Fréttablaðið - 26.10.2006, Síða 10
10 26. október 2006 FIMMTUDAGUR
Allt um allt
sem skiptir
máli í Reykjavík
Allt um allt
sem skiptir
máli í Reykjavík
ATVINNUMÁL Fleiri stúlkur en
drengir á aldrinum 15-19 ára
stunda vinnu með námi og segjast
stelpurnar vinna til að eiga vasa-
peninga en strákar gefa upp þá
ástæðu að þeir vinni til að geta
rekið bíl.
Þetta var eitt af því sem fram
kom í máli Jóns Sigfússonar hjá
rannsóknum og greiningu Háskóla
Reykjavíkur en hann fjallaði um
vinnu 15-19 ára unglinga með
skóla. Rúm 40 prósent 16 ára ungl-
inga stunda vinnu með námi en 66
prósent 19 ára unglinga.
Í rannsókninni sem Jón kynnti
kom einnig fram að 9,5 prósent
unglinga af íslenskum uppruna
segjast vinna til að aðstoða fjöl-
skylduna við að framfleyta sér.
Hlutfallið er öllu hærra meðal
ungmenna af erlendum uppruna
en meðal þeirra vinna 17 prósent
til að aðstoða við að framfleyta
fjölskyldunni.
Í máli Jóns kom einnig fram að
ekki eru tengsl á milli fjölda
vinnustunda og tíðni skróps, þeir
unglingar sem vinna með námi
eru með öðrum orðum ekkert lík-
legri til að skrópa í skólann en þeir
sem ekki vinna. „Þá sýnir rann-
sóknin að vinna hefur ekki áhrif á
ástundun heima-
náms og náms-
menn telja að
atvinna þeirra
komi ekki til
með að seinka
námslokum.“
Gerður
Gestsdóttir hjá
Alþjóðahúsi
segir mun á
íslenskum ungl-
ingum á vinnumarkaðnum og
unglingum af erlendum uppruna.
Hún segir að erlendir unglingar
fái síður stuðning frá fjölskyldu
sinni ef eitthvað gerist á vinnu-
staðnum. „Þessi hópur óttast
atvinnuöryggi sitt og virðist ekki
átta sig á því hversu langt við
erum komin í vinnuréttindum.“
Gerður segir það heldur ekki
sjálfgefið að þessi hópur skilji
skriflegar leiðbeiningar um örygg-
isútbúnað og reglur um vinnutíma
og því þurfi að útskýra þessa hluti
sérstaklega fyrir unglingum af
erlendum uppruna.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir
hjá Vinnueftirlitinu, segir að
vinnuslysum meðal ungs fólks
hafi fækkað á síðustu 20 árum.
„Orsakir slysa hjá 20 ára og yngri
má helst rekja til vinnuvéla og
aðstæðna í vinnu eins og hálla
gólfa, stiga og annarra hindrana.
Algengustu vinnuslysin hjá þess-
um aldurshópi eru áverkar á hálsi
og höfði ásamt beinbrotum.“
Fundurinn var haldinn í tilefni
af evrópskri vinnuverndarviku
sem nú stendur yfir en í ár er
vikan helguð ungu fólki.
hugrun@frettabladid.is
Telja atvinnu
ekki seinka
námslokum
Atvinna framhaldsskólanema virðist ekki bitna
á heimavinnu þeirra né auka líkur á óheimilum
fjarvistum úr skóla. Þetta kom á fundi um vinnuað-
stæður ungs fólks sem Vinnueftirlitið stóð fyrir.
GERÐUR
GESTSDÓTTIR
AF FUNDI UM VINNUAÐSTÆÐUR UNGS FÓLKS Ungmenni af erlendum uppruna óttast
um öryggi sitt á vinnumarkaði og átta sig ekki á því hve langt Íslendingar eru komnir
í vinnuréttindum. FRÉTTABLAÐIÐ GV
„...vinna hefur ekki
áhrif á ástundun heima-
náms og námsmenn telja að
atvinna þeirra komi ekki til með
að seinka námslokum.“
JÓN SIGFÚSSON
HJÁ RANNSÓKNUM OG GREININGU Í HR
HVALVEIÐAR Lára Marteinsdóttir,
kennari í Háskóla Íslands, og
Hannah Beadman kvikmynda-
gerðarkona hafa farið af stað með
áskorun á netinu undir yfirskrift-
inni „Stöðvum Kristján Loftsson“.
Í gær höfðu um 800 manns skráð
sig.
Lára segir að um íslenskt framtak
sé að ræða þar sem fólk getur
ekki skrifað undir nema einu
sinni. „Þessi áskorun er ákall til
íslenskra ráðamanna um að sýna
meiri framsækni þegar kemur að
efnahagsmálum.“ Náttúruvernd-
arfélag Íslands styður framtakið
og mun birta netfang áskoruninn-
ar á vef sínum. - shá
Átak gegn hvalveiðum:
Senda áskorun
til ráðamanna
DÓMSMÁL Tveir piltar um tvítugt eru grunaðir um að
hafa kveikt í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrr í þessum
mánuði, en þar hafa þeir setið í gæsluvarð-
haldi frá 21. september, samkvæmt úrskurði
Héraðsdóms Reykjaness. Þetta kemur
fram í greinargerð lögreglunnar í
Keflavík til Héraðsdóms Reykjaness
þar sem farið var fram á gæsluvarð-
hald yfir þeim.
Piltarnir eru grunaðir um að hafa
einir, í félagi eða með öðrum staðið að
margs konar afbrotum í júlí, ágúst
og september á þessu ári. Grunur
leikur á að þeir hafi verið að verki
bæði á Selfossi og í Keflavík. Í
greinargerð lögreglunnar eru nefnd-
ir til sögunnar þjófnaðir, nytjastuld-
ir, eignaspjöll og umferðarlagabrot.
Enn fremur segir að nauðsynlegt hafi reynst að fá
piltana úrskurðaða í gæsluvarðhald því að þeir hafi
ekki linnt afbrotum. Veruleg hætta sé á að þeir haldi
uppteknum hætti ef þeir verði frjálsir ferða sinna.
Því sé nauðsynlegt að þeir sæti gæsluvarðhaldi þar
til mál þeirra séu til lykta leidd.
Hæstiréttur segir að af gögnum málsins megi
ráða að rökstuddur grunur sé um að þeir hafi
framið allmörg hegningarlagabrot sem
fangelsisrefsing sé lögð við.
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðs-
dóms Reykjaness um gæsluvarðhald yfir
piltunum tveim. Þeir skulu sitja inni til 10.
nóvember. - jss
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir tveimur piltum um tvítugt staðfestur:
Fangar grunaðir um íkveikju
AFÞREYING Sjónvarpsþættirnir um
Latabæ hafa verið tilnefndir til
BAFTA-verðlaunanna í Bretlandi.
„Tilnefningin er gríðarleg við-
urkenning fyrir Magnús Scheving,
höfund og framleiðanda þáttanna,
og alla þá fjölmörgu íslensku og
erlendu starfsmenn sem komið
hafa að gerð þeirra,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Latabæ.
„Við erum í skýjunum og erum
rétt að átta okkur á þessu,“ segir
Magnús Scheving sem telur
BAFTA-verðlaunin vera nokkurs
konar Óskarsverðlaun Evrópu.
Aðstandendur Latabæjar séu gríð-
arlega stoltir af því að vera til-
nefndir.
Magnús minnir á að í vor hafi
Latibær verið tilnefndur til banda-
rísku Emmy-verðlaunanna. „Það
er greinilegt að íslenskir og
erlendir kvikmyndagerðarmenn,
sem komið hafa að gerð þáttanna,
kunna sitt fag,“ segir hann.
Einu Íslendingarnir sen hafa
áður verið tilnefndir til BAFTA-
verðlauna eru Valdís Óskarsdóttir
fyrir klippingu og Hilmar Örn
Hilmarsson fyrir tónlist.
Úrslitin verða ljós 26. nóvem-
ber næstkomandi. - gar
Magnús Scheving í skýjunum:
Tilnefndur til
BAFTA-verðlauna
MAGNÚS SCHEVING Greinlegt að kvik-
myndagerðarmenn á bak við Latabæ
kunna sitt fag, segir skapari þáttanna.
LITLA HRAUN Tveir piltar eru grunaðir um að
hafa kveikt í fangelsinu á meðan þeir sátu í
gæsluvarðhaldi.