Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 83

Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 83
MIÐVIKUDAGUR 11. október 2006 39 FÓTBOLTI Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Reynir Leós- son að öllum líkindum á leið til Fram. Hann sagði við Fréttablaðið á dögunum, þegar ljóst var að hann myndi koma heim, að hann væri nánast búinn að ganga frá samningi við ákveðið úrvalsdeildar- félag. Flestir töldu hann vera að tala um sitt uppeldisfélag, ÍA. Reynir staðfesti í gær að þetta félag hefði allan tímann verið Fram. „Við erum nánast búnir að ganga frá öllu en það er aldrei neitt öruggt fyrr en búið er að skrifa undir. Síðan verð ég reynd- ar að játa að mér brá svolítið í dag þegar ég heyrði tíðindin af Helga Sigurðssyni,“ sagði Reynir og mátti heyra á honum að þær frétt- ir gætu hugsanlega haft áhrif á ákvörðun hans um hvort hann færi í Fram. „Það er slæmt þegar fyrirliðinn talar um að það sé botnbarátta fram undan. Þetta kom mér mjög á óvart og það er verulega slæmt ef liðið er að missa sterka leik- menn. Framararnir hafa sannfært mig um að þeir ætli sér stóra hluti og því bregður manni óneitanlega þegar það berast fréttir af því að besti maður liðsins sé á förum. Ég er metnaðarfullur og vil vera að spila í efri hlutanum. Þessar frétt- ir voru ekki það sem maður vildi heyra núna. Þetta þarf samt ekk- ert að eyðileggja samninginn við félagið.“ - hbg Ekki alveg öruggt að Reynir Leósson fari til Fram: Brá þegar ég heyrði um Helga Sigurðsson REYNIR LEÓSSON Nánast búinn að ganga frá samningi við Fram en mál Helga Sig- urðssonar gæti haft áhrif á ákvörðun hans. Hann sést hér á góðri stundu með Ólafi Þórðarsyni, sem verður væntanlega aftur þjálfarinn hans. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR FÓTBOLTI Dave Whelan, stjórnar- formaður Wigan, er allt annað en sáttur við Sven-Göran Eriksson, fyrrverandi landsliðeinvald Englendinga, og gengur svo langt að kalla Svíann hálfvita. Whelan kennir Eriksson um þá lægð sem Wayne Rooney er í þessa dagana, en Eriksson lét Rooney spila einan í framlínu Englands þegar hann var rekinn af velli gegn Portúgal á HM. „Eriksson gekk alveg frá drengnum. Ég vona bara að þessi hálfviti hafi ekki drepið keppnis- skapið hjá Rooney. Ég horfði á leikinn gegn Portúgal í sumar og vorkenndi Rooney, hann vildi standa sig vel en það var erfitt fyrir hann að vera einn frammi. Rooney barðist eins og ljón í leiknum en komst lítið áleiðis. Eriksson gjörsamlega gekk frá honum í þessum leik,“ sagði Whelan. - dsd Stjórnarformaður Wigan: Eriksson er hálfviti GEKK FRÁ ROONEY Dave Whelan sparar ekki stóru orðin í garð Erikssons. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Það er ekki nóg með að Tobias Linderoth missi af landsleiknum í dag vegna fæðingar barns síns heldur gæti einnig farið svo að leikmaðurinn missi af leik FC Kaupmannahafn- ar og Manchester United sem fram fer á þriðjudaginn í næstu viku ef barnið verður ekki komið í heiminn fyrir þann tíma. Maria, eiginkona Linderoth, var skráð 10. október og þjálfari Kaup- mannahafnarliðsins bíður og vonar að barnið fari nú að koma í heiminn, en liðið fer til Manchest- er á mánudaginn. „Ef ekkert verður búið að gerast fyrir þriðjudaginn spilum við án Linderoth. Það er ekkert öruggt í þessu en ég reikna frekar með því að hann verði ekki með,“ sagði Ståle Solbakken. - dsd Tobias Linderoth: Missir líklega af Man. United FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur hótað Króötum því að ef áhorfendur liðsins láti ekki af kynþáttafor- dómum í garð andstæðingana muni sambandið grípa til róttækra aðgerða. UEFA gæti gengið svo langt að reka landslið- ið úr undankeppni Evrópumótsins en Króatar fengu sekt á dögunum fyrir hegðun sína í vináttuleik gegn Ítalíu. „Það eru nýjar reglur sem segja til um að hægt sé að reka lið úr keppnum og draga stig af liðum. Við munum fylgjast grant með hverju atviki,“ sagði talsmaður UEFA. - dsd Króatíska landsliðið: Getu fengið þunga refsingu Þann 8. - 11. desember verður íþróttadeild Úrvals Útsýnar með spennandi ferð á leik Barcelona og Real Sociadad. Síðasta ferð seldist upp á 2 dögum, hlökkum til að heyra frá ykkur. Jólabolti í Barcelona Verð 74.900,- Innifalið í verði er: Flug, skattar, gisting í 3 nætur m/morgunverði, miði á völlinn og íslensk fararstjórn. Nánari upplýsingar og bókanir hjá íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585-4000 eða á tölvupósti silja@uu.is FÓTBOLTI Það styttist í að framtíð Skagamannsins spræka Hafþórs Ægis Vilhjálmssonar fari að skýr- ast. Samningur Hafþórs Ægis við ÍA rennur út í lok mánaðarins og það er ljóst að hann mun ekki leika áfram með félaginu. Hafþór fór til reynslu hjá sænska félaginu Norrköping á dögunum en þar eru fyrir sveit- ungar hans Garðar Gunnlaugsson og Stefán Þórðarson. „Mér leist mjög vel á þetta félag og ef ég fæ ágætis samn- ingstilboð frá þeim er líklegt að ég stökkvi á það,“ sagði Hafþór Ægir en hann er ekki alveg búinn að landa samningi við félagið. „Þeir vilja fá mig aftur út og skoða mig betur. Þeim leist greinilega eitt- hvað á mig og ég fæ annað tæki- færi, væntanlega um helgina, til að sýna mig og sanna.“ Hafþór Ægir staðfesti við Fréttablaðið í gær að hann myndi ekki spila áfram með ÍA. Ef ekk- ert verður af því að hann fari til Norrköping mun Hafþór skrifa undir samning við Val samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins en samningur þess efnis ku liggja klár til undirskrift- ar, fari svo að hann fái ekki samn- ing hjá Norrköping. „Ég get ekki staðfest neitt slíkt. Vissulega eru nokkur lið sem koma til greina en ég get ekkert tjáð mig um þau mál á þessu stigi,“ sagði Hafþór Ægir aðspurður um hvort hann væri búinn að ná sam- komulagi við Val. Vængmaðurinn ungi vakti verulega athygli undir lok tíma- bilsins þegar hann fór á kostum með ÍA en hann átti erfitt upp- dráttar framan af sumri þegar tækifærin voru af skornum skammti. Leikkerfið sem bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir létu ÍA spila átti greinilega vel við Hafþór því hann lék við hvurn sinn fingur eftir að þeir tóku við og fyrir vikið jókst áhugi stóru félaganna verulega á honum. - hbg Framtíð Skagamannsins Hafþórs Ægis Vilhjálmssonar að skýrast: Næsti áfangastaður verður Norrköping eða Valur SJÁUMST SÍÐAR Hafþór Ægir veifar hér hinni gulu treyju ÍA í lokaleik sínum með félaginu, í bili að minnsta kosti. Hann mun annað hvort spila með Norrköping eða Val á næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.