Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 24
26. október 2006 FIMMTUDAGUR24
hagur heimilanna
8,
1
KG
7,
6
KG
2004
1965
Þy
ng
d
9,
9
KG
1985
„Það sem kemur í hugann núna sem bestu
kaup er leirpottur sem ég keypti í Finnlandi en í
honum get ég mauksoðið mat. Það getur komið
sér vel að láta matinn krauma tímunum saman
og nota tímann til annars. Svo þegar ég kem
heim er maturinn tilbúinn en maturinn úr þess-
um potti er ávallt afar ljúffengur. Í pottinum er
hægt að elda mat fyrir sjö manns og hann
er því tilvalinn þegar von er á gestum.“
Þegar talið berst að verstu kaupun-
um þarf Bryndís aðstoð Jóns Baldvins
bónda síns sem rifjar upp trefla-
kaup úti í Finnlandi en trefillinn var
merkjavara og kostaði 20 þúsund
krónur. „Jón komst síðar að því að
sams konar trefill kostaði aðeins brot af
þessari upphæð í fríhöfninni.“
Þá minnist Bryndís þess að
mörgum hafi þótt þau hjónin
gera slæm kaup þegar þau festu
kaup á íbúð sinni á Vesturgötunni sem þarfn-
aðist andlitslyftingar þegar þau keyptu hana.
Okkur leið hins vegar vel þarna og viðgerðirnar
reyndum við að borga út í hönd í stað þess að
taka lán fyrir þeim.“
Bryndís segist einnig vera hagsýn þegar
kemur að fatakaupum og notar sömu fötin árum
saman. „Með því að kaupa aldrei dýr föt þarf
ég ekki að gjörnýta þau en legg þau hins
vegar til hliðar og nota síðar ef efnin í
þeim eru góð.“
Bryndís hefur búið víða erlendis
og segir Íslendinga spá minna í aurinn
en margar aðrar þjóðir. „Annars staðar
tíðkast til dæmis ekki að nota farsíma
nema í neyð því það er dýrara að hringja
úr þeim, en hérna nota flestir farsíma í tíma
og ótíma.“ Sjálf á Bryndís ekki farsíma
og telur sig ekki þurfa á honum að
halda.
NEYTANDINN: BRYNDÍS SCHRAM FJÖLMIÐLAKONA
Eiginmaðurinn gerði verstu kaupin
„Ég hef það fyrir vana að skipuleggja
máltíðir nokkra daga fram í tímann
áður en ég fer að versla
og með þessari aðferð
gleymist ekkert og tími
og peningar sparast.“
Þórhallur segir mik-
ilvægt að láta ekkert
hrúgast upp heldur gera
hlutina jafnóðum til að þeir verði ekki
óyfirstíganlegir. „Þessi regla á við um
alla hluti, húsverk jafnt sem garðverk.
Þegar ég fer með flöskur í endur-
vinnslu tek ég krakkana mína með
þannig að þau finni hvers virði þessir
litlu hlutir eru.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
SKIPULAG SPARAR TÍMA
■ Þórhallur Heimisson prestur segir
nægjanlegt að nota hálfa hreinsitöflu
í uppþvottavélina og spara þannig
peninga.
Útgjöldin
Dýrasta sund landsins er hin heims-
fræga heilsulind Bláa lónið, en þangað
ofan í þarf að splæsa 1400 krónum
á hvern fullorðinn. Með í kaupunum
fylgir Blue Lagoon-sturtugel, hárnæring
og rakakrem í baðklefunum. Ódýr-
ast í sund – fyrir utan ýmsar ókeypis
óbyggðalaugar – er í þrjár 25 metra
laugar í Keflavík og eina í Hafnarfirði.
Þar kostar 220 krónur ofan í og því er
hægt að fara rúmlega sex sinnum í sund þar í stað einnar ferðar í Bláa lónið.
Annars kostar sundferðin yfirleitt í kringum 300 kall og víðast má fá magnaf-
slátt.
