Fréttablaðið - 20.09.2006, Síða 46
■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
Ekki eru allir þeirrar skoðunar að
háir vextir séu af hinu illa. Fjár-
magnseigendur og fjármálastofn-
anir njóta góðs af háum vöxtum á
kostnað skuldara. Það má ugglaust
halda því fram að hátt matvælaverð
hér á landi sé af hinu góða fyrir
framleiðendur, úrvinnsluaðila og
kaupmenn.
Með stefnu sinni í Evrópumál-
um og skattlagningu matvæla eru
stjórnvöld í reynd að segja íslensku
þjóðinni að henni henti best að búa
við háa vexti og hátt matvælaverð.
STJÓRNMÁLAMENN OG KJÓS-
ENDUR ÓSAMMÁLA
Ekki leikur nokkur vafi á að
vaxandi fylgi við aðild að ESB
og upptöku evru í stað íslenskr-
ar krónu er til vitnis um það að
almenningur á Íslandi er ekki
sammála þessari stefnu.
Flestir forystumenn flokk-
anna finna ESB og evrunni
allt til foráttu og hafa
haft þann söng uppi
um árabil. Kannanir
sýna hins vegar að
þeirra eigin kjósend-
ur eru allt annarr-
ar skoðunar. Þannig
eru þeir sem afstöðu
taka og vilja taka
upp aðildarviðræður
um ESB-aðild í meirihluta í öllum
flokkum. Sömuleiðis er meirihluti
í öllum flokkum nema VG fyrir því
að taka upp evru í stað íslensku
krónunnar.
HENTAR OKKUR BEST AÐ HAFA
DÝR MATVÆLI OG HÁA VEXTI?
Stjórnmálamenn neita að horfast
í augu við þá staðreynd að vextir
hér eru og verða alltaf hærri en í
nágrannalöndum okkar. Við náum
aldrei þeim stöðugleika verðlags
og gengis sem að er stefnt. Verð-
bólga er hér sjaldnast innan settra
verðbólgumarka. Við munum til
eilífðarnóns semja hér um meiri
launahækkanir en nágrannaþjóðir
okkar af því að við borgum laun í
íslenskum krónum.
Erlendir fjármagnseigendur
koma vissulega með mikið
fé inn í íslenska hagkerfið
um þessar mundir en þeir
fjárfesta ekki í íslenskum
atvinnurekstri. Þeir koma
einungis til að hirða vaxta-
mun þegar vextir hér eru
orðnir 3-4 faldir miðað
við nágrannalöndin. Þannig hafa
spákaupmenn tekið íslensku krón-
una í gíslingu.
Matvælaverð hér var, síð-
ast þegar það var skoðað, 48%
hærra en að meðaltali í ESB. Sú
staða hefur versnað ef eitthvað
er. Almenningur í landinu er ekki
sáttur við þetta en stjórnvöld telja
að þetta sé okkur fyrir bestu.
EKKERT GERIST
Því er haldið fram að aðild að ESB
hafi ekkert með matvælaverð að
gera. Við getum sjálf breytt skött-
um og tollum á matvælum. Þetta
er ugglaust fræðilega hægt rétt
eins og það er fræðilega hugsan-
legt að hér verði einhvern tíma
sömu eða lægri vextir heldur en í
evrulöndunum. Gallinn er bara sá
að þetta gerist ekki.
HVAÐ GERÐU SVÍAR?
Á fróðlegum fundi, sem SVÞ stóðu
fyrir nú nýlega, rakti Tomas Svat-
on frá Svensk Dagligvaruhandel
þróun matvælaverðs í Svíþjóð
undanfarin 15 ár. Neysluvísitalan í
Svíþjóð hefur hækkað um 35% en
matvælaverð innan við 5%. Getum
við eitthvað lært af Svíum í þess-
um efnum? Hvernig fóru þeir að?
1. Þeir drógu verulega úr innflutn-
ingshömlum og niðurgreiðslum
á landbúnaðarafurðum upp úr
1990.
2. Þeir gengu í ESB 1995 og afnámu
þar með hindranir í viðskiptum
með matvæli innan ESB.
3. Þeir afnámu vörugjöld og settu
öll matvæli í eitt VSK-þrep sem
er 12% en almennt er VSK 25%
í Svíþjóð.
4. Þeir hafa fengið inn á sænska
markaðinn samkeppni frá
stórum matvörukeðjum í Evr-
ópu sem ekki höfðu áður haft
áhuga á að starfa á sænskum
matvörumarkaði.
VIÐ VITUM HVAÐ ÞARF AÐ GERA:
Afnema tolla og hindranir. Lag-
færa skattlagningu og afnema
vörugjöld og tryggja öfluga sam-
keppni á markaði. Því miður segir
reynslan okkur að flest þau fram-
faraspor, sem stigin hafa verið hér
á landi varðandi frelsi í viðskipt-
um og skýrar og eðlilegar leikregl-
ur á markaði, hafa komið að utan
og oftar en ekki hefur þeim verið
þvingað upp á okkur á grundvelli
alþjóðlegra skuldbindinga. Stærsta
skrefið í þeim efnum er auðvitað
EES-samningurinn. Það er alveg
rétt að við getum ýmislegt gert til
að lækka matvælaverð á Íslandi en
það gerist bara ekkert.
EÐLILEGAR ÁHYGGJUR
Íslenskur framleiðsluiðnaður fékk
10 ára aðlögunartíma þegar tollar
voru felldir niður af iðnaðarvöru
með samningum um EFTA-aðild
og fríverslunarsamningum við
Efnahagsbandalag Evrópu sem þá
var. Það er alveg skiljanlegt að
þeir sem starfa í íslenskum land-
búnaði og úrvinnsluiðnaði hafi af
því áhyggjur þegar lagt er til að
minnka eða fella niður þá miklu
tollvernd sem nú er hér á landi.
Því var líka spáð að finnsk-
ur og sænskur úrvinnsluiðnaður
myndi að mestu leggjast af með
ESB-aðildinni. Sú varð ekki raun-
in en það urðu verulegar breyt-
ingar í iðnaðinum. Nú sýna tölur
hins vegar að sala hefur aukist í
þessum iðnaði og Svíar flytja nú
út mun meira af landbúnaðarvör-
um en þeir áður gerðu.
Í ÖKKLA EÐA EYRA
Eðlilegt og best væri að tollar og
aðrar viðskiptahindranir á sviði
landbúnaðarvara væru afnumdar í
áföngum og með alþjóðlegu sam-
komulagi á vettvangi WTO. Þess
vegna er beinlínis átakanlegt að sjá
að við Íslendingar erum í hópi þeirra
þjóða sem harðast beita sér gegn
tollalækkunum á landbúnaðarafurð-
ir en heimtum síðan fríverslun með
fisk og ætlum síðan að gera fríversl-
unarsamning við Kína sem ekkert
vestrænt ríki hefur treyst sér til að
gera. Áhugi okkar á fríverslun er
vægast sagt ýmist í ökkla eða eyra.
Matarverðið og
vextirnir
Kosningafundur í Malmö fyrir nýafstaðnar þingkosningar í Svíþjóð. Undanfarin 15 ár hefur neysluvísitalan í Svíþjóð hækkað um 35 prósent
en matvælaverð um innan við 5 prósent. Greinarhöfundur spyr hvort við getum eitthvað lært af Svíum í þessum efnum og hvernig þeir
hafi farið að.
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, skrifar um
matvælaverð.
Skýringarmynd sem fylgdi fyrirlestri Tomas Svaton og sýnir hvaða áhrif afnám hafta og
niðurgreiðslna, aðild að ESB, breytingar á VSK og vörugjöldum og erlend samkeppni hefur
á matvælaverð.
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is