Fréttablaðið - 26.10.2006, Síða 50
■■■■ { hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
„Sýningar standa nú yfir á Gunn-
laðarsögu, sem byggir á samnefndu
skáldverki Svövu Jakobsdóttur,“
segir Erling Jóhannesson, leikari og
leikstjóri, einn aðstandenda Hafnar-
fjarðarleikhússins. „Hér er á ferðinni
mögnuð og margslungin saga, sem við
vissum að erfitt yrði að gera skil með
einni leiksýningu. Hins vegar er óhætt
að segja að við erum tiltölulega sátt
við útkomuna.“
Erling bætir við að fyrr í mánuð-
inum hafi síðan málþing verið hald-
ið í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem
fjallað var um Gunnlaðarsögu, annars
vegar um goðsagnaþemu í sögunni og
hins vegar vinnu Sigurbjargar Þrast-
ardóttir við leikgerðina.
Að sögn Erlings hafa tvær sýning-
ar sem sýndar voru í fyrra líka verið
teknar aftur upp. „Annars vegar sýnum
við sýningu á morgnana, Hvað er, sem
ætluð er grunnskólanemendum í 9. og
10. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Verk-
efnið er ætlað til uppfræðslu um ógnir
fíkniefnaheimsins og er unnið í sam-
vinnu við SÁÁ og 540 gólf.“
Hins vegar hafa sýningar staðið á
Viðtalinu, sem flokkast undir Döff-
leikhús. „Þetta er samstarfsverkefni
Draumasmiðjunnar og heyrnaskerts
og -lauss fólks, sem fer með flest hlut-
verk í sýningunni,“ segir Erling. „Hún
fer að hluta til fram á táknmáli, en er
öllum aðgengileg engu að síður. Verk-
ið fjallar um veruleika heyrnarlausra
og sögu á Íslandi. Þetta er gríðarlega
átakamikil sýning, sem oft er erfitt að
horfa á.“
Eftir jól verður síðan tekið til sýn-
ingar leikrit byggt á bókinni Drauma-
landið eftir rithöfundinn Andra Snæ
Magnason. Leikstjórn er í höndum
Hilmars Jónssonar, leikhússtjóra
Hafnarfjarðarleikhússins. „Þeir sem til
þekkja vita að bókin er laus við dram-
atíska framvindu og byggir á hug-
leiðingum um íslenskt efnahagskerfi
síðustu hundrað ára,“ útskýrir Erling.
„Það er náttúrulega viss áskorun í
því að setja upp jafn vinsælt en um
leið umdeilt verk. En eins og Hafnar-
fjarðarleikhúsinu er von og vísa er um
metnaðarfulla uppsetningu að ræða,
sem á vonandi eftir að standa undir
væntingum.“ -rve
Döff-leikhús og
Draumaland
Það er margt á döfinni hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu. Um
þessar mundir standa yfir sýningar á þremur verkum og eftir
jól verður Draumaland Andra Snæs Magnasonar frumsýnt.
Erling Jóhannesson, leikari og leikstjóri, á þátt í því metnaðarfulla starfi sem unnið hefur
verið í Hafnarfjarðarleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA.
Aðspurður segir Lúðvík að sveitar-
félagið standi styrkari fótum en það
gerði fyrir tíu árum síðan. „Ég get
nefnt sem dæmi þjónustu fyrir íbúa
þar sem við höfum verið að ryðja
nýjar brautir, sérstaklega í íþrótta-
og æskulýðsmálum. Með tilkomu
þess að sveitarfélögin tóku við
stjórnun grunnskólanna hefur líka
orðið gjörbylting í skólastarfinu,
reyndar eins og í öðrum sveitarfé-
lögum. Bærinn er líka fallegur og
við höfum reynt að halda því við
eins og best má vera,“ útskýrir Lúð-
vík með björtum tóni.
Lúðvík lítur ekki síður björtum
augum til framtíðarinnar. „Mik-
ill uppgangur er hér í bæjarfélag-
inu. Íbúum hefur fjölgað verulega
og stefnir í það að þeim fjölgi um
annað þúsund á þessu ári, sem yrði
mesta fjölgun í sögunni. Við erum
einnig að verða hundrað ára kaup-
staður eftir rúmt ár þannig að það
eru tímamót fyrir okkar sögu hér í
bænum,“ segir Lúðvík.
Persónulega er Lúðvík samt á
því máli að styrkja þurfi miðbæj-
arkjarna Hafnarfjarðarbæjar. „Við
höfum lagt áherslu á lifandi mann-
líf í miðbænum, meðal annars með
þéttingu byggðar. Hafnarfjörður er
annð af tveimur sveitarfélögum hér
á höfuðborgarsvæðinu sem á sér
alvöru miðbæ og auðvitað er mikil
saga og menning í okkar samfélagi.
Það er þessi gamli sjarmi sem svíf-
ur yfir bænum sem við þurfum að
tryggja en þó að samræma við nýja
tíma.“
Lúðvík er síðan spurður að því
hverju hann myndi svara ef ein-
hver utanaðkomandi myndi spyrja
af hverju hann eða hún ætti að
flytja til Hafnarfjarðar. „Vegna þess
að þetta er samfélag með mikla
sál og menn finna það. Hafnar-
fjörður er eitt fárra sveitarfélaga
sem getur tryggt meirihluta íbúa
atvinnu innan svæðisins og það
hefur löngum einkennt Hafnarfjörð.
Það er líka gaman að segja frá því
að mikil eftirspurn hefur verið eftir
atvinnulóðum í sveitarfélaginu og
við höfum verið að sinna því. Við
úthlutuðum sem dæmi landsvæði
sem samsvarar 40 fótboltavöllum
fyrr á þessu ári,“ svarar Lúðvík
glaður í bragði.
Að lokum er síðan varla hægt
að sleppa Lúðvíki án þess að spyrja
hvort hann sé FH-ingur eða Hauka-
maður. „Ég er Haukamaður enda
var ég formaður þeirra í tíu ár og
Haukahjartað slær auðvitað innra
með mér. Ég held samt að þegar
út á völlinn er komið, alveg sama
hvaða íþrótt það er, þá keppum
við alltaf sem Hafnfirðingar, nema
það sé náttúrulega innbyrðis,“ segir
Lúðvík að lokum með bros á vör.
steindor@frettabladid.is
Samfélag með mikla sál
Lúðvík Geirsson situr nú sitt annað kjörtímabil í stóli bæjarstjóra í Hafnarfirði. Hann
efast ekki um það að sjaldan eða aldrei hafi verið eins gott að búa í Hafnarfirði og
telur sóknartækifæri víða að finna.
Lúðvík vill leggja áherslu á lifandi mannlíf í miðbænum.
Vetrarfrí
barnanna
Skólabörn í Hafnarfirði ættu
að kætast því vetrarfrí verður
í öllum grunnskólum Hafn-
arfjarðar föstudaginn 27. og
mánudaginn 30. október.
Þriðjudaginn 31. október eru
allir grunnskólarnir nema
Öldutúnsskóli með skipulags-
dag og því mæta nemendur
ekki í skólann þann dag. Vetr-
arfrí er val skóla en í Hafnar-
firði er ákvörðun um vetrarfrí
sameiginleg þannig að allir
skólarnir taka vetrarfrí á sama
tíma. Ekki verður um frekara
vetrarfrí að ræða í vetur.
sjá www.hafnarfjordur.is
Brátt fá börnin í Hafnarfirði kærkomið
vetrarfrí.
Ég mæli
með
heimsókn!
…á Bókasafninu
kl. 9-21
…í Hafnarborg
kl. 11-21
…á Byggðasafninu
kl. 11-21
Fimmtudagar eru langir dagar…
Við mælum með heimsókn! Ég mæli með heimsókn! Við mælum með heimsókn!
Fimmtudagar verða nú sannkallaðir safnadagar því nú er opið lengur á
Bókasafninu, Byggðasafni Hafnarfjarðar og Hafnarborg.
Við mælum með heimsókn á söfnin í bænum!
Nú er opið lengur á fimmtudögum á Bókasafninu, Byggðasafni Hafnarfjarðar og Hafnarborg.
Fimmtudagar eru því sannkallaðir safnadagar.
Við mælum með heimsókn!