Fréttablaðið - 26.10.2006, Síða 56
■■■■ { hafnarfjörður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Byggðasafn Hafnarfjarðar er með
þrjú hús til umráða og í þeim eru
nokkrar fastar sýningar. „Eins og er
erum við með sex sýningar í gangi,“
segir Björn Pétursson bæjarminja-
vörður.
Eitt af húsum Byggðasafnsins er
Siggubær sem er lítill bær frá 1902.
„Siggubæ geymum við og varðveit-
um sem sýnishorn af verkamanna-
og sjómannaheimilum frá fyrri hluta
tuttugustu aldar og í skúrnum þar
við hliðina á erum við með sýningu
um álfa og álfatrú,“ segir Björn.
Annað hús safnsins er Síverts-
enhús sem er elsta hús Hafnarfjarð-
ar en það var byggt árið 1803. „Í
Sívertsenhúsi erum við með sýningu
um heimili yfirstéttarfjölskyldunnar
á fyrri hluta 19. aldar. Við reynum
að byggja sýninguna svolítið á sögu
Bjarna Sívertsen sem var kallaður
faðir Hafnarfjarðar og erum búin
að gera húsið upp þannig að það er
eins og hans heimili auk þess sem
við erum með litla sýningu um hann
og hans sögu.“
Pakkhúsið er síðan þriðja og
stærsta hús Byggðasafnsins. „Í
Pakkhúsinu erum við með þrjár
sýningar. Stærsta sýningin heitir
Þannig var og á henni er saga Hafn-
arfjarðar rakin alveg frá landnámi
til okkar daga. Uppi á lofti erum við
með leikfangasýningu fyrir börn en
við eigum gríðarlega stórt safn leik-
fanga og til þess að alltaf sé eitthvað
nýtt að sjá skiptum við reglulega út
leikföngum. Síðan erum við með
sýningu sem heitir Jæja, eru þeir
þá komnir og er um hernám Breta á
Íslandi. Sú sýning er unnin af ensku
hönnunarfyrirtæki sem er marg-
verðlaunað fyrir sýningar sem það
hefur hannað.“
Byggðasafn Hafnarfjarðar er opið
á laugardögum og sunnudögum frá
klukkan ellefu til fimm og á fimmtu-
dögum frá ellefu til níu og boðið er
upp á leiðsögn um safnið fyrir þá sem
það vilja. „Ef óskað er eftir leiðsögn
um safnið fyrir hópa þarf það ekkert
að vera bundið af opnunartíma og
við opnum safnið hvort sem það er
fyrir skólahópa eða hópa á vegum
ferðaskrifstofa,“ segir Björn og bætir
við að oft séu líka sérstakar uppák-
omur á safninu utan hefðbundins
opnunartíma. „Fyrir jólin erum við
til dæmis með sérstaka jóladagskrá
fyrir leikskólabörn og þá er stíf dag-
skrá allan daginn í tvær vikur. Það
er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur,“
segir hann. emilia@frettabladid.is
12
Ævintýraferð
aftur í tímann
Á Byggðasafni Hafnarfjarðar er margt að sjá og margs
konar sýningar í gangi sem höfða bæði til barna og full-
orðinna.
Á leikfangasýningunni í Pakkhúsinu má finna fjölda fallegra leikfanga.
Björn Pétursson bæjarminjavörður í stof-
unni Sívertsenhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þýska bóka-
safnið komið til
Hafnarfjarðar
Langir fimmtudagar og
þýskar sögustundir eru
meðal nýjunga á Bóka-
safni Hafnarfjarðar.
„Nú eru að hefjast hjá okkur
barnasögustundir á laugardög-
um á þýsku, þannig að mikið líf
verður hjá okkur á laugardög-
um,“ segir Anna Sigríður Ein-
arsdóttir, forstöðumaður Bóka-
safns Hafnarfjarðar, en nýlega
tók safnið við þýska bóka-
safninu. Hún segir þetta mikla
búbót og stefnt er á að útbúin
verði sérdeild með öllu þýska
efninu þar sem fólk getur náð
í bækur, myndbönd og hljóð-
bækur á þýsku.
„Hér hafa einnig hafist langir
fimmtudagar, þá erum við með
opið frá 9 til 9 og mælum við
sérstaklega með því að foreldrar
mæti hér með börnin eftir vinnu
og eigi rólega stund á meðan
hitt foreldrið fer í matarbúðina.
Það er mun skemmtilegra en
að vera með barnið grátandi í
búðinni,“ segir Anna Sigríður
og brosir og bætir við að barna-
bókadeildin sé mjög hugguleg
með góðum sófum og mörgum
bókum.
Bóksafnið hefur upp á margt
að bjóða og má að lokum nefna
að oft eru settar upp skemmtileg-
ar sýningar. Um þessar mundir
er sýning á gömlum barna-
bókum í eigu safnsins. Margar
þeirra eru í upprunalegri útgáfu
og má nefna gersemar eins og
Hákon hamingjusami sem gefin
var út á Seyðisfirði 1947 og
Leikjabók með innileikjum frá
árinu 1946.
Á fimmtudögum eru langir fimmtu-
dagar á Bókasafni Hafnarfjarðar og þá
er opið frá 9 til 9.