Fréttablaðið - 27.09.2006, Side 22
[ ]
Erlendur Eyvindarson smit-
aðist af flugbakteríunni fyrir
mörgum árum.
Erlendur ákvað loks að láta draum-
inn rætast, lærði flug og lauk flug-
kennaranámi fyrir skemmstu.
„Það var margt sem spilaði inn
í. Bróðir minn tók sólóið á sínum
tíma, ég bjó nánast við hliðina á
flugvellinum á Selfossi þegar ég
var yngri og vinnuveitandi minn á
þeim tíma sem ég tók fyrstu tím-
ana var flugmaður. Ég fékk líka að
grípa í nokkrum sinnum og fannst
það rosalega skemmtilegt. Allt
varð þetta til þess að ég smitaðist
af bakteríunni, og hún er ólækn-
andi,“ segir Erlendur.
„Ef menn taka þetta með trukki
geta þeir klárað bóklega kaflann
fyrir einkaflugmanninn á einu
vori, og tekið svo verklega hlutann
yfir sumarið. Veðrið á Íslandi er
þannig að það er mikið betra að
læra að fljúga á sumrin. Ég tók
verklega hluta atvinnuflugmanns-
ins yfir vetur og mæli ekki með
því með tilliti til tíma en það er
aftur á móti hinn ágætasti skóli í
„óveðurfræði“.“
Bóklegi hlutinn af atvinnunám-
inu er yfir 1.000 tímar og verklegi
hlutinn að lágmarki 25 tímar með
kennara að viðbættum 40 tímum í
flughermi. Að auki verður maður
að hafa flogið að minnsta kosti 200
tíma samtals. Til viðbótar er flug-
kennaranámið um 155 bóklegir
tímar og 30 verklegir.
Erlendur telur það ekki eftir
sér að hafa stundað námið með
fullri vinnu. „Þetta er ekki svo erf-
itt. Til dæmis er bóklegi parturinn
mög skemmtilegt nám. Maður
lærir margt sem hægt er að nota
annars staðar en í fluginu, eins og
vélfræði, áttavita, GPS og fleira,“
segir Erlendur.
En er ekki dýrt að læra að
fljúga? „Jújú, en sumir kaupa sér
pollabuxur og borga svo offjár
fyrir að standa úti í á. Aðrir fara að
fljúga.“
Flugkennsla er tilvalin leið
fyrir flugmenn að safna upp í 500
tíma lágmarkið sem flest flugfélög
setja sem skilyrði við atvinnuum-
sókn. „Það er ekkert taugastrekkj-
andi að stjórna tæki sem flýgur
um loftið. Ef bílstjórar væru þjálf-
aðir jafn vel í að bregðast við neyð-
arástandi og flugmenn myndi bíll-
sysum fækka umtalsvert,“ segir
Erlendur. „Það er líka alltaf gott
veður skýjum ofar.“
En skyldi flugið ennþá vera
jafnskemmtilegt eftir að alla þessa
tíma í loftinu og allt þetta nám?
„Það er mitt að vita og annarra að
komast að,“ segir Erlendur kank-
vís að lokum.“
einareli@frettabladid.is
Bakterían er ólæknandi
Erlendur hefur nýlokið bæði atvinnuflugmanns- og flugkennaranámi og segir námið
ekkert sérlega erfitt, en hins vegar stórskemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Það þykir ekkert tiltökumál í dag að eiga bíl með beinni innspýtingu
en fram til ársins 1990 var það allt annað en sjálfgefið. Þó svo að
beinar innspýtingar hafi þekkst alla tíð frá miðri síðustu öld er það
ekki fyrr en kröfur um minni mengun og eyðslu urðu háværar undir
lok aldarinnar að þær náðu almennri útbreiðslu.
Fyrir daga innspýtinga mötuðu blöndungar vélar á eldsneytis-
blönduðu lofti sem þær kveiktu svo í. Sú blanda þarf að vera rétt til
að vélin gangi góðan gang, eða yfirhöfuð, og hægt var að stilla blönd-
ungana handvirkt til að hafa áhrif á blönduna. Beinar innspýtingar
eru hins vegar flóknari búnaður sem að megninu til stjórnast af
skynjurum og rafboðum. Bregðum upp einfaldri
mynd.
Þegar þú stígur á bensíngjöfina ertu í
raun bara að opna fyrir loft inn á vélina.
Loftgjöf væri því kannski réttara
nafn. Vélatölvan „sér“ að búið er að
opna loftinntakið og sendir boð eftir
meira bensíni sem lendir í strokk-
unum á sama tíma og loftið. Hitti
það ekki á réttan tíma hikstar vélin
meðan blandan er óhagstæð.
Í blöndungsvélum er bensín-
inu blandað við loftið áður en
það kemur inn í strokk en inn-
spýtingabúnaðurinn er með
sér bensíninnsprautunardælu
inn í hvern strokk og sprautar
bensínúða inn í hann, rétt hjá
loftinntaki hans og oft á sek-
úndu ef þess gerist þörf. Þegar
við bætist loftið sem þrýstist
inn í vélina er blandan til.
Meðal lykilskynjara í kerf-
inu, fyrir utan þann sem er við loftinntakið, er nemi sem skynjar
loftflæði inn í vélina og annar sem mælir súrefni í útblæstri. Skila-
boð frá þessum skynjurum hjálpa til við að fínstilla blönduna, sem er
sitt á hvað sprautað inn í alla strokka samtímis, eða í hverjum strokki
rétt áður en loftinntaksventillinn fyrir þann strokk opnast, eftir því
hvernig innsprautun ræðir um.
Meðal annarra skynjara sem hjálpa vélinni að skila öllu sínu eru
hitaskynjari fyrir vélina, spennuskynjari, þrýstingsskynjari í púst-
grein og skynjari sem nemur vélarhraðann. Allir hjálpa þeir til við
að safna mikilvægum gögnum fyrir vélatölvuna sem matar strokk-
ana svo á bensíni eftir því sem best á við hverju sinni, í stað þess að
gefa alltaf sömu blönduna. Þannig nást hámarksafköst og nýtni við
allar aðstæður.
Hámarksafköst
og nýting
Langflestar bílvélar í dag eru búnar beinni
innspýtingu. Kosturinn við þær er sá
breytileiki á eldsneytisnotkun sem þær
bjóða upp á.
HVAÐ ER... BEIN INNSPÝTING?
Kaupendur fengu glaðning.
Á dögunum afhenti Toyota
Kópavogi 4.444. nýja bílinn sem
seldur er á árinu en um var að
ræða bíl af gerðinni Toyota
Hilux Double Cab.
Það var Magnús Kristins-
son, eigandi Toyota á Íslandi,
sem afhenti bílinn en kaupend-
ur voru þau Magnús Örn Guð-
mundsson og Sigrún Hjörleifs-
dóttir. Þeim hjónum var af
þessu tilefni færður Toyota
glaðningur og gjafabréf upp á
flugferð fyrir tvo til Evrópu
með Icelandair.
Toyota
númer 4.444
Frá vinstri: Friðrik H. Friðriksson sölu-
maður hjá Toyota Kópavogi, Magnús
Kristinsson, eigandi Toyota, Magnús
Örn Guðmundsson, Sigrún Hjörleifs-
dóttir og Úlfar Steindórsson, forstjóri
Toyota á Íslandi.
Bílastæði eru víða af skornum skammti. Því er
gott að vanda sig við lagninguna þar sem lítið þarf til
að bíllinn taki tvö stæði.
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
Varahlutir ehf
Smiðjuvegi 4 A
Kópavogi
Símar: 587-1280 849-5750
LAND-ROVER EIGENDUR
VIÐ HÖFUM FLESTA VARAHLUTI
FYRIR YKKUR Á LAGER
24 TÍMA ÞJÓNUSTA.
FYRIR LENGRA KOMNA
SELJUM VIÐ HINN FRÁBÆRA
SANTANA PS10
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI