Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 2
2 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
HLERANIR Erlendir sérfræðingar
hafa undanfarin ár farið skipulega
í ráðuneyti hér á landi og kannað
hvort skrifstofur og símar ráð-
herra séu hleraðir. Hefur embætti
Ríkislögreglustjóra haft yfirum-
sjón með þessu verki enda hlut-
verk þess að gæta að öryggi æðstu
handhafa ríkisvaldsins. Síðustu ár
hefur þetta verkefni verið á hönd-
um norsku öryggislögreglunnar.
Ekki hafa fundist vísbendingar
um að utanaðkomandi aðilar hafi
hlustað á ráðherra á skrifstofum
sínum eða í síma, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
Úttekt erlendu öryggissérfræð-
inganna hefur verið bundin við
forsætisráðuneytið, utanríkis-
ráðuneytið og dómsmálaráðuneyt-
ið. Sérstakar öryggisreglur gilda
um þau ráðuneyti, enda innan
þeirra höndlað með upplýsingar
sem varða þjóðaröryggi og við-
kvæm persónuleg málefni. Er
þessi ráðstöfun því liður í að
tryggja öryggi viðkvæmra
trúnaðarupplýsinga.
Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrverandi utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins, heldur
því fram að sími á skrifstofu hans
í utanríkisráðuneytinu hafi verið
hleraður. Hann hafi árið 1993
fengið kunningja sinn, sem hann
segir að hafi haft undir höndum til
þess gerðan búnað, til að kanna
hvort síminn í ráðuneytinu hefði
verið hleraður.
„Ég tók þá ákvörðun í tilefni af
umræðu sem þá fór fram um alla
Evrópu um njósnastarfsemi, að
láta kanna hvort síminn minn væri
hleraður. Niðurstaðan var að svo
væri,“ segir Jón. Hann viti ekki
hverjir hafi verið þarna að verki.
„En þarna voru Sovétríkin fallin
og líkur mestar á því að það hafi
verið bandaríska leyniþjónustan.
Þá hafði ég ekki hugmynd um að
það væri íslensk leyniþjónusta en
hún kemur auðvitað alveg til
greina.“
Spurður af hverju hann hafi
ekki tilkynnt þetta á sínum tíma
og látið gera ráðstafanir til að
tryggja öryggi upplýsinga í ráðu-
neytinu spyr Jón á móti: „Hverj-
um átti ég að tilkynna um þetta?“
Ástæðan fyrir því að hann hafi
greint frá þessu nú sé einfaldlega
sú að hann hafi verið spurður.
bjorgvin@frettabladid.is sdg@frettabladid.is
Kaupmenn og hagfræðingur Bændasamtakanna um lækkun matarverðs:
Útfærslan á lækkun tolla óljós
SPURNING DAGSINS
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�������������� �
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
Siggi, hvað gerið þið nú fyrst
forgarður helvítis hefur verið
afnuminn?
„Við reisum við helvíti og hellum því
yfir páfagarð. Og við gerum það á
föstudaginn því þá eru tónleikar.“
Siggi Pönk er söngvari hljómsveitarinnar
Forgarðs helvítis en Benedikt páfi íhugar
um þessar mundir að láta fjarlægja for-
garð helvítis úr kennisetningum kaþólsku
kirkjunnar.
MATVÖRUVERÐ Erfitt er að segja til
um áhrif fyrirhugaðrar tolla-
lækkunar stjórnvalda á matvöru,
að sögn Ernu Bjarnadóttur, hag-
fræðings Bændasamtaka
Íslands.
Samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar verða tollar á kjöt-
vörum lækkaðir um allt að 40 pró-
sent. Erna segir að eftir sé að
útfæra þessa tollalækkun. Land-
búnaðarráðherra hafi boðað
nefnd þriggja ráðuneyta til að
vinna þá útfærslu og hún þurfi að
liggja fyrir fyrir áramót til að
breytingin geti tekið gildi 1. mars.
