Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 11
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
4
8
0
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í heiminum í dag.
Það er ekkert skrítið þegar hægt er að bjóða þessi gæði á svona verði.
3.475.000 kr.
Við kynnum nýjan KIA Sorento
– fullbúinn alvörujeppa með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið • þokuljós
Sorento hefur slegið í gegn um allan heim og eignast dygga fylgismenn
á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu að Sorento er orðinn einn
vinsælasti jeppi landsins, enda líklega bestu jeppakaupin í dag.
Verð aðeins
STJÓRNMÁL Árni Þór Sigurðsson
borgarfulltrúi hefur ákveðið að
gefa kost á sér í eitt af efstu
sætunum í forvali Vinstri grænna
í sameiginlegu
forvali Reykja-
víkur- og
Suðvesturkjör-
dæmis vegna
alþingiskosn-
inganna í vor.
Í fréttatil-
kynningu
kemur fram að
ástæða
sameiginlegs
forvals á þessum svæðum sé sú
að styrkja eigi stöðu flokksins í
kjördæmunum þremur á svæð-
inu. Árni Þór hefur starfað að
sveitarstjórnarmálum í Reykja-
vík undanfarin 12 ár og sinnt
málaflokkum eins og umhverfis-,
skóla-, samgöngu- og skipulags-
málum. - hs
Forval Vinstri grænna:
Gefur kost á sér
í efstu sætin
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
DÓMSMÁL Fjórir menn voru í gær
dæmdir til fangelsisvistar, frá
fimm og upp í 15 mánuði, í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tveir þeirra voru sviptir
ökuréttindum frá birtingu
dómsins og öllum var þeim gert
að greiða skaðabætur vegna
afbrota sinna.
Brotaferill fjórmenningana er
af margvíslegum toga. Má þar
nefna mörg fíkniefnalagabrot,
þjófnaði, skjalafals og rán.
Allir eiga mennirnir áður kom-
ist í kast við lögin. Þá var mönn-
um auk ofangreinds gert að
greiða allan sakarkostnað sem til
féll vegna málarekstarins. - jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Fjórir dæmdir
til fangavistar
MOSKVA, AP Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti sagði í gær að hann
ætlaði sér að halda áfram að hafa
áhrif á rússneskt þjóðfélag, jafn-
vel þótt hann ætlaði ekki að bjóða
sig fram til forseta árið 2008, þegar
seinna kjörtímabil hans rennur út.
„Þrátt fyrir þá staðreynd að
mér líkar vel við starfið, þá leyfir
stjórnarskráin mér ekki að bjóða
mig fram þriðja skiptið í röð,“
sagði Pútín í spurningatíma í sjón-
varpi þar sem hann sat fyrir svör-
um.
Pútín nýtur mikilla vinsælda í
Rússlandi og bætti því við að hann
ætlaði sér að „halda því mikilvæg-
asta sem einstaklingur tengdur
stjórnmálum hlýtur að hafa í
hávegum – sem er traust ykkar. Og
með því að nota það, þá geta bæði
þið og ég haft áhrif á lífið í landinu
okkar og tryggt þróun þess.“
Nýleg morð á þekktum einstakl-
ingum, bæði rannsóknarblaðakon-
unni Önnu Politskovskaju og seðla-
bankastjóranum Andrei Koslov,
komu til tals í umræðutímanum.
Spyrjendur í salnum sögðust ótt-
ast að ný ofbeldisalda væri í upp-
siglingu.
Pútín hélt því hins vegar fram
að launmorðum hefði fækkað á
síðustu árum og fullyrti að stjórn-
völd væru að ná betri tökum á því
að ljóstra upp fjármálabrotum. - gb
ALLIR HLUSTA Á PÚTÍN Hann Bulat, sem er tíu ára drengur í Grosní, höfuðborg
Tsjetsjeníu, horfir þarna ásamt ömmu sinni, sem heitir Nura Umayeva og er 82 ára, á
Pútín svara spurningum í sjónvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Pútín Rússlandsforseti ætlar ekki að bjóða sig fram í þriðja sinn árið 2008:
Ætlar þó að hafa áhrif áfram
Stjórn á
blóðþrýstingi
LH inniheldur náttúruleg
lífvirk peptíð sem geta
hjálpað til við stjórn
á blóðþrýstingi
LH-drykkurinn er gerður úr
undanrennu og er því fitulaus.
Auk peptíðanna inniheldur
hann í ríkum mæli kalk,
kalíum og magníum en
rannsóknir benda til að þessi
steinefni hafi einnig jákvæð
áhrif á blóðþrýsting.
FIMMTUDAGUR 26. október 2006 11