Fréttablaðið - 27.09.2006, Síða 53

Fréttablaðið - 27.09.2006, Síða 53
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 Að þessu sinni verða rafknúnir ruslagámar gerðir að umræðu- efni vikunnar. Á liðnum árum hef ég fengið upphringingar frá fólki víðs vegar um landið sem hefur séð börn vera að fikta í rafknúnum ruslagámum fyrir utan ýmis fyrirtæki. Þess er skemmst að minn- ast þegar tveir drengir létust í Svíþjóð fyrir nokkrum árum í blaðagámi, en þeir höfðu skrið- ið inn í hann og komust ekki út. Skömmu síðar var gámurinn tæmdur í bíl með pressubúnaði og þeir krömdust til dauða. Litlu munaði að dauðaslys yrði hér á landi þegar drengur fór upp í rafknúinn gám. Það var fyrir tilviljun að starfs- maður kom að og tókst honum að losa drenginn. Drengurinn var hættur að anda þegar komið var að honum og hóf starfsmaðurinn endurlífgun sem bjargaði lífi hans. WStundum ofmetum við stálpuð börn, teljum að þau eigi að vita um allar hættur eins og við. Staðreyndin er sú að börn hafa ekki þroska og getu til að forðast hættur fyrr en við 12 ára aldur. Rafknúnir rusla- gámar virka á börn eins og spennandi leiktæki en þau sjá engar hættur. Ekki má gleyma því að talsvert er um einelti og það mætti sjá það fyrir að einhverjum börnum gæti dott- ið í hug að nota slíkan gám til þeirra verka með skelfi- legum afleiðingum. Önnur ástæða fyrir áhuga barnanna á gámunum er verðmætaleit. Þegar slysið varð í Svíþjóð höfðu tugir foreldra samband og sögðu frá því að þeir hefðu komist á snoður um að börnin væru að fara í gámana því þar væri ýmislegt áhugavert að finna. Herdís L. Storgaard Forstöðumaður Sjóvá Forvarnahúss Eru rafknúnu ruslagámarnir öruggir við þitt fyrirtæki? ���������������������������������� ���������������������������������� �� ����� ���� ����� ���������� ��� ��������� �� ��������� ����� ���� ����������� ����������������� ���� ������������� �������� �� ��� ������ ��� ������ �������������� � � ����� ��������� ��� ����� ���� ������ ������������� ��� ��������������� ��������������� �� ������ ����� ����� �������������� ���� ��������������� Ég búinn að vera í ánægjulegri flugferð með Hannesi Smárasyni að undanförnu. Ferðalagið með honum er ekki fyrir flughrædda, en við sem höfum allar taugar í lagi sitjum bara og njótum útsýn- isins. Nú er hann að selja flugfélag- ið og að innleysa fullt af pening- um. Hannes og Jón Ásgeir eru nú ekki vanir að hafa peninga lengi kjurra hjá sér þannig að það verður veruleg aksjón hjá þeim á næstunni. Ég spái því að FL og Baugur eigi eftir að fara í stóra pakka á næsta ári. Annars tók ég smá snúning á Dagsbrún. Kæri Jón, takk fyrir það. Bréfið frá Marshall og óvissan um félagið lækkuðu bréfin og ég veðjaði á skammtímahagnað þegar þokunni létti og seldi í gær. Ég bætti bara við mig í FL fyrir vikið og hugsaði til þess með hryllingi ef ég hefði setið eftir í Avion. Þetta var svaka- lega vont uppgjör hjá þeim. Vonandi að þeim takist að ná utan um félgaið. Ég held að þeir séu með fínt lið, en það er rosa- lega mikið verk óunnið hjá þeim áður en þetta félag getur farið að blómstra á ný. Sumt virðist í lagi hjá Eimskip, en sá bransi er svo helvíti erfiður og leiðinleg- ur. Endalaus kostnaðarvitund og rúmmetranýting. Maður verður sjóveikur af slíkum veltingi. Þá er flugferð skemmtilegri. Ég spái því líka að FL verði búið að selja flugreksturinn sinn á næstu misserum og verði þá bara í retail og framleiðslufyrirtækj- um með mikinn vöxt og öflugt sjóðstreymi. Annars er ég frekar smeyk- ur við síðasta hluta ársins. Enda þótt búið sé að hreinsa mikið af skuldsettum aumingjum af þessum markaði, þá er náttur- lega erfitt að keppa við þessa stýrivexti og svona óvissa og hættulega krónu. Maður verður því áfram með slatta í erlendum eignum með erlendri fjármögn- un svo maður eigi ekki allt undir geðveikinni hér heima. Maður hefur nú samt alltaf smá gaman af þessari heimaklikkun, enda römm sú taug sem rekka dreg- ur föðurtúna til. Maður verður samt alltaf að hafa annan fótinn í veruleikanum, svo er gott fyrir sálina að eiga regluleg erindi til útlanda. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K U P M A Ð U R I N N Allir á flugi með Hannesi 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.