Fréttablaðið - 26.10.2006, Page 82
26. október 2006 FIMMTUDAGUR42
BÓKMENNTIR
HÁSKI OG HUNDAKJÖT: Á VIT KÍN-
VERSKRA ÆVINTÝRA
HÖF: HÉÐINN SVARFDAL BJÖRNSSON
ÚTGEFANDI: VAKA HELGAFELL
NIÐURSTAÐA: AUÐLESIN EN ÓEFTIR-
MINNILEG FERÐASAGA.
Bókin Háski og hundakjöt fékk
nýlega verðlaun í samkeppninni
um Íslensku barnabókaverðlaun-
in. Þetta er fyrsta bók höfundar-
ins, Héðins Svarfdals Björnsson-
ar sem þar segir sögu ungs pilts
sem ferðast til Kína ásamt föður
sínum.
Háski og hundakjöt er sum-
part óvenjuleg saga, aðstæðurn-
ar eru óneitanlega framandi og
bjóða upp á skemmtilega frá-
sögn en sagan nær þó litlu flugi.
Aðalpersónan, fótboltastrák-
urinn Aron Björn, er ósköp
venjulegur íslenskur unglingur
úr fremur venjulegri fjölskyldu
nema hvað faðir hans er búsett-
ur í Bandaríkjunum og þarf
starfs síns vegna að ferðast til
Kína. Þegar þangað er komið
skilur hann piltinn eftir næstum
óþægilega eftirlitslausan á
meðan hann vasast í viðskiptum
sínum.
Á meðan ferðast Aron um í
mannmergðinni og kynnist
meðal annars jafnöldrum sínum
í borginni Zhaoqing. Hann lærir
um siði og menningu í Kína á
þessu ferðalagi sínu og eignast
góða vini – ekki síst vegna þess
að hann er klæddur í fótboltabol
og getur sýnt góða takta á vellin-
um. Vitanlega er líka illmenni í
sögunni, svikull samstarfsmaður
föður Arons sem hann á sinn þátt
í að afhjúpa að lokum.
Þessi bók er auðveld aflestrar
og nokkuð spennandi framan af.
Það er skemmtilegt að lesa um
fyrstu upplifanir Arons í Kína en
lesendur þurfa að bíða nokkuð
lengi eftir því að hann lendi í
nokkrum ævintýrum – þau virð-
ast í það minnsta nokkuð hvers-
dagleg í samanburði við hasar
sem boðið er upp á í öðru menn-
ingarefni fyrir börn og unglinga.
Hápunktar sögunnar, þegar
reynir helst á hetjuna staðföstu
og úrræðagóðu, eru alls ekki
hádramatískir heldur undir-
strika þeir hversu venjulegur
íslenskur piltur hann Aron Björn
er.
Háski og hundakjöt er ekki
beinlínis spennusaga og vart
leiftrandi af húmor eða frum-
leika þegar kemur að persónu-
sköpun eða fléttu. Persónur bók-
arinnar eru fáar og engar þeirra
eftirminnilega litríkar. Frásögn-
in er sögð í þriðju persónu og
rödd Arons fær lítið rými innan
hennar sem mér finnst miður því
fyrir vikið finnst mér hann næsta
ómótuð persóna. Frásögnin er
myndræn og örar kaflaskipting-
arnar minna dálítið á klippingu í
kvikmynd – þessi bók myndi
kannski henta vel hvíta tjaldið ef
hægt væri að krydda hana með
töluvert meira fjöri.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Óspennandi ævintýri
Í dag hefjast hátíðahöld
til að minnast þess að
tuttugu ár eru liðin frá því
að Hallgrímskirkja var
vígð. Verður opnuð sýning
í forkirkjunni þar sem saga
þessa mikla mannvirkis er
rakin.
Sýninguna opnar borgarstjóri
Reykjavíkur í dag kl. 17.30 að
viðstöddu stórmenni en Borgar-
skjalasafn stendur að sýningunni
í samstarfi við sóknarnefnd og
hið öfluga Listvinafélag kirkj-
unnar.
Sýningin stendur yfir í Hall-
grímskirkju til 30. nóvember og
verður í kjölfarið sett upp á
Reykjavíkurtorgi í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15.
Á sýningunni er rifjuð upp til-
urð og byggingarsaga kirkjunn-
ar í máli og myndum. Þar verður
minnst einstakra þátta úr bygg-
ingarsögunni en ekki hvað síst
hinnar miklu fórnfýsi sem fylg-
ismenn kirkjunnar lögðu á sig til
að gera byggingu hennar að veru-
leika en baráttan fyrir bygging-
unni tók langan tíma, meira en
fjóra áratugi.
Hallgrímskirkja var teiknuð
af Guðjóni Samúelssyni, húsa-
meistara ríkisins. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin hinn 15. desem-
ber 1945 en kirkjan var ekki vígð
fyrr en 41 ári síðar og þá var
raunar mörgu enn ólokið. Á ýmsu
gekk á byggingartímanum og
vakti kirkjan miklar deilur, bæði
stærð, útlit og staðsetning henn-
ar. Í revíu á fimmta áratugnum
varð þessi brandari til: Hvað er
Hallgrímskirkja? Hún er eins og
sæljón. Nei, hún er rándýr.
Það gekk oft erfiðlega að afla
fjár til að standa straum af fram-
kvæmdum en í stórum dráttum
komu um 60 prósent úr sjóðum
safnaðarins og frá einkaaðilum
en auk þess studdu bæði ríki og
borg verkið.
Hallgrímskirkja er minning-
arkirkja um Hallgrím Pétursson.
Hún er hönnuð í nýgotneskum
stíl og er bæði helsta kennileiti
Reykjavíkur og stærsta kirkja
Íslands. Þar er jafnframt stærsta
orgel landsins, Klais-orgelið,
sem var vígt 1992.
Á sýningunni er einkum fjall-
að um tilurð og byggingarsögu
kirkjunnar, en hún skiptist í átta
þemu. Þar á meðal er velt upp
spurningum og eins og þessum
tveimur sem hér fljóta með:
Til hvers var holtið nýtt þar
sem skólapiltar reistu vörðuna
sem það var síðan kennt við?
Hvert var upphaf safnaðarins og
hvaðan kom hugmyndin um
háborg íslenskrar menningar
sem Guðjón Samúelsson setti
fram á öðrum áratug aldarinnar
síðustu?
Þá er greint frá byggingar-
sögunni og minnst vígslunnar og
einnig er hið mikla listalíf sem
kirkjan hefur fóstrað rifjað
upp. - pbb
Hér er hlið himinsins
Annað kvöld frumsýn-
ir Þjóðleikhúsið á stóra
sviðinu nýjan breskan
gamanleik með söngvum,
Stórfengleg! Þar er í aðal-
hlutverki Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, en höfundur
verksins heitir Peter Quilt-
er og hefur einkum samið
léttmeti fyrir svið. Leik-
stjóri er Ágústa Skúladóttir.
Gamanleikurinn byggir á ferli og
stíl bandarískrar söngkonu og
skemmtikrafts, Florence Foster
Jenkins, sem var auglýst sem
„versta söngkona allra tíma“.
Jenkins varð víðfræg fyrir hljóm-
plötur sínar og tónleika sem hún
hélt í New York á 4. og 5. áratugn-
um. Hún þótti heillandi persónu-
leiki, var gædd óbilandi sjálfs-
trausti og dómgreindarskorti því
hún hélt ekki lagi.
Jenkins tilheyrði hópi lista-
manna sem gerði út á lélega
frammistöðu. Margir þeirra höfðu
fulla vitund um hæfileikaleysi
sitt, en samkvæmt fréttatilkynn-
ingum Þjóðleikhússins var Jenkis
laus við það. Listamenn af þessari
gerð voru ófáir í „vaudeville“-
húsum Bretlands og Bandaríkj-
anna. Hér á landi var bresk hús-
móðir, frú Miller, nokkuð vinsæl á
sjöunda áratugnum fyrir falskan
söng.
Höfundur verksins, Peter
Quilter, hóf feril sinn sem leikari í
sjónvarpi en vakti fyrst athygli
sem leikskáld árið 1998. Síðan
hafa leikrit hans verið þýdd yfir á
mörg tungumál og leikin í tæp-
lega tuttugu löndum víða um
heim. Verk hans hafa meðal ann-
ars verið sýnd í Sydney, Amster-
dam, Helsinki, Prag, Höfðaborg
og Toronto við miklar vinsældir.
