Fréttablaðið - 20.09.2006, Síða 81

Fréttablaðið - 20.09.2006, Síða 81
19 Gervilima- og stoðtækjafyrir- tækið Össur hefur skrifað undir styrktarsamning við Oscar Pistorius, nítján ára gamlan heimsmethafa í 100, 200 og 400 metra hlaupi í sínum flokki. Tvö metanna setti hann nýverið á heimsmeistaramóti fatlaðra í Assen í Hollandi. Oscar, sem er fótalaus fyrir neðan hné á báðum fótum, var hér á landi í síðustu viku til að aðstoða við prófun hlaupafóta sem Össur sérsmíðar á hann og stefnir á að keppa við ófatlaða hlaupara á Ólympíuleikunum í Kína. Til þess að það geti orðið að veruleika segist hann þurfa að bæta tíma sinn í 400 metra hlaupi um eina og hálfa sekúndu á næstu tólf mánuðum. “Það verður sjálfsagt rosalega erf- itt, en ég held að það sé vel m ö g u l e g t og þá ekki síst vegna þ e i r r - ar miklu aðstoðar sem ég nýt frá Össuri,” segir hann. Besti tími Oscars í 400 m hlaupi er 47,3 sekúndur en til að keppa meðal ófatlaðra þarf hann að ná að hlaupa 400 metrana á 45,5 til 45,8 sekúndum. Til samanburðar má nefna að besti tími í 400 metra hlaupi karla hér á landi á þessu ári er 48,86 sekúndur. Þannig er hans besti tími um einni og hálfri sekúndu betri en sá besti hjá íslenskum hlaupurum það sem af er árinu. “Markmið Oscars er að ná lág- markstíma í 400 metra hlaupi til þess að keppa á Ólympíuleikum meðal ófatlaðra árið 2008 og yrði hann þar með fyrsti fatlaði íþróttamaðurinn til að ná slíkum árangri,” segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og bætir við að fyrirtækið sé stolt af því að fá að hjálpa honum að ná þessu metnaðarfulla markmiði. “Ég sagði við Oscar að ég gæti óhræddur lofað hverjum þeim forstjórastöðu hjá fyrirtækinu sem þættist geta unnið hann í spretthlaupi, enda er enginn á landinu jafnsprettharður og hann. Oscar er hrað- skreiðasti hlauparinn sem staddur er á land- inu og þó hefur hann misst báða fætur,” benti forstjórinn á í ræðu sinni, en Oscar var aflimaður á báðum fótum vegna fæðingar- galla þegar hann var einungis ellefu mánaða gamall. Össur styrk- ir Oscar með fjárfram- lagi út árið 2010 ásamt því að sérsmíða á hann hlaupafætur. Össur er alþjóð- legt fyrirtæki sem hannar og framleið- ir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði og annar stærsti stoðtækjafram- leiðandinn í heiminum. Hjá fyrirtækinu starfa um 1.200 starfsmenn á þrettán starfs- stöðvum víðs vegar um heim. Höfuðstöðvarnar eru hins vegar hér á landi, en starfsstöðvarnar eru í Bandaríkjunum, Kanada, Hollandi, Bretlandi, Svíþjóð og Ástralíu. Á vef fyrirtækisins kemur fram að hlutverk þess sé “að hjálpa fólki að njóta sín til fulls” með því að ryðja úr vegi lík- amlegum hindrunum af völdum sjúkdóma eða aflimunar með því að framleiða bestu stoð- og stuðningstæki sem völ sé á. “Sú þekking sem skapast hefur innan fyrirtækisins er grunnurinn að auknum vexti og nýsköpun í rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins. Metfjárfesting á þessu sviði speglast í þeim mikla fjölda af nýjum vörum sem eru kynntar á hverju ári,” segir þar og áréttað er að áfram muni fjár- fest í öflugu rannsóknar- og þró- unarstarfi, en hluti af slíku starfi er þróun sérstakra hlaupafóta á borð við þá sem Oscar Pistorius kemur til með að nota. SKRIFAÐ UNDIR Oscar Pistorius, suður-afrískur spretthlaupari, og Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, skrifa undir samning þar sem Össur skuldbindur sig til að styrkja hlauparann unga, sem er fótalaus neðan við hné, bæði fjárhagslega og með hönnun gervifóta sem gera eiga honum kleift að keppa við fullfríska íþróttamenn á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. MYND/GVA Össur styrkir spretthlaupara HLAUPAFÓTUR á borð við þann sem Oscar Pistorius kemur til með að nota. Markmið Oscars er að ná lágmarkstíma í 400 metra hlaupi til þess að keppa á Ólympíuleikum meðal ófatlaðra árið 2008 og yrði hann þar með fyrsti fatl- aði íþróttamaðurinn til að ná slíkum árangri ha gb an n ha gb ar ðu rh ag be it ha gb or in n ha gf ár ha gl ít ill ha gf el ld ur ha gf el li ha gf ræ ði ha gf ræ ði ng ur ha gf æ ri ng ur ha gf æ ri ng s l am bh ag ih ag ke rf ih ag kv eð lin ga há tt ur ha gk vi st ih ag kv æ m ni ha gk væ m ur ha gl ha gl au s h ag lei ku rha glen dihag leysahaglítill haglýsinghagm æ lskahagm æ lturhagnahagnaðurhagnýtaha gný tin gh ag ný tu rh ag or ðh agþ róunhagvöxturhaggþróun sve iflurhagræðahagræ ðihagræðing ha gr æ nn hagsam ur st ef nah agstjórn hagstjórn ar tæ ki sb ót ha gs ka rp th ags keytturhagskiptihagskýrslahagsmiður sm íð ur ha gsmunir Greiningardeild Landsbankans býður til morgunverðarfundar mánudaginn 25. september kl. 8:00 til 9:40 á Hótel Nordica. Á fundinum verður leitað svara við spurningum sem eru ofarlega á baugi í efnahagsmálum. • Hvert stefnir hagkerfið? • Hvert stefnir fasteignamarkaðurinn? • Hvert stefnir krónan? • Hvert stefnir Seðlabankinn? Dagskrá: 8:00 Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, setur fundinn 8:05 Höldum til hafs á ný Björn Rúnar Guðmundsson og Lúðvík Elíasson kynna hagspá Landsbankans 2006-2015. 8:45 Hentar núverandi fyrirkomulag peningamála? Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs, fjallar um stjórn peningamála við skilyrði stórfjárfestinga og opins fjármagnsmarkaðar. 9:20 Umræður og fyrirspurnir 9:40 Fundarlok Fundarstjóri: Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Boðið verður upp á morgunverðarhlaðborð frá kl. 7:45. Vinsamlega skráið þátttöku á vef Landsbankans fyrir kl. 16, sunnudaginn 24. september. Hagspá Landsbankans 2006–2015 Hvert stefnir?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.