Fréttablaðið - 11.10.2006, Page 12
12 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Tæplega fimm
þúsund erlendir starfsmenn hafa
verið skráðir inn á íslenskan
vinnumarkað það sem af er
árinu, flestir nú í september.
Þetta er meira en allt árið í fyrra.
Til viðbótar eru tvö þús-
und starfsmenn enn
óskráðir.
Baldur Aðalsteins-
son, deildarsérfræðing-
ur hjá Vinnumálastofn-
un, segir að sprenging
hafi orðið á vinnumark-
aði á þessu ári. Allt árið
í fyrra hafi Vinnumála-
stofnun gefið út 3.700
atvinnuleyfi en á fyrstu
níu mánuðum þessa árs
séu skráningarnar komnar vel
yfir þá tölu.
Alls hafa rúmlega 4.700
útlendingar verið skráðir á
vinnumarkað á þessu ári, þar af
eru um 2.700 fyrstu fjóra mánuði
ársins og 2.400 frá 1. maí þegar
för var gefin frjáls. Flestir hafa
verið skráðir í september; tæp-
lega tólf hundruð manns.
Baldur segir að vinnuveitend-
ur viti ekki og hafi ekki vitað
nógu vel hvernig eigi að standa
að skráningum erlends starfs-
fólks. „Við höfum átt við það að
stríða að fólk vissi ekki hvað það
ætti að gera og hvernig ætti að
standa að málum. Þetta fór því
rólega af stað,“ segir hann.
Í september breyttist ástand-
ið hins vegar þegar starfsmanna-
stjórar og aðrir stjórnendur fyrir-
tækja mættu aftur til vinnu eftir
sumarleyfi og losnaði um
stífluna hjá Þjóðskránni
við afgreiðslu á kennitöl-
um. „Fólk skilaði sér illa
inn í kerfið en með lækk-
andi sól, umræðu í fjöl-
miðlum og átaki hjá
okkur fór þetta að skila
sér,“ segir Baldur.
Tölvukerfið hjá Vinnu-
málastofnun er beintengt
við Þjóðskrána og því sjá
starfsmenn Vinnumála-
stofnunar hversu margir eru á
utangarðsskrá hjá Þjóðskránni á
hverjum tíma og eru þeir um tvö
þúsund talsins í dag. Það hafa því
verið samtals um sjö þúsund
erlendir starfsmenn í landinu á
árinu. Beintengingin gerir það
að verkum að um leið og starfs-
menn eru skráðir hjá Vinnumála-
stofnun detta þeir út af utan-
garðsskrá.
„Langstærsti hlutinn er frá
Póllandi og svo eru þetta líka Lit-
háar og Lettar. Flestir eru í bygg-
ingaiðnaði og fiskvinnslu en líka
á hótelum, lager og í fleiri störf-
um.“ ghs@frettabladid.is
BALDUR
AÐALSTEINSSON
Sprenging á vinnumarkaði
Sprenging hefur orðið á vinnumarkaði á þessu ári. Talið er að um sjö þúsund erlendir starfsmenn hafi
komið til landsins það sem af er árinu. Erlendir starfsmenn voru tæplega fjögur þúsund í fyrra.
NÁNAST TVÖFÖLDUN Um sjö þúsund erlendir starfsmenn, fyrst og fremst frá Póllandi
en líka Litháen og Lettlandi, hafa verið við störf hér á landi á árinu. Þetta er nánast
tvöföldun frá því í fyrra og árið þó ekki búið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GRASKER, GRASKER Nú er tími gras-
keranna runninn upp í Bandaríkjun-
um og var þessi gutti afar kátur með
hlut sinn í Santa Fe í Nýju-Mexíkó á
dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TAÍLAND, AP Konungur Taílands
veitti nýrri ríkisstjórn umboð á
mánudag, þremur vikum eftir
valdarán stjórnarhersins. Hagfræð-
ingar, háttsettir opinberir starfs-
menn og tveir fyrrum herforingjar
tóku við ráðherraembættunum.
Gert er ráð fyrir að nýja
stjórnin sitji þar til kosningar fara
fram í október á næsta ári.
Surayud Chulanont forsætis-
ráðherra tók við embætti nokkrum
dögum eftir valdaránið, þegar
fyrrum forsætisráðherra Thaksin
Shinawatra var steypt af stóli
meðan hann var erlendis. Thaksin
var sakaður um víðtæka spillingu.
- smk
Konungur Taílands:
Ný ríkisstjórn
tekin við
NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA Surayud
Chulanont tók við embætti forsætisráð-
herra nokkrum dögum eftir valdaránið.
HEILBRIGÐISMÁL Á ráðstefnu um
Downs-heilkenni sem haldin var
fyrir skömmu kynnti Ingólfur Ein-
arsson, barnalæknir á Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríkisins, niður-
stöður könnunar sem hann gerði á
meðal fjölskyldna barna með
Downs-heilkenni.