■ Dýrast / ódýrast
Sund
Framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að fela Bíla-
stæðasjóði að útfæra nýjar leiðir til að auðvelda viðskiptavinum
að greiða fyrir bílastæði. Á boðstólum verða tímabundin kort og
skafmiðar auk þess sem hægt verður að greiða fyrir stæði með
kreditkortum. Þegar er í gildi kerfi sem gerir ökumönnum kleift að
borga fyrir not á bílastæðum með farsímum.
■ Reykjavíkurborg
Nýjar leiðir til að borga í stöðumælinn
Um 40.000 jólatré seljast árlega á Íslandi, þar af 8.000 tré
sem framleidd eru hérlendis. Af þeim innlendu trjám sem
fara á markað framleiðir skógrækt ríkisins um 4.000 tré en
önnur skógræktarfélög hinn helminginn. Þetta kemur
fram í nýútkominni ársskýrslu Skógræktar ríkisins.
Íslensk jólatré eru einkum rauðgreni, blágreni og
stafafura en þau innfluttu eru nær eingöngu norð-
mannsþinur frá Danmörku.
Í seinni tíð er orðið algengara að fyrirtæki og
stofnanir setji upp torgtré og á þesum markaði eru
íslensk tré allsráðandi.
■ Skógrækt ríkisins:
8.000 íslensk jólatré árlega
Heimild: Hagstofa Íslands
> Neysla kaffis á íbúa í kílóum talið
Tími kvefsins er runninn
upp með tilheyrandi hnerra,
hósta, stífluðu nefi og sær-
indum í hálsi. Stóri bróðir
kvefsins er flensan sem
hefur í för með sér hita,
haus- og beinverk, slapp-
leika og rúmlegu. Nánast
allir landsmenn eiga eftir
að sýkjast af þessum óvær-
um í vetur og sumir jafnvel
oftar en einu sinni.
Kvef og flensa eru sjúkdómar sem
orsakast af veirum. Þrátt fyrir
mikla leit hefur ekki verið hægt að
framleiða 100 prósent virkt bólu-
efni gegn þessum hvimleiðu veik-
indum. Besta leiðin til að forðast
smit er að lifa heilbrigðu lífi og
borða holla fæðu. Einnig að forðast
stress og svefnleysi og ekki að
keyra sig út í vinnu. Þessir þættir
allir veikja virkni ónæmiskerfis-
ins.
Benedikta Jónsdóttir í heilubúð-
inni Maður lifandi hefur ráð undir
rifi hverju og er með ýmsar vörur
til að verjast kvef- og flensuplág-
unni. „Af því að öll vandamál byrja
í þörmunum er gott að taka Asidóf-
ílus-hylki reglulega,“ segir Bene-
dikta. „Það er stöðugt stríð í þörm-
unum og Asidófílus eru góðu
hermennirnir í því stríði. Ýmsar
tegundir eru í boði á verðbilinu
1.000-2.000 krónur. Svo er gott að
fá sér teskeið af hrárri kókosfitu
(einn lítri á 2.749 krónur) og mat-
skeið af hörfræjaolíu, sem er rík af
Ómega 3, 6 og 9 fitusýrum (823
krónur fyrir 250 ml flösku). Með
þessu ná kvefbakteríurnar ekki
fótfestu í líkamanum og renna út.“
Benedikta segir að fjölmargar
rannsóknir bendi til að hvítlaukur,
C-vítamín og íslenska hvannarrót-
in virki vel á kvefið, séu bakteríu-
drepandi. „Við erum með ýmsar
tegundir af hvítlaukshylkjum,
extra sterk tegund kostar 1.251
krónur. Hundrað millilítra glas af
íslensku hvannarrótinni í fljótandi
formi kostar 1.850 krónur og Ester-
C er sérlega gott C-vítamín í 500
mg hylkjum, 90 hylki á 1.423 krón-
ur. Sólhatturinn er vinsæll til að
styrkja varnarkerfið, hann má fá
fljótandi (60 ml á 1.010 kr) og í
