusambands-
aðild verði að kosningamáli.
Helgi telur það hlutverk og
skyldu Samtaka iðnaðarins að
stuðla að opinskárri og fordóma-
lausri umræðu um jafn mikilvægt
málefni og Evrópusambandsaðild
er. „Við höfum látið gera könnun
um þessi mál fyrir okkur tvisvar
á ári. Nauðsynlegt er að fylgjast
með því hvernig þjóðin er innstillt
í þessum málum. Þetta eru upplýs-
ingar sem við teljum mikilvægar
og nauðsynlegt að halda til haga.
Ætlun okkar er alls ekki að reyna að
stýra umræðunni.“
STÖÐUGLEIKINN MIKILVÆGUR
Ein helstu rök þeirra sem hlynntir
eru Evrópusambandsaðild og upp-
töku evrunnar eru þau að mynt-
kerfið hér sé of lítið til að halda úti
sjálfstæðum gjaldmiðli. Afleiðingin
sé sú að krónan sveiflist til og frá og
ýti undir óstöðugleika í hagkerfinu.
Helgi segir Samtök iðnaðarins fyrst
og fremst vilja að stöðugleiki í
hagkerfinu sé tryggður, enda séu
sveiflur slæmar fyrir iðnað í land-
inu. „Ef upptaka evrunnar tryggir
þann stöðugleika verður auðvitað
að skoða þann kost. Sjálfur er ég
hins vegar ekki sannfærður um að
upptaka evrunnar sé nein galdra-
lausn í þeim efnum.“
Samtök atvinnulífsins hafa verið
hávær í gagnrýni sinni á hagstjórn
Seðlabankans. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, hefur meðal
annars sagt bankann vera öfugu
megin í hagsveiflunni og að hætt
sé við að Seðlabankinn standi uppi
skotfæralaus í næstu uppsveiflu;
stýrivextir verði þá einfaldlega of
háir og verðbólga rjúki upp úr öllu
valdi. „Ég get alveg tekið undir það
með Vilhjálmi að síðasta vaxta-
hækkun var óheppileg. Tími er kom-
inn til að láta af hávaxtastefnunni,“
segir Helgi.
Helgi telur framtíð íslensks iðn-
aðar bjarta. Mikill uppgangur hafi
verið undanfarin ár. Hann segist
vona að fyrirtæki standi vel eftir
uppsveiflu undanfarinna ára, en
býst þó ekki við skarpri niður-
sveiflu í efnahagslífinu. „Ég met
það þannig að fólk í fyrirtækja-
rekstri hafi öðlast mikla reynslu á
undanförnum árum. Því ætti ekk-
ert að koma á óvart þótt dragi úr
þenslu, fyrirtæki verða einfaldlega
að aðlagast og vera undirbúin undir
næstu uppsveiflu. Mín spá er sú að
uppsveiflan komi fyrr en seinna.“
Þurfum að sætta ólík sjónarmið
Samtök iðnaðarins eru stærstu hagsmunasamtök landsins. Helgi Magnússon, formaður samtakanna, segir alrangt að halda því fram að hagsmunir hinna
ýmsu iðngreina fari ekki saman. Hann telur það hlutverk samtakanna að stuðla að opinskárri umræðu um mikilvæg málefni á borð við aðild að Evrópu-
sambandinu og upptöku evrunnar. Mikilvægasta viðfangsefni íslensks þjóðfélags sé hins vegar að sætta sjónarmið um náttúruvernd og nýtingu auðlinda.
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins,
á Iðnþingi 2006. Hann segir hlutverk og skyldu
samtakanna að stuðla að opinskárri og fordómalausri
umræðu um Evrópusambandið. MYND/E.ÓL.