„Það var mat þeirra sem svör-
uðu að misvel væri staðið að grein-
ingarferlinu en nú er í bígerð að
gera verklagsreglur fyrir fæðingar-
deildir í landinu um hvernig upp-
lýsingum skuli komið á framfæri.
Þá finnst mörgum foreldrum vanta
upp á stuðing í kjölfar greiningar
og vilja fá viðtöl við fagaðila.“
Í könnun Ingólfs kom í ljós að
líkamlegir kvillar eru algengir hjá
þessum börnum. „Þannig greind-
ust meðfæddir hjartagallar hjá 60
prósentum þeirra barna sem könn-
unin náði til og þurfti meirihluti
þeirra að fara í aðgerð vegna
þessa.“
Könnunin sýnir einnig að það
hefur áhrif á félagslegt og fjár-
hagslegt umhverfi foreldra að
eignast barn með Downs-heilkenni.
„Yfir 50 prósent svarenda töldu
umönnun barnanna íþyngjandi en
hegðunarerfiðleikar eru algengir
hjá börnum með Downs-heilkenni.
Þá kom í ljós að mæður þessara
barna þurfa undantekningarlaust
að minnka við sig vinnu tímabund-
ið vegna breyttra aðstæðna. Feð-
urnir unnu hins vegar undantekn-
ingarlaust fullan vinnudag og
jafnvel meira.“ - hs
Mörg börn með Downs-heilkenni hafa hjartagalla:
Foreldrar vilja
aukinn stuðning
INGÓLFUR EINARSSON Unnið er að
verklagsreglum fyrir fæðingardeildir
um hvernig upplýsingum skuli komið á
framfæri.
ÍTALÍA Þáttagerðarmenn vinsæls ítalsks sjónvarps-
þáttar hafa uppgötvað meinta víðtæka eiturlyfja-
neyslu þingmanna ítalska þingsins. Þáttagerðarmenn
létu taka leynileg lífsýni úr fimmtíu neðrideildar-
þingmönnunum og reyndust sextán þeirra, eða tæpur
þriðjungur, hafa neytt kókaíns eða kannabisefna á
síðustu 36 klukkustundunum fyrir prófið, kemur
fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC.
Þátturinn La Lene (Hýenurnar) er vel þekktur
fyrir ýmiss konar prakkarastrik og gerir óspart gys
að frægu fólki. Í þetta sinn fengu þáttargerðarmenn
fréttamann til að fara í neðri deild þingsins og ræða
við þingmenn um fjárlagafrumvarp næsta árs. Með
í för var sminka sem strauk svitann af enni þing-
mannanna undir því yfirskini að lagfæra andlits-
málningu þeirra fyrir myndavélina. Hún var hins
vegar að safna lífssýnum.
Af þingmönnunum sextán höfðu fjórir neytt
kókaíns og tólf kannabisefna. Ráðamenn þáttarins
hafa ekki gefið upp nöfn þeirra.
Le Lene er sýndur á Italia Uno, sjónvarpsstöðinni
sem tilheyrir fjölskyldu fyrrum forsætisráðherra
Ítalíu, Silvio Berlusconi. - smk
Leynileg sýnataka úr ítölskum neðrideildarþingmönnum:
Þriðjungur neytir eiturlyfja
EITURLYF Tólf ítalskir þingmenn höfðu notað kannabisefni og
fjórir kókaíns.
ERIE, AP Tæplega þrítug kona
barði unnusta sinn með fjögurra
vikna gömlu barni þeirra
beggja með þeim afleiðingum
að drengurinn litli höfuðkúpu-
brotnaði og það blæddi inn á
heilann.
„Ég hef aldrei nokkurn
tímann orðið vitni að öðru eins,“
sagði Bradley Faulk, héraðslög-
maður í bænum Erie í Pennsylv-
aníu.
Stjórnvöld fjarlægðu fjögur
önnur börn af heimili konunnar
og komu þeim til barnaverndar-
yfirvalda.
Litla barnið var flutt á
barnasjúkrahús í Pittsburgh. - gb
Harmleikur í Bandaríkjunum:
Barði kærasta
með barninu
Dögg Pálsdóttir
Á morgun,
12. október, kl. 17
opnar kosningaskrifstofa
Daggar Pálsdóttur að
Laugavegi 170, 2. hæð
(í gamla Hekluhúsinu).
Við hlökkum til að sjá þig.
Stuðningsmenn
4.í sætiðwww.dogg.is
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
LÁTUM
VERKIN TALA
KOSNINGASKRIFSTOFA
Laugavegi 170, 2. hæð
dogg@dogg.is
sími 517-8388