Fréttablaðið - 11.10.2006, Side 10

Fréttablaðið - 11.10.2006, Side 10
10 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI SVEITARSTJÓRNARMÁL Áætluð nefndarlaun í sveitarfélaginu Fjallabyggð fyrir árið 2007 eru sex milljónum hærri en saman- lögð nefndarlaun voru árið 2005 í sveitarfélögunum Ólafsfirði og Siglufirði. Þetta kom fram í svari til Egils Rögnvaldssonar, bæjar- fulltrúa í Fjallabyggð, á síðasta bæjarráðsfundi. Launaútgjöld til allra nefnda hækka, utan sameiningarnefndar, en áætluð nefndarlaun þeirrar nefndar munu lækka um rúma milljón. Þá er hækkun vegna setu í hafnarnefnd óveruleg á milli ára. Mestu munar um hækkun launa fyrir setu í bæjarstjórn, um rúmar fjórar milljónir, en í bæjar- stjórn sitja níu fulltrúar. Þá eru samanlögð nefndarlaun fyrir setu í fræðslunefnd og menningar- nefnd rúmlega sex hundruð þús- und krónum hærri en var fyrir setu í skóla- og menningarnefnd árið 2005. Svipuð hækkun er einn- ig fyrir setu í skipulags- og umhverfisnefnd, sem áður hét tækni- og umhverfisnefnd. Hlut- fallslega er reiknað með mestri hækkun vegna atvinnu- og ferða- málanefndar, úr 14.034 í 315.248 krónur. Þórir Kristinn Þórisson bæjar- stjóri segir nefndarlaunin hafa verið hækkuð þar sem þau hafi verið mun lægri en tíðkist í öðrum sveitarfélögum. - ss Kostnaður vegna hækkunar nefndarlauna í Fjallabyggð kominn í ljós: Hækka um sex milljónir ÞÓRIR KRISTINN ÞÓRISSON Bæjarstjór- inn segir nefndarlaun í sveitarfélaginu hafa verið mun lægri en tíðkist annars staðar á landinu. NOREGUR Þrír farþegar og einn áhafnarmeðlimur fórust þegar vél færeyska flugfélagsins Atl- antic Airways hlekktist á við lendingu á norsku eyjunni Storð í gærmorgun. Svo virðist sem flugmönnunum hafi ekki tekist að stöðva vélina við lendingu. Tólf manns tókst að komast út úr vélinni. Margir þeirra voru slasaðir og brenndir, en enginn lífshættulega, að sögn Frode Johannessen læknis á blaða- mannafundi í gær. Fólkið var allt flutt á sjúkrahús. „Lík þeirra sem fórust fund- ust inni í vélinni,“ hafði norska blaðið Aftenposten eftir Einar Knudsen hjá Almannavörnum Suður-Noregs. Lögregla tilkynnti upphaflega að þrír hefðu farist en þrettán hefðu komist út úr vélinni, en skömmu síðar varð ljóst að eins manns var saknað. Töluvert fát komst á björgunar- menn, því í fyrstu tilkynnti Atl- antic Airways að eingöngu fimmt- án manns hefðu verið um borð, en eftir að það var leiðrétt upp- götvaðist að þeir sem tóku á móti hinum eftirlifandi höfðu merkt við nafn manns sem reyndist svo ekki vera meðal þeirra. Leitað var að honum fyrir utan vélina og í hafinu við enda braut- arinnar, en flugbrautin á Storð liggur við sjó. Lík mannsins fannst að lokum inni í vélinni. Vélin, sem var af tegundinni British Aerospace BAe 146 og tók 83 farþega í sæti, var á leið frá Stafangri til Molde og millilenti á Storð við vesturströnd Noregs þegar slysið varð klukkan 7:45 að staðartíma. Verið er að rannsaka tildrög slyssins, en að sögn sjónar- votta rann vélin út af brautinni á nokkurri ferð og skömmu síðar sáust eldtungur stíga upp úr henni. Björgunarmenn náðu tökum á eldinum um klukkutíma síðar, en hitinn í brakinu hægði á björgunar- starfsemi, að sögn Fritz Arne Lille- skog, talsmanns lögreglunnar á Storð. Samkvæmt upplýsingum flug- félagsins voru þrír áhafnarmeð- limir færeyskir og einn danskur, en meðal farþeganna voru ellefu Norðmenn og einn „útlendingur“. Nöfn og þjóðerni hinna látnu höfðu ekki verið tilkynnt þegar blaðið fór í prentun í gær. Allir farþegarnir voru á leið til vinnu í skipasmíða- og bygginga- fyrirtækinu Aker Kværner, stað- festi Stein Inge Liasjø, upplýs- ingafulltrúi Aker Kværner. Vélar Atlantic Airways þurftu tvisvar í síðasta mánuði að nauðlenda í Björgvin vegna bilunar í hemlunar- kerfi, kom fram á fréttavef norska blaðsins Dagbladet. smk@frettabladid.is Fjórir fórust í flugslysi Fjórir manns týndu lífi en tólf björguðust þegar fær- eysk vél með sextán manns innanborðs brotlenti við lendingu á eyjunni Storð í Vestur-Noregi. FLUGSLYS Á STORÐ Eldur kom upp í leiguvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Air- ways á Storð í Noregi í gærmorgun með þeim afleiðingum að fjórir fórust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NOREGUR Tuttugu og átta ára gamall Norðmaður hefur verið dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að hafa auglýst eftir og geymt barnaklám í tölvunni sinni. Þetta kemur fram í frétt norska blaðsins Aften- posten. Maðurinn hafði farið frá heimabæ sínum í Austur-Noregi til Iowa í Bandaríkjunum þar sem hann hóf hnykklækninganám. Lögreglan handtók hann eftir að hann auglýsti á netinu eftir barnaklámi og við leit á heimili hans fundust 300 barnakláms- myndir á tölvu hans, sem hann er sakaður um að hafa deilt með öðrum. Norðmanninum var jafnframt gert að vera undir ströngu eftirliti yfirvalda í tíu ár eftir að hann hefur afplánað dóminn. - smk Norðmaður dæmdur: Fimmtán ár fyrir barnaklám

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.