Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 80

Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 80
MARKAÐURINN 20. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR18 F Y R S T O G S Í Ð A S T Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Hér á landi eru engar merkingar á kínversku, hvorki í Flugstöðinni né annars staðar, skortur er á kín- verskumælandi túlkum og leið- sögumönnum og lítið sem ekkert sérhæft efni er til sem sniðið er að Kínverjum. Hótelherbergi mætti laga betur að þeirra smekk og þörfum, vestrænn morgun- verður er þeim oft ekki að skapi - þeir eru til að mynda vanir heitum mat á morgnana - en fáir staðir taka tillit til þess. Þar að auki eru margir Kínverjar hrifn- astir af eigin matargerð en fátt er um kosti þegar snýr að úrvali af kínverskum veitingastöðum. Þetta var meðal þess sem kom fram á morgunverð- arfundi Útflutningsráðs, Viðskiptaþjónustu utanríkisráðu- neytisins og Ferðamálastofu þar sem fundargestir veltu því fyrir sér hvernig laga mætti íslenska ferðaþjónustu að þörfum kín- verskra ferðamanna, sem viðbúið er að muni fjölga gríðarlega hér sem annars staðar í heiminum á komandi árum. Á fundinum voru þau Isis Cai og Pétur Yang Li, viðskipta- fulltrúar við sendiráð Íslands í Peking. Isis sagði meðal annars frá því hverjar þarfir kínverskra ferðamanna væru og benti á hvernig mætti bæta þjónustuna við þá. Pétur fræddi fundar- gesti um menningarlegan mun á Kínverjum og Vesturlandabúum og hvernig mætti brúa það bil sem myndast getur í samskiptum þeirra á milli. Fundinum stjórnaði Eiður Guðnason, fráfarandi sendi- herra Íslands í Kína. Sagðist hann hafa komist að því þegar hann gegndi starfi sendiherra í Kína að Kínverjar vissu töluvert mikið um Ísland. Það væri ekki síst vegna þess að Ísland á sitt eigið nafn á kínversku - Bingdao - eða íseyjan. Hin Norðurlöndin eru ekki svo heppin. Hann sagði hreina vatnið, víðernið og fólks- fæðina meðal þess sem helst hrifi Kínverja við Ísland, enda engu af þessu fyrir að fara í stórborgum í Kína. Ársæll Harðarson, for- stöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu, tók í sama streng og Eiður. Sagði hann þá staðreynd að Ísland ætti sér nafn á kínversku afar mikilvæga í markaðsstarfi Ferðamálastofu í Asíu. Hann segir stofuna gera ráð fyrir því að ferðamönnum frá Asíu muni fjölga hraðast allra markaðssvæða í framtíð- inni. Kínverjar ferðast mest á tímabilinu maí til nóvember og einkum og sér í lagi á seinni hluta þess tímabils. Með því að vekja áhuga Kínverja á Íslandi mætti því lengja ferðamannatímann hér á landi, sem er eitt af mark- miðum ferðamannaiðnaðarins. Álitið er að um 120 milljónir Kínverja muni fara til útlanda árið 2020 en til samanburðar ferðuðust 29 milljónir Kínverja úr landi árið 2004. Gríðarlegur hagvöxtur hefur verið í landinu að undanförnu og kaupmáttur aukist gríðarlega. Þar að auki eru einungis fáein ár frá því losað var um þær hömlur að Kínverjar þurftu sérstakt boðsbréf til að ferðast til útlanda. Þetta hefur gert það að verkum að Kínverjar eiga nú mun auðveldara með að ferðast en áður. Eitt af því sem taka verð- ur tillit til er að ferðamynstur Kínverja er allt annað en okkar. Þegar þeir leggja land undir fót ferðast þeir langoftast í hópum og vilja sjá mörg lönd á fáum dögum. Þannig má gera ráð fyrir að kínverskir ferðamenn sem hingað koma staldri við í tvo til fjóra daga. Kínverskum ferða- mönnum á Íslandi hefur fjölgað verulega ár frá ári og sú þróun heldur hratt áfram upp á við. Því er ekki seinna vænna að átta sig á því hvaða þarfir þessi ört vaxandi hópur hefur. Vafalaust liggja mörg tækifæri falin hand- an við hornið og bíða þess að verða gripin. Að krækja í kín- verska ferðamenn Kínverskum ferðamönnum á Íslandi fjölg- ar ár frá ári. Ferðamynstur Kínverja er allt öðruvísi en Íslendingar eiga að venjast og ýmislegt þarf að gera til laga ferðaþjónustu hér á landi að þeirra þörfum. KÍNVERSKUM FERÐAMÖNNUM FER HRATT FJÖLGANDI UM HEIM ALLAN Ísland á sér eigið nafn á kínversku - Bingdao eða íseyjan - sem þykir mikill kostur í markaðsstarfi Ferðamálastofu í Kína. Kínverjar hrífast helst af hreina vatninu, víðerninu og fólksfæðinni hér á landi. Síðumúli 28 108 Reykjavík Ísmar hefur flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt húsnæði að Síðumúla 28. Opið hús sunnudaginn 24. september kl. 13-17, þar sem kynntar verða helstu nýjungar sem fyrirtækið býður upp á fyrir framkvæmda- og fagaðila. Verið velkomin. Sími 510 5100 www.ismar.is Athugið nýja staðsetningu okkar! E 359973.547 N 406534.807 Ic o n A u g lý s in g a h ú s
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.