hylkjum. Ein mjög vinsæl tegund
af sólhatti eru hylki sem innihalda
líka 500 mg af C-vítamíni og sink,
en sink hefur fyrirbyggjandi
áhrif.“ (100 hylki á 2.947 kr)
Maður lifandi selur ýmis hómó-
patalyf, meðal annars Aconite 30c
gegn flensu og Allium cepa gegn
kvefi (998 kr flaskan). Benedikta
segir þessi lyf vera „djúpvirk og
algerlega skaðlaus og án aukaverk-
ana.“
Ólívulauf er nýjasta vopnið í
kvefstríðinu og 60 mg glas með
þykkni úr ólívulaufi kostar 1.439
krónur. Benedikta segist hafa heyrt
margar jákvæðar sögur af ólívu-
laufinu. „Ef allt kemur fyrir ekki
og þú verður veikur er um að gera
að taka því rólega, vera heima og
ná þessu úr sér. Ég mæli með lestri
góðra bóka og tedrykkju, til dæmis
á hvítu tei eða lakkrístei. Eucalypt-
us hunang (500 grömm á 790 krón-
ur) er upplagt út í teið. Þetta eru
trén sem kóalabirnirnir lifa í í Ástr-
alíu og það er hálfgert hálsbrjóst-
sykursbragð af hunanginu. Svo er
um að gera að vera á léttu fæði,
grænmetissúpur eru tilvaldar.“
Kolbrún Björnsdóttir hjá Jurta-
apótekinu býður upp á jurtablönd-
una Mími gegn kvefi og flensu.
„Þegar fólk finnur að það er að
verða veikt á það að byrja að taka
þetta. Margir eru rosalega hissa á
því hvað þetta virkar vel því fólk
er vant allskonar dóti sem á að
virka en gerir það ekki,“ segir Kol-
brún. „Mímir er blanda af sólhatti,
piparmintu, valhumli og hvítlauk,
ásamt cayenne-pipar og engiferi
sem rífur í kvefið. Þetta er ónæm-
isstyrkjandi, slímlosandi, hósta-
stillandi, bakteríudrepandi, hita-
lækkandi og eykur blóðflæðið.
Sem sé, algjör dúndurblanda sem
þrælvirkar.“ Mími má fá í duft-
formi sem er leyst upp í heitu vatni
(80 grömm, 1.705 krónur) eða sem
hylki (180 stykki, 2.450 krónur).
Öll hefðbundin apótek eru svo
stútfull af vörum sem eiga að
gagnast við kvefi. Í Rimaapóteki í
Grafarvogi starfar Jóna Björk
lyfjafræðingur. „Það er ekkert
lyfjafræðilega sannað sem á að
verka gegn kvefi,“ segir hún. „Ég
held að sá sem fyndi endanlega
lækningu yrði nú aldeilis ríkur. C-
vítamín og sólhattur eru þó talin
byggja upp ónæmiskerfið og eru
mikið keypt. Spirulina-fjölvítamín
(200 stykki á 1.756 krónur) er mjög
vinsælt núna. Þú færð öll vítamín-
in þar. Þegar veikindin hafa steypt
sér yfir er ýmislegt til ráða. Til
dæmis nefsprey við nefkvefi (Otri-
vin 453 kr og Nezeril 378 kr),
Strepsils, hóstastillandi og slím-
losandi mixtúrur og ýmsar verkja-
töflur til að berjast við einkenni
flensunnar.“
Það er ljóst að margt er til ráða
þótt deila megi um niðurstöðurnar.
Síðast en ekki síst er hreinlæti
mikilvægt í hinu endalausa kvefs-
tríði. Stífur handþvottur og það að
halda fyrir öndurnarfærin þegar
maður hnerrar eða hóstar eru
góðar reglur.
gunnarh@frettabladid.is
Stríðið gegn kvefinu
KOLBRÚN BJÖRNSDÓTTIR Í JURTA-
APÓTEKINU Segir Mími dúndurblöndu
sem þrælvirkar á kvef.
BENEDIKTA JÓNSDÓTTIR Í MAÐUR LIFANDI Er með margt sem gagnast í stríðinu við
kvefið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI