Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 76

Fréttablaðið - 26.10.2006, Side 76
 26. október 2006 FIMMTUDAGUR36 MERKISATBURÐIR 1951 Winston Churchill verður forsætisráðherra Breta í annað sinn þegar Íhaldsflokkurinn sigrar í kosningum. 1958 Pan Am flýgur fyrstu Boeing 707 þotunni frá New York til Parísar á átta klukkutímum og 41 mínútu. 1965 Reykjanesbraut, milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, er formlega opnuð til umferðar. 1994 Leiðtogar Ísraela og Jórdana skrifa undir friðarsamkomulag milli þjóðanna. 1995 Tuttugu manns farast þegar snjóflóð fellur úr Skollahvilft á byggðina á Flateyri við Önundarfjörð. FRANCOIS MITTERAND (1916−1996) FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI „Margaret Thatcher er með augnaráð Stalíns og rödd Marilyn Monroe.“ Mitterand var forseti Frakklands frá 1981 til 1995. Á þessum degi árið 1984 var hjarta úr bavíana grætt í fjórtán daga gamalt stúlkubarn. Aðgerðin var framkvæmd af Leonard L. Bailey skurðlækni við Loma Linda háskólasjúkra- húsið í Kaliforníu. Þetta var í fyrsta sinn sem reynt var að græða hjarta úr bavíana í manneskju. Stúlkan, sem nefnd var Baby Fae, fæddist með vanþrosk- að hjarta, en nær alla vinstri hlið þess vantaði í stúlkuna. Nokkrum dögum eftir fæðingu barnsins sannfærði Bailey móður þess að leyfa honum að skipta hjartanu út fyrir heilbrigt apahjarta enda væru lífslíkur barnsins að öðrum kosti sáralitlar. Þrisvar áður hafði hjarta úr dýri verið grætt í menn, síðast árið 1977, en enginn lifði lengur en rúma þrjá daga. Bailey hélt því fram að ólíklegra væri að líkami svo ungs barns myndi hafna hjartanu þar sem ónæmiskerfi þess væri ekki orðið þroskað. Baby Fae lifði aðgerðina af og lífsbarátta hennar næstu daga dró að sér heimsathygli. Hún lifði lengur en nokkur önnur mannvera eftir slíka aðgerð en þó fór svo að líkaminn hafnaði hinu nýja hjarta og Fae dó úr nýrnabilun vegna þeirra ónæmisbælandi lyfja sem henni voru gefin. Fae dó 15. nóvember 1984 eftir tuttugu daga harða baráttu. ÞETTA GERÐIST: 26. OKTÓBER 1984 Hjarta úr apa grætt í stúlkubarn timamot@frettabladid.is Hallgrímskirkja var vígð á þessum degi fyrir réttum tveimur áratugum og stend- ur mikil hátíð fyrir dyrum í tilefni af því. „Við reynum að gleðjast þegar það koma tyllidagar og ástæða er til,“ segir séra Jón Dalbú Hró- bjartsson, en hann og séra Birgir Ásgeirsson eru sókn- arprestar í Hallgrímskirkju. Afmælisdagskráin, sem stendur í þrjá daga, hefst klukkan 17.30 í dag þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri opnar sýningu um tilurð og sögu kirkjunn- ar. „Það er vonandi bara upp- hafið að því sem koma skal og vonandi eigum við eftir að gera enn betur í þeim efnum,“ segir séra Jón. Aðal- afmælismessa hátíðarinnar fer fram á sjálfan Hall- grímsdag annað kvöld. Þar predikar og þjónar fyrir alt- ari biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson. Á laug- ardag gengst Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum fyrir stórri ráðstefnu undir yfirskriftinni: Hallgrímur Pétursson (1614-1674) og samtíð hans. Að sögn séra Jóns er Hall- grímskirkja þjóðarhelgi- dómur. „Ég held að það orð fangi þýðingu kirkjunnar vel. Við sem störfum hér reynum líka að standa undir því með því að bjóða upp á öflugt starf fyrir alla aldurs- hópa, bæði hvað snertir helgihald og fræðslu- og listastarfsemi, sem er fjöl- breytt eins og flestir vita.“ Það tók langan tíma að reisa Hallgrímskirkju, rúma fjóra áratugi, og er í raun- inni ekki lokið enn. „Það á enn eftir að klára húsið til fulls og svo þarf að fara að laga kirkjuturninn,“ útskýr- ir séra Jón. „Við vonumst til að ríki, borg og kirkja taki höndum saman og lagi það sem þarf að laga strax á næsta ári.“ Hann segir að sér og séra Birgi líði afskaplega vel í sókninni. „Þetta er dálítið eins og að vera prestur á torgi, maður er alltaf að rek- ast á fólk allan daginn. Það er gaman að segja frá því að samkvæmt talningu tóku 1.600 manns þátt í því starfi sem hér fer fram, fyrstu viku í október. Þá lögðu 5.600 ferðamenn leið sína hingað á sama tíma svo hér er mikill mannsöfnuður allt árið um kring.“ Nánari upplýsingar um afmælisdagskrá Hallgríms- kirkju má finna á heimasíðu kirkjunnar, hallgrimskirkja. is. bergsteinn@frettabladid.is HALLGRÍMSKIRKJA: VAR VÍGÐ FYRIR 20 ÁRUM Stórafmæli þjóðarhelgidóms ����������������������������������������� ����������������������� ������������� ���� �� ����� ��������� ����� ���������� Elskuleg móðir okkar og amma, Þórey Kristín Guðmundsdóttir (Dóda) hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, andaðist mánudaginn 23. október. Útför verður auglýst síðar. Sveinn Haukur Björnsson Hugi Ingibjartsson Jón Guðni Ómarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elínborg Gísladóttir Álftamýri 56, Reykjavík, sem lést á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi 15. október sl. verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 27. okt- óber kl. 15.00. Höskuldur Einarsson Sigríður R. Ólafsdóttir Þórlaug Einarsdóttir Erling Hermannsson Sigrún B. Einarsdóttir Guðrún Einarsdóttir Kristján Sæmundsson og barnabörn og barnabarnabörn 70 ára afmæli Í dag, 26. október, á ástkær móðir okkar Kristín Hansen 70 ára afmæli. Við og fjölskyldur okkar óskum þér innilega til haming ju með afmælisdaginn. Með hjartans þökk fyrir allt elsku mamma. Þínir afkomendur. LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Rose E. Halldórsson Reynimel 61, verður jarðsungin frá Neskirkju á morgun, föstudag 27. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Frank M. Halldórsson Betsy Halldórsson Georg Halldórsson Stefanía Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdamóðir, og amma, Ingibjörg Gestsdóttir Engjaseli 60, lést að morgni mánudagsins 23. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin auglýst síðar. Sævar Bragi Arnarson Ásta Ingunn Sævarsdóttir Garðar Gunnar Ásgeirsson María Sævarsdóttir Jón Ólafur Kjartansson Jónína Edda Sævarsdóttir Guðlaugur Ottesen Karlsson Gestur Örn Sævarsson Þórdís Jóhannsdóttir Gestur Vigfússon og barnabörn SÉRA JÓN OG SÉRA BIRGIR Kunna vel við sig í sókninni enda kemur þangað mikill straumur fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.