Fréttablaðið - 11.10.2006, Side 4
4 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 10.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,4339
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
68,73 69,05
127,76 128,38
86,27 86,75
11,568 11,636
10,319 10,379
9,306 9,36
0,5757 0,5791
100,89 101,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Í frásögn af afmælisveislu Stöðvar 2
í blaðinu á mánudag birtist mynd af
þeim Jóni Óttari Ragnarssyni, Valgerði
Matthíasdóttur og Hans Kristjáni
Árnasyni. Í myndatexta láðist að geta
um aðkomu Hans Kristjáns að stofn-
un stöðvarinnar en hann var annar
aðalstofnandi hennar og stjórnarfor-
maður.
LEIÐRÉTTING
DÓMSMÁL Mál á hendur tveimur
litháiskum ríkisborgurum á fer-
tugsaldri, þeim Sarunasi Budvytis
og Varunasi Kavalciukas, var
þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa í hagnaðarskyni reynt inn-
flutning á rétt tæpum tólf kílóum
af amfetamíni til Íslands, ætluðu
til söludreifingar.
Mennirnir eru sagðir hafa falið
efnið í eldsneytistanki Volkswagen-
bifreiðar sem þeir voru á um borð
í farþegaferjunni Norrænu. Efnin
fundust við komu mannanna til
Seyðisfjarðar þar sem ferjan legg-
ur að.
Málið er eitt hið stærsta sinnar
tegundar sem komið hefur upp
hér á landi því það magn fíkniefna
sem fannst í bifreiðinni er það
langmesta sem vitað er um að
reynt hafi verið að smygla með
Norrænu. Talið er að heildarsölu-
verðmæti efnanna geti hlaupið á
mörgum tugum milljóna króna.
Báðir mennirnir neituðu sök
fyrir héraðsdómi í gær. Aðalmeð-
ferð í máli þeirra hefst mánudag-
inn 30. október næstkomandi. - þsj
Tveir litháískir menn ákærðir fyrir innflutning á tólf kílóum af amfetamíni:
Sarunas og Varunas neita sök
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Sarunas
og Varunas við þingsetninguna í gær.
Þeim er gefið að sök að hafa flutt til
landsins tólf kíló af amfetamíni.
ORKUMÁL Íslenska lífmassafélagið ehf. er að
ljúka arðsemismati á tveimur lífmassaverk-
smiðjum sem ætlunin er að reisa á Suður- og
Norðurlandi á næstu fjórum árum. Ef fyrirætl-
anir félagsins ganga eftir
verða verksmiðjurnar tekn-
ar í gagnið árið 2010 með
framleiðslugetu upp á 30
milljónir lítra af etanóli á
hverju ári. Etanólið verður
nýtt til eldsneytisíblöndun-
ar en uppistaða lífmassans
sem notaður verður við
framleiðsluna er gras.
Víglundur Þorsteinsson,
stjórnarformaður Íslenska
lífmassafélagsins, segir
áætlanir fyrirtækisins helgast af því að íslensk
stjórnvöld hafi sett það markmið að hafa
fimmtán prósenta etanólíblöndun í bensín árið
2010. „Við áætlum að ljúka arðsemismati verk-
smiðjanna í febrúar næstkomandi og ekki frá-
leitt að við hefjum að reisa verksmiðjur sem
taki til starfa árið 2010.“
Etanól er hreinn vínandi sem brennur án
þess að menga umhverfið og kemur í staðinn
fyrir metýl-tert-bútýleter (MTBE) sem notað
hefur verið í staðinn fyrir blý í bensín til að
halda uppi brennslugildi. „Þetta efni er að
hverfa úr bensíni alls staðar í Vesturheimi en
það er þrávirkt og langtímamengandi í jarð-
vegi. Í Bandaríkjunum er etanólíblöndun í
bensín um fimmtán prósent en hún er ekki
hafin á Íslandi ennþá,“ segir Víglundur.
Víglundur segir að ef þrjátíu milljónum
lítra af etanóli verði blandað í bensín hérlendis
þurfi að kaupa sem því nemur minna af bensíni
til landsins. „Síðast þegar ég var að skoða tölur
var olíutunnan á 70 dollara á heimsmarkaði og
þrjátíu milljónir lítra af bensíni myndu þá
lækka bensíninnflutning um tólf til fjórtán
hundruð milljónir.“
Víglundur segir að til falli mun meira fram-
leiðsluvirði en það sem sparist við íblöndunina
sjálfa. „Það falla til prótín og kolefni sem nýt-
ast í iðnaði, til dæmis við sementsframleiðslu,
og því geta lífmassaverksmiðjurnar með þessa
framleiðslugetu haft framleiðsluvirði í kring-
um þrjá milljarða á ári. Ekki er óvarlegt að
áætla að það muni síðan sexfaldast í framtíð-
inni og þá erum við að tala um framleiðsluvirði
stóriðjufyrirtækis í dag. Hagur bænda mun
líka vænkast þar sem allt hráefni verður keypt
af þeim.“
Framleiðsla etanóls úr lífmassa verður
kynnt á Orkuþingi 2006 á morgun en Orkuþing
stendur daganna 12. og 13. október á Grand
hóteli í Reykjavík. svavar@frettabladid.is
Íslenskt hey gæti lækkað
bensínkostnað um milljarð
Íslenska lífmassafélagið er að ljúka arðsemismati á tveimur lífmassaverksmiðjum sem framleiða eiga
etanól til íblöndunar í bensín. Slík íblöndun er bæði umhverfisvæn og hagkvæm fyrir samfélagið.
HEYSKAPUR Á ÁLFTANESI Hráefni til etanólframleiðslu lífmassaverksmiðja, sem Íslenska lífmassafélagið hyggst reisa á næstu árum, er hey sem keypt verður af bændum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VÍGLUNDUR
ÞORSTEINSSON
Í Bandaríkjunum er etanólíblöndun
í bensín um fimmtán prósent en
hún er ekki hafin á Íslandi ennþá.
VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON
STJÓRNARFORMAÐUR LÍFMASSAFÉLAGSINS
SAN FRANCISCO, AP Vefrisinn
Google keypti á mánudaginn
vefmiðilinn YouTube af tveimur
ungum athafnamönnum og
greiddi þeim jafnvirði 115
milljarða króna.
Þeir Chad Hurley og Steven
Chen höfðu samt í byrjun ekki
reiknað með því að hafa tekjur
af YouTube. Þeir höfðu einfald-
lega dottið niður á hugmynd sem
myndi gera fólki auðveldara að
skiptast á stuttum myndskeið-
um.
Hugmyndin sló aldeilis í gegn
og núna eru notendur YouTube
yfir 70 milljónir. Allt starfsfólk
YouTube heldur vinnunni, og
þeir Hurley og Chen halda
einnig sínum störfum. - gb
Google kaupir myndvefsíðu:
Seldu YouTube
á 115 milljarða
CHAD HURLEY OG STEVEN CHEN Google
keypti af þeim YouTube fyrir nærri 115
milljarða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STRÆTÓ Farþegum Strætó bs.
fjölgaði í september um 45.801
farþega, um 6,8 prósent miðað við
sama mánuð í fyrra. Farþegum
strætó hefur fjölgað jafnt og þétt
síðustu mánuðina og er aukningin
3,5 prósent fyrstu níu mánuði
ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Ásgeir Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs., segir
farþegafjölgunina ánægjulega og
að hún bendi ótvírætt til þess að
þær breytingar sem gerðar hafa
verið á leiðakerfinu mæti þörfum
viðskiptavinanna. „Almenningur
er að átta sig á því að strætó er
raunhæfur kostur á höfuðborgar-
svæðinu.“ - hs
Almenningssamgöngur:
Farþegum í
strætó fjölgar
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�����������������
�������������
�����������������
�����������������
�����������������
������������
���������������
��������������
��������������
���������������
���������������
���������������
������������
�����������
���������������
�������
������
���������������������
��� ����� ��� �������
������������ ��������
�������������������
�� ������������������
������� ����� ��� ��������
����������������������
����������� ��� �� ����
�������������������������
� ��� ������������ ��
�������������������
������� ������������ ��
�������������������� ���
����������������������
������������� ��������
������������������� ��
��������������������
�����������
�� ���� ����� ��
���������������� ��
��������������� ��������
����������� �� ��� ����
����� ���������������������������
���������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
��
�
�
�
�
�
��
��
��
�
��
��
��
��
�
�
�
��
��
��
��
� ��
��
��
�
�
��
����