Fréttablaðið - 26.10.2006, Síða 46
■■■■ { hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
„Mig hafði alltaf dreymt um að eignast eigið
leikhúsrými þegar náminu lyki,“ segir Eyrún,
sem nam leiklist við Rose Bruford College á
Englandi. „Ég festi því kaup á þessu 200 fer-
metra húsnæði eftir að heim kom til að hafa
gott æfingarými, en áttaði mig síðan á að
hér var einnig ágætis svefnaðstaða þannig
að svo fór sem fór.“
Eyrún segisr þennan ráðahag í skemmti-
legu samræmi við orð sem leikskáldið Feder-
ico García Lorca lét eitt sinn hafa eftir sér og
hún lærði meðal annars um í Rose Bruford
College. „Lorca sagði að maður yrði að lifa
í leikhúsinu, eða deyja ella,“ útskýrir Eyrún.
„Auðvitað meinti hann það ekki bókstaflega
heldur að maður ætti að setja leikúsið í önd-
vegi.“
En hvernig skyldi Eyrúnu líka að búa í
vinnunni og svo öfugt, að vinna heima hjá
sér. „Maður þarf auðvitað að leggja sig fram
við að ná ákveðnu jafnvægi þar á milli,“
svarar hún að bragði. „Það er annars mjög
fínt að búa hérna í leikhúsinu, kannski að
það verði svolítið einmanalegt stundum,“
bætir hún við hugsi.
„Svo er ég ekki frá því að hér búi leik-
húsdraugur,“ heldur Eyrún áfram og hlær.
„Hver veit nema þetta séu bara látnir við-
skiptavinir gamla apóteksins komnir til að
kaupa lyf. Maður er að minnsta kosti líklegri
til að verða alls kyns hljóða var búi maður
einn og þá vill ímyndunaraflið oft hlaupa
með mann í gönur.“
Frá því Eyrún flutti inn í húsnæðið og
kom starfseminni af stað, hafa tvær leik-
sýningar verið settar upp í Jaðarleikhúsinu,
annars vegar „Agnes High Quality“, í tengsl-
um við Bjarta daga í Hafnarfirði, og hins
vegar „Leikhúsgjörningur“, sem sýndur var
í ágúst síðastliðnum.
Að sögn Eyrúnar má flokka sýningarnar
undir tilraunaleikhús. „Fyrri leiksýningin var
samin upp úr sjálfshjálparbókum og mat-
reiðsluuppskriftum,“ útskýrir hún. „Nokk-
ur minni úr klassískum kvikmyndum voru
síðan tekin til umfjöllunar í þeirri seinni.
Þær voru báðar á vegum alþjóðlega leik-
hópsins Dan Kai Teatro, sem ég er meðlimur
í, en hópurinn samanstendur af krökkum frá
Spáni, Bretlandi, Þýsklandi og Íslandi og eru
að gera fullt af skemmtilegum og spennandi
hlutum.“ Það er annars margt á döfinni hjá
Eyrúnu, hún hefur sótt um starfsleyfi svo
hægt sé að setja upp leiklistarnámskeið í
húsinu og er að bæta aðstöðu fatlaðra, svo
fátt eitt sé nefnt.
„Við erum líka að æfa barnaleikrit-
ið Ljónalandið sem vonandi næst að sýna
í desember næstkomandi en Ívar Helgason
leikari stendur að því,“ segir hún. „Þetta er
söngleikur með umhverfsvænum boðskap,
sem allir fjölskyldumeðlimir ættu að geta
haft gaman af og ég vonast til að sjá sem
flesta.“ -rve
Býr í leikhúsi
Eyrún Ósk Jónsdóttir á heima í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði, þar sem
apótek var áður til húsa, og er ekki frá því að hún deili húsakynnunum
með draugi.
Eyrún Ósk Jónsdóttir rekur Jaðarleikhúsið í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eyrún á gott safn af postúlínsdúkkum sem hún hefur safnað um tíðina. Skórinn á myndinni er af Eyrúnu eins árs
gamalli. Á veggnum hangir málverk sem Eyrún fékk í stúdentsgjöf frá Rakel Eddu vinkonu sinni, sem málaði hana
sjálf.
Plakat með Martin Luther King, Ghandi og Ikeda,
forseta búddistasamtaka, en það var prentað í tilefni
sögusýningar sem búddistasamtökin hérlendis stóðu
fyrir í samvinnu við bandaríska sendiráðið og alþjóð-
lega kapellu Martins Luther King.
Eyrún er nýkomin heim til landsins af friðarráðstefnu
búddista sem haldin var í Marseilles í Frakklandi, en
fólk víðs vegar að úr heiminum sótti hana. Hérna sést
búddaaltari þar sem Eyrún kyrjar.
Hérna sést innrétting úr apótekinu sem var fyrir í húsnæðinu.
Gamla innréttingin var upphaflega í apóteki í Vest-
mannaeyjum en var flutt í bæinn þegar gosið hófst
árið 1973.
Hér sést móttaka Jaðarleikhússins, en þar fyrir innan hefur Eyrún svefnaðstöðu.
Teikningar sem sýna þróunarvinnu og Eyrún gerði á
meðan hún var í framhaldsnámi í leiklist og þróunar-
fæði í Winchester á Englandi.