Lítið sé hægt að segja um áhrifin
en væntanlega geti breytingin
komið fram í verðlækkunum til
bænda á innanlandsmarkaði.
„Bændur munu augljóslega
leggja eitthvað af mörkum en við
vitum ekki enn hvað þetta þýðir
fyrir þeirra tekjur því að það veit
enginn hvað allt að fjörutíu pró-
sent þýðir,“ segir hún.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segist
einnig vilja sjá hvernig þessi 40
prósenta tollur verði útfærður.
Almennt segir hann ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar vera jákvætt skref.
„Þetta á eftir að skipta heimilin
miklu máli en maður spyr sig að
því hvernig þessi afsláttur á land-
búnaðarvörum eigi eftir að líta
út,“ segir hann.
Sturla Eðvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, segir að
fyrir utan lækkun virðisauka-
skatts sé ýmislegt óljóst.
„Ég hef ekki séð neina útfærslu
á tollalækkuninni en við munum
skila þessari skattalækkun út í
matvöruverðið. Við fögnum þessu
útspili og viljum leggja okkar af
mörkum,“ segir hann.
Sigurður Arnar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Kaupáss,
fagnar því að matvælaverð lækki.
Hann telur mikilvægt að sam-
hliða þessu verði fylgst með
samkeppnisumhverfinu á mat-
vörumarkaðnum. Hann telur að
lækkunin hafi til dæmis ekki nein
áhrif á mjólkurverð í Krónunni
því þar sé mjólkin seld undir
kostnaðarverði. - ghs
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
ætlar að herða baráttu gegn
dauðarefsingu og reyna eftir
megni að sannfæra Bandaríkin,
Kína og fleiri ríki um að afnema
hana.
Franco Frattini, dómsmála-
stjóri Evrópusambandsins, og
Terry Davis, aðalframkvæmda-
stjóri Evrópuráðsins, skýrðu frá
því að þeir myndu efna til
alþjóðlegrar ráðstefnu um
dauðarefsingar á næsta ári.
Frattini sagði afar mikilvægt
að sannfæra þau ríki sem enn
beita dauðarefsingu um að hætta
því. - gb
Evrópusambandið:
Berst gegn
dauðarefsingu
FRATTINI OG DAVIS Skýrðu fjölmiðlum
frá ákvörðun um að herða baráttu gegn
dauðarefsingum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Farbannsúrskurður yfir
Jesus Sainz, einum af fimm
fyrrverandi starfsmönnum
Íslenskrar erfðagreiningar sem
hafa verið ásakaðir um iðnaðar-
njósnir hjá fyrirtækinu, var í gær
felldur úr gildi af Hæstarétti.
Þess í stað hefur honum verið
gert að setja fram tryggingu að
fjárhæð 4 milljónir króna fyrir
því að hann mæti þegar hann er
boðaður til lögreglu vegna
rannsóknar málsins. Þangað til
hann hefur greitt trygginguna má
hann þó ekki yfirgefa landið. - þsj
Jesus ekki lengur í farbanni:
Þarf að leggja
fram tryggingu
STJÓRNSÝSLA Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Öryrkjabandalags Íslands, fer fram á að Árni
Mathiesen fjármálaráðherra, Baldur Guð-
laugsson ráðuneytisstjóri og allir starfsmenn
sem undir ráðuneytisstjóra falla víki sæti við
meðferð máls sem ÖBÍ höfðar nú vegna
skerðingar og afnáms lífeyrisgreiðslna úr
lífeyrissjóðum til öryrkja. Er óskað eftir að
málið verði falið fjármálaráðherra sem til
þess verður skipaður, svo og ráðuneytisstjóra
og starfsmönnum sem sérstaklega verði til
þess skipaðir.
Kemur þessi krafa til af því að Baldur er
jafnframt stjórnarformaður Söfnunarsjóðs
lífeyrisréttinda, sem er einn þeirra fjórtán
lífeyrissjóða sem um ræðir. „Ráðherra er
vanhæfur þar sem hann skipar ráðuneytis-
stjóra sem formann þessa lífeyrissjóðs.
Þannig eru tengslin milli ráðherrans og
lífeyrissjóðsins,“ segir Ragnar. „Starfsmenn
teljast einnig vanhæfir samkvæmt stjórn-
sýslulögum þar sem ráðuneytisstjórinn hefur
boðvald yfir starfsmönnum sínum.“
Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir
allt of langsótt að ætla honum vanhæfi vegna
skipunar stjórnarformanns. „Undirmaður
gerir yfirmann ekki vanhæfan. Og ég skipa
ekki meirihluta stjórnar heldur er hún skipuð
samkvæmt tilnefningu.“ Árni segist efa mjög
að vanhæfi geti átt við aðra starfsmenn en
ráðuneytisstjórann en málið verði skoðað í
ráðuneytinu. - sdg
Lögmaður ÖBÍ vill að ráðherra, ráðuneytisstjóri og starfsmenn víki sæti:
Óeðlileg tengsl við lífeyrissjóð
LANGSÓTT AÐ MATI RÁÐHERRA Árni M. Mathiesen
efast um að vanhæfi geti átt við aðra starfsmenn
ráðuneytisins en Baldur Guðlaugsson.
VERSLUN KRÓNUNNAR Framkvæmda-
stjóri Kaupáss segir mjólkina þegar selda
undir kostnaðarverði í Krónunni.
Kannað hvort símar
ráðherra séu hleraðir
Sérfræðingar norsku öryggislögreglunnar koma reglulega til Íslands til að kanna
hvort skrifstofur og símar ráðherra séu hleraðir. Engar vísbendingar eru um hler-
anir. Jón Baldvin Hannibalsson segir að hlustað hafi verið á símtöl hans.
SKIPST Á LYKLUM Á SKRIFSTOFU FORSÆTISRÁÐHERRA Í ráðherratíð Davíðs Odds-
sonar og Halldórs Ásgrímssonar var reglulega kannað hvort símar á skrifstofum
þeirra væru hleraðir. Þá eins og nú sjá sérfræðingar norsku öryggislögreglunnar um
framkvæmdina að beiðni Ríkislögreglustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
WASHINGTON, AP Bandaríkjamenn
hafa hafnað beinum viðræðum við
Norður-Kóreumenn um kjarn-
orkuvopn og ítrekuðu þá afstöðu
sína í gær. Norður-Kóreumenn
hafa árum saman viljað beinar
viðræður við Bandaríkjamenn um
deiluna, sem náði hámarki þegar
Norður-Kóreumenn sprengdu öfl-
uga sprengju, hugsanlega kjarn-
orkusprengju, í byrjun vikunnar.
„Ef þeir vilja tala við okkur
þurfa þeir ekki annað en að kaupa
sér flugmiða til Peking,“ sagði
John Bolton, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun-
um.
Norður-Kóreumenn fullyrða að
sprenging sem mældist á
jarðskjálftamælum aðfaranótt
mánudags hafi verið kjarnorku-
sprenging. Bandarísk stjórnvöld
sögðu í gær hugsanlegt að aldrei
yrði hægt að staðfesta það. - gb
HÁTÍÐ Í NORÐUR-KÓREU Því var í gær
fagnað að 61 ár var liðið frá því Komm-
únistaflokkur landsins var stofnaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hafna viðræðum við N-Kóreu:
Óstaðfest hvort
þetta var kjarn-
orkusprengja
Handtekinn með hass
Lögreglan í Reykjavík tók á mánu-
dagskvöld mann sem reyndist hafa
í fórum sínum 200 grömm af hassi.
Um hefðbundið eftirlit fíkniefnadeild-
ar lögreglu var að ræða. Ljóst þykir
að eitthvað af þessu magni hafi verið
ætlað til sölu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hverjum átti
ég að tilkynna
um þetta?
JÓN BALDVIN
HANNIBALSSON
FYRRVERANDI
UTANRÍKISRÁÐ-
HERRA