Fréttablaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 85
FIMMTUDAGUR 26. október 2006 45
Löngum var sagt að ekkert kæmi
listamönnum eins vel og að falla
frá á hátindinum. Bandaríska
tímaritið Forbes hefur birt í
sjötta sinn lista yfir látna
afreksmenn sem enn afla
góðra tekna. Þeir þrettán
efstu á listanum höfðu síð-
ustu tólf mánuði 247
milljónir dala í tekjur
samanlagt að sögn For-
bes. Tekjurnar byggja
á ólíkum stofnum:
margir eru með tekjur
af höfundar- og flutn-
ingslaunum, aðrir selja
löngu liðna ímynd sem
er enn nýtileg sem
féþúfa. Viðmið Forbes var að árs-
tekjur hins látna urðu að vera
yfir sjö milljón dala markinu
liðna tólf mánuði.
Elvis Presley hefur lengi
trónað á toppi listans en Kurt
Cobain velti honum úr
sessi. Skýrist það af sölu
Courtney Love á fjórð-
ungi í fyrirtækinu
sem heldur um höf-
undarrétt Cobains
fyrir 50 milljónir
dala.
Presley er í
öðru sæti, Charl-
es M. Schulz,
höfundur Peanuts,
er í þriðja en myndasögur hans
eru enn víða birtar. Gamall
aðdáandi Presleys, John
Lennon, er í fjórða sæti enda
er eiginkona hans ötul við að
halda gengi hans á markaði á
floti. Albert Einstein er í
fimmta sæti. Þá koma
þau í röð: Andy Warhol
myndlistarmaður,
barnabókahöfundurinn
bandaríski Dr. Seuss,
Ray Charles, Marilyn
Monroe, Johnny Cash og
J.R.R. Tolkien. Lestina
reka bítillinn George
Harrison og Bob Mar-
ley. - pbb
Dauðar stjörnur þéna vel
Ung kona sem hér hefur starfað um
hríð tekur þátt í vakningu mynd-
listarmanna þessa dagana með
óvenjulegum hætti. Hún hefur gert
veggmynd á gaflinn á Bankastræti
6 úr pallíettum. Verkið kallar Ther-
esa Himmer Sequinfall og vísar þar
til vakningarhátíðar starfssystkina
sinna Sequences.
Theresa hefur dvalið hér frá því
vorið 2005 og starfar á Studio
Granda. Hún er menntaður arki-
tekt frá Arkitektaskólanum í Árós-
um og lagði þar stund á tilraunir í
byggingarlist og landslagshönnun.
Verkið vísar beint í íslenska
hefð í myndlist, fossamyndirnar.
Það er gert úr skrautefni sem oft-
ast er notað í skartklæði kvenna og
leikhúsfólks, glitplötur hringlaga
sem þekktastar eru undir alþjóð-
lega heitinu, pallíettur. Hún hefur
fest 13.500 slíkar á nagla á gafl í
miðborg Reykjavíkur en undir er
óhrjálegur steinveggur með veggja-
kroti. Þegar vind hrærir verður
fossmyndin á veggnum lifandi.
Í tilkynningu frá Sequences er
vakin athygli á að efnið er í raun í
andstöðu við það náttúrulega fyr-
irbæri sem myndin dregur fram á
alls ólíklegum stað: hráefnið er úr
plasti í miðri borg á ókræsilegum
gafli. Þessi gervifoss er á stöðugri
hreyfingu, næstum lifandi, eins og
náttúran sjálf.
Vakning myndlistarmanna hefur
á hátíðinni sótt inn á opinber svæði
með áköfum og upplýsandi hætti.
Verk Theresu er þar engin undan-
tekning og verður vísast vegfar-
endum gleðigjafi meðan það er
uppi. - pbb
Kvikur pallíettufoss á gafli húss
THERESA HIMMER Fyrir framan verk sitt, Sequinfall, í miðborg Reykjavíkur.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Gunnar Magnússon
Katrín Pétursdóttir Young
Óðinn Bolli
Tinna Gunnarsdóttir
Þórdís Zoega
Atli Hilmarsson
Ámundi
Gunnar Karlsson
Siggi Eggertsson
Sól Hrafnsdóttir
Stefán Kjartansson
Bergþóra Guðnadóttir
Aftur
ELM
Sigrún Baldursdóttir
Steinunn Sigurðardóttir
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
Arkibúllan
Einrúm
Guðmundur Jónsson
Hjördís og Dennis
Teiknistofan Tröð
Yrki
14:00
15:00
16:00
17:00
RJÓMI
24 HÖNNUÐIR 240 MÍNÚTUR
RJÓMI íslenskrar hönnunar verður dreginn fram í dagsljósið þegar
tuttugu og fjórir af áhugaverðustu hönnuðum Íslands kynna verk sín í
tíu mínútur hver í hönnunarmaraþoni ásamt því sem nemendur LHÍ og
HR kynna fimm vikna rannsóknarvinnu í formi viðskiptahugmynda
sem lýsa spennandi tækifærum þar sem sérkenni íslenskrar hönnunar
eru dregin fram.
Viðburðurinn verður haldinn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, milli
klukkan 13:00 og 18:00 laugardaginn 28. október 2006.
Þann 29. október mun sýningin færast yfir til höfuðstöðva Marels og
vera opin til 11. nóvember 2006.
Sýningin er opin öllum og aðgangur er ókeypis / www.rjomi.is
DJAMMIÐ UM HELGINA:
Allt um djammið
YELLO
KEFLAVÍK
ROKK
Beinar útsendingar alla helgina
á splunkunýrri efri hæð
GRAND
HELGI VALUR
Fimmtudagur
DJ-ATLI
Föstudagur
DJ-ANDRI
Laugardagur