Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 66
■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■26
„Það sem ber kannski fyrst að nefna
er að um næstkomand helgi verðum
við með leiðtogaskóla fyrir forystu-
fólk nemendafélaganna í iðn- og
starfsnámsskólum landsins. Á nám-
skeiðinu verður farið í almenna
stjórnsýslu nemendafélaganna og
farið yfir mikilvæga punkta sem
flestir nemendafélagsmenn hafa
ekki áttað sig á fyrr en tímabili
þeirra er lokið,“ segir Guðni Rúnar.
„Reyndir leiðbeinendur úr
félagsstarfi munu koma að leiðtoga-
skólanum; þetta er fólk sem hefur
starfað lengi á sviði æskulýðs-
mála eða hjá Iðnnemasambandinu.
Þetta mun gefa okkur nýja vídd í
starfsemina, í iðn- og starfsnáms-
skólum er aldursdreifing nemenda
mun meiri en í bóknámsskólum og
því er það dálítið misjafnt hvernig
nemendafélögin hafa virkað. Við
teljum það mjög mikilvægt að efla
félagslífið í skólunum því rann-
sóknir hafa sýnt að gott framboð
í félagslífi spornar mjög við brott-
falli úr skólum og stuðlar jafnframt
að meiri námsáhuga,“ segir hann
og bætir því við að sú stefna sem
Iðnnemasambandið hafi tekið sé
að berjast meira fyrir hagsmunum
nemenda innan veggja skólana.
Landsþing Iðnnemasambands
Íslands verður nú haldið í 64. skipti
og býst Guðni Rúnar við líflegu
þingi. „Ég á von á því að einna
helst verði tekinn fyrir úrskurður
Jónsnefndar svokallaðrar sem heit-
ir svo eftir formanni nefndarinnar,
Jóni B. Sigurðssyni. Þessi nefnd var
að koma með nýjar og ferskar hug-
myndir um uppsetningu framhalds-
skólanna og þykja þær víst dálítið
róttækar.“
Að lokum vill Guðni minna á að
Iðnneminn, blað Iðnnemasambands
Íslands, kemur út á dögunum.
- vör
Leiðtogaskóli fyrir
nemendafélög
Nóg er um að vera hjá Iðnnemasambandi Íslands á
næstunni. Guðni Rúnar Jónasson, formaður INSÍ, fræddi
blaðamann um það sem ber hæst hjá þessu fornfræga
sambandi.
Guðni Rúnar Jónasson, formaður Iðn-
nemasambands Íslands, segir margt vera á
döfinni hjá INSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Lysing_silfurfat_5x200mm
Við viljum að
þú náir árangri
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
“Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum
eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a›
ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi›
er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum
vi› a› velgengni okkar byggist á velgengni
vi›skiptavinanna.“
Gu›rí›ur Ólafsdóttir
Yfirma›ur fyrirtækjasvi›s