Tvö leikverk eftir hann hafa verið
sýnd á West End í London, popp-
söngleikurinn BoyBand árið 1999,
sem einnig var sýndur á leikför
um Evrópu, og Stórfengleg! eða
Glorious! árið 2005.
Verkið var tilnefnt til Laurence
Olivier-verðlaunanna sem besti
nýi gamanleikur ársins. Ingunn
Ásdísardóttir þýddi.
Auk Ólafíu eru leikarar í sýn-
ingunni þau Örn Árnason, Stefán
Hallur Stefánsson, Edda Arnljóts-
dóttir, Dóra Jóhannsdóttir og
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir.
Stefán Hallur og Dóra koma
fram í fyrsta sinn í Þjóðleikhús-
inu. Jóhann G. Jóhannsson stjórn-
ar tónlist og Þórunn Sigþórsdóttir
er aðstoðarleikstjóri. Frosti Frið-
riksson gerði leikmynd en Þórunn
Elísabet Sveinsdóttir búninga og
Björn Bergsteinn Guðmundsson
hannaði lýsingu. - pbb
Stórfengleg söngkona
FRÚIN STÓRFENGLEGA VAR FYRIR SKRAUTLEGA BÚNINGA Þórdís Arnljótsdóttir, Örn
Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hlutverkum sínum.
GAMALT DEILUMÁL Í KIRKJULÍFI REYKJAVÍKUR Fyrst var deilt um stofnun safnaðar, síðan um útlit kirkju og stærð, en nú stendur
Hallgrímskirkja flestum til yndisauka og er mörgum andlegt skjól. FRETTABLAÐIÐ/GVA
Veröld hefur gefið út Bláa and-
ann af Babýlon eftir P. B. Kerr og
er það sjálfstætt framhald sög-
unnar Iknaton-ráðgátan sem kom
út í fyrra hjá sama forlagi.
Sagan fjallar um
John og Filippíu sem
eru engir venjulegir
12 ára krakkar. Þau
eru að hálfu menn
og að hálfu andar.
Þau geta gert sig
ósýnileg, breytt sér
í dýr og látið óskir
rætast. En þegar
dularfull og stórhættuleg bók
hverfur upphefst hörkuspenn-
andi en bráðfyndin atburðarás
þar sem leikurinn berst frá New
York til Íraks með viðkomu í
Berlín, Transylvaníu og Kaíró.
Blár andi
��������������
���������������� �����������������������
������������������������������������������
��������������������������������������������
��������������������������������������
Fös. 27.okt. kl.20
Sun. 29. okt. kl.20
Fös. 3. nóv. kl.20
“Ein sú besta, ef ekki besta sýning sem
ég hef séð”Eyrún Sigurðardóttir myndlistarmaður
Á morgun verður Halldór Ásgeirs-
son með gjörning í hinu litla og
þrönga rými Gallerís Dvergs á
Grundarstíg. Þar opnaði Halldór
sýningu sína sem hann kallar
Hrauntákn í síðustu viku.
Gallerí Dvergur er í kjallara
bakhúss á Grundarstíg 21 í Þing-
holtunum í Reykjavík. Halldór
flytur gjörning sinn föstudaginn
27. október kl. 21 og endurtekur
hann á laugardag á sama tíma.
Sýningin verður að auki opin í
kvöld milli 18-20
Sýningarrýmið Gallerí Dverg-
ur hefur verið starfrækt í nokkra
mánuði á ári frá 2002 og hafa verið
haldnar þar alls 18 einkasýningar
innlendra sem og erlendra lista-
manna, svo og tónleikar og vídeó-
sýningar. Ókeypis er inn og allir
eru velkomnir.
Sýningar þessa árs hafa allar
tekið mið af tímatengdri list, með
áherslu á rýmistengda vinnu, og
verður mið tekið af því áfram á
komandi ári. Gallerí Dvergur
stendur að sýningu Halldórs í
tengslum við Sequences-listahá-
tíðina, sem leggur áherslu á (raun-
)tímalistir. -pbb
Halldór í Dvergnum
Halldór við gjörninga sína í síðustu viku.
GALLERÍ DVERGUR/BIRT MEÐ
GÓÐFÚSLEGU LEYFI LISTAMANNSINS