Fréttablaðið - 27.09.2006, Síða 58
MARKAÐURINN 27. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR18
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Stuart Hanbury lögfræðingur
hefur verið ráðinn til starfa hjá
Baugi í Bretlandi. Hanbury starf-
ar hjá lögfræðistofunni Allen &
Overy sem hefur aðsetur í City,
fjármálahverfi Lundúnaborgar.
Baugur hefur skipt við Allen
& Overy frá árinu 2004 og veitir
stofan Baugi ráðgjöf við stærri
viðskipti. Allen & Overy hefur
meðal annars ráðlagt Baugi í
kaupferli vöruhúsakeðjunnar
House of Fraser. Hanbury er
annar lögfræðingurinn sem tekur
til starfa hjá Baugi í Bretlandi á
þessu ári. - jsk
Baugur ræður
lögfræðing
HOUSE OF FRASER
Stuart Hanbury er á mála hjá lögfræðistofu
Allen & Overy, sem hefur ráðlagt Baugi í
kaupferli House of Fraser.
Stjórnendur og aðrir þeir sem
koma að rekstri fyrirtækja, eða
hyggjast stofna
f y r i r t æ k i ,
geta nú bros-
að breiðara og
andað léttar. Í
samstarfi við
SPRON hefur
Páll Kr. Pálsson
gefið út bók-
ina Handbók
athafnamanns-
ins. Bókin, sem
er ekki hugsuð
sem fræðirit
heldur sem aðgengilegt uppflett-
irit, nýtist þeim vel sem vilja
bæta við sig á grunnsviðum sem
atvinnulífið byggir á. Er meðal
annars fjallað um mannauðinn
í fyrirtækjum, stefnumótun,
markmiðasetningu, stjórnun,
hlutverk og starf stjórna, skipu-
rit og starfsmannamál.
Í fréttatilkynningu frá SPRON
kemur fram að með þátttöku í
verkefninu vilji Sparisjóðurinn
auka aðgengi stjórnenda og
þeirra sem hafa löngun til að
stofna eigið fyrirtæki að upplýs-
ingum um lykilþætti árangurs í
rekstri. Þetta sé einn liður í þjón-
ustu SPRON við rekstraraðila.
- hhs
PÁLL KR. PÁLSSON
Höfundur Handbókar
athafnamannsins.
Handbók
athafnamannsins
komin út
Er þitt fyrirtæki tilbúið?
Sérfræðingar AppliCon eru tilbúnir að aðstoða fyrirtæki þitt við að ná
hámarksárangri. Við sérhæfum okkur í ráðgjöf og þjónustu á
Microsoft viðskiptalausnum:
Sigurður Hilmarsson, hópstjóri Microsoft-lausna
• Stjórnun viðskiptatengsla með Microsoft Dynamics CRM
• Viðskiptaferlar og samþætting upplýsingakerfa með Microsoft BizTalk
• Viðskipta- og árangursgreining með Microsoft SQL
• Upplýsingagáttir með Microsoft SharePoint
Frá áskorun til árangurs!
www.applicon.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI