Fréttablaðið - 20.09.2006, Qupperneq 101
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 33
„Ég verð að segja nei við þessu,
einfaldlega vegna þess að við
höfum ekki rætt þetta,“ svarar
Steinn Eiríksson, sveitarstjóri í
Borgarfjarðarhreppi, þegar hann
er inntur eftir því hvort til standi
að nefna einhver kennileiti eftir
nýjustu stjörnu byggðarinnar,
Magna Ásgeirssyni. „Við erum
hins vegar rosalega stolt af Magna
og því sem hann hefur
afrekað og ekkert
útilokað að við
gerum eitthvað fyrir Magna en þá
í fullu samráði við hann,“ heldur
Steinn áfram. „Þetta er jú líka
spurning um hvað hann vill,“
bætir sveitarstjórinn við.
Borgarfjörður eystri hefur
verið töluvert í fjölmiðlum þetta
sumarið, ekki eingöngu vegna vel-
gengni Magna í sjónvarpsþættin-
um Rock Star heldur
hefur tónlistarlífið
verið með eindæm-
um blómlegt þar
eystra. Emilíana
Torrini hélt tón-
leika þar fyrr í sumar
ásamt skosku sveitinni
Belle & Sebastian og seg-
ist Steinn finna vel
fyrir auknum
áhuga á sveit-
inni. „Það eru
þá sér í lagi
Íslendingar
sem eru að
bæta í og vilja
skoða náttúruna og svo er meist-
ari Kjarval náttúrlega mjög tengd-
ur þessum stað,“ segir sveitar-
stjórinn, stoltur af sínu fólki. „Við
eigum mikið af „víkingum“ sem
hafa verið að gera það gott þó þeir
fái ekki jafn mikla athygli og
Magni,“ bætir Steinn við. - fgg
Borgfirðingar stoltir af sonum sínum
MAGNI ÁSGEIRSSON
Stóð sig eins og
hetja í Rock Star
og er ekki úti-
lokað að hann
fái eitthvert
kennileiti
nefnt í
höfuðið á
sér.
EMILIANA TORRINI
Kom í heimsókn til
Borgarfjarðar ásamt
hljómsveitinni Belle
& Sebastian en
tónleikarnir vöktu
mikla athygli.
JÓHANNES KJARVAL
Hafði mjög sterk
tengsl við náttúruna á
Borgarfirði eystri.
Nýjasta bók Pauls Burrell, The
Way We Were, hefur valdið miklu
fjaðrafoki í Bretlandi en þar held-
ur Burrell áfram að segja frá árum
sínum í þjónustu
Díönu prinsessu.
Nú hefur fyrr-
verandi mág-
kona Díönu,
Sarah Ferguson,
ákveðið að koma
Díönu til varnar
og segir bókina
vera til hábor-
innar skammar.
„Fyrst hann fær
eitthvað út úr því
að skrifa um látna manneskju sem
getur enga vörn sér veitt þá verð-
ur svo að vera,“ sagði Ferguson í
spjallþættinum Good Day L.A. og
var greinilega heitt í hamsi, sér-
staklega vegna þess að Burrell
lætur að því liggja að synir Díönu
og Karls Bretaprins, Vilhjálmur
og Harry, heiðri ekki lengur minn-
ingu móður sinnar. „Við elskum
hana öll en af hverju getur fólk
ekki bara látið hana og strákana í
friði?“ sagði Fergie.
Fergie ver
Díönu
SARAH FERGUSON
Þrátt fyrir ágætis dóma og mikið
auglýsingaflóð virðast bandarísk-
ir kaupendur ekki vera ginkeyptir
fyrir fyrstu plötu
hótelerfingjans
Parisar Hilton,
„Paris“.
Þetta kemur
nokkuð á óvart
því smáskífu-
lagið Stars Are
Blind hefur feng-
ið ágætisspilun á
MTV og útvarps-
stöðvunum en
það virðist
hreinilega ekki nægja. Popparar á
borð við Beyoncé, Justin Timber-
lake og Janet Jackson skjóta þess-
ari fyrirsætu ref fyrir rass, en
platan hefur selst í 120 þúsund
eintökum, sem þykir lítið í Banda-
ríkjunum. Bandaríska fréttastof-
an Fox News gerði mikið gys að
plötunni og Paris og spáði því að
fólk myndi muna eftir henni sem
spurningu í borðspilinu Trivial
Pursuit.
Þessar fréttir eru áfall fyrir
tónlistardeild afþreyingarrisans
Warner Bros, en fyrirtækið hefur
ekki átt plötu á toppnum síðan
nýjasta afurð hljómsveitarinnar
Red Hot Chili Peppers kom út.
Paris veldur
vonbrigðum
PARIS HILTON
Fótboltakappanum David Beck-
ham var boðin smáskífa með söng-
konunni Lily Allen að gjöf en þver-
tók fyrir að þiggja hana því Allen
hafði verið „hundleiðinleg“ við
Victoriu, spúsu hans. Beckham
var í útvarpsviðtali og bauð spyrill-
inn honum geisladiskinn að gjöf.
Haft hefur verið eftir Allen að
Victoria Beckham sé slæm fyrir-
mynd ungra stúlkna þvi hún eigi
greinilega við átröskun að stríða.
Beckham segir það bull og þvælu
og finnst Victoria líta vel út, „sér-
staklega þegar hún klæðir sig í
búninginn minn“.
Beckham játaði enn fremur í
viðtalinu að hann væri vinafár og
hefði lítið samband við vini sína úr
grunnskóla.
Fúll út í
Allen
BECKHAM OG FRÚ David finnst Victoria
sæt, þótt grannholda sé.
STEINN EIRÍKS-
SON Stoltur af
firðinum sínum
sem fengið hefur
mikla athygli í
sumar og segist
finna vel fyrir aukn-
um áhuga í kjölfar
velgengni Magna
Ásgeirssonar.