Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 76

Fréttablaðið - 11.11.2006, Page 76
Þessi spurning kviknar líklega af þeirri staðreynd að tveir keisarar sem báðir tóku sér nafnið Napó- leon ríktu í Frakklandi á 19. öld. Sá fyrri var Napóleon Bónaparte eða Napóleon I, en sá síðari tók sér tit- ilinn Napóleon III. Það liggur því nokkuð beint við að velta fyrir sér hver var Napóleon II. Eiginlega er hægt að svara spurn- ingunni um tilvist Napóleons II bæði játandi og neitandi. Í huga Napóleons I byggðist keisaraveld- ið á því að hann gæti eignast karl- kyns erfingja. Kona Napóleons, Jósefína, gat ekki eignast börn og því skildi hann við hana og giftist Maríu Lovísu, dóttur Austurrík- iskeisara, árið 1810. Ári seinna ól hún sveinbarn, Napóleon Frans Jósef Karl Bónaparte. Napóleon yngri hlaut heiðurstitilinn ,konung- ur Rómar‘, líkt og erfingi bresku krúnunnar ber titilinn ,prinsinn af Wales‘. Árið 1814 hafði Napóleon I farið halloka í styrjöldum sínum og neyddist til þess að segja af sér keisaradómi. Hann gerði það með því skilyrði að við völdum tæki sonur hans, þá þriggja ára, en ekk- ert mark var tekið á þessari ósk. Napóleon I var sendur í útlegð til eyjunnar Elbu og sonurinn varð eftir hjá Maríu Lovísu, móður sinni. Ári seinna reyndi Napóleon I aftur að ná völdum en varð að lúta í gras í orrustunni við Waterloo. Eftir hana sagði Napóleon af sér keisara- dómi á ný og bað aftur um að sonur sinn tæki við völdum. Í þetta sinn samþykkti franska þingið beiðni Napóleons, og því ríkti fjögurra ára drengur í um það bil tvær vikur yfir Frakklandi að nafninu til áður en bandamenn komu til Parísar og settu snáðann af. Þar með lauk end- anlega valdatíð þeirra feðga en Napóleon I eyddi síðustu árum ævi sinnar í útlegð á St. Helenu í Suður- Atlantshafi þar sem lést árið 1821. Eftir Napóleonsstyrjaldirnar fékk Napóleon yngri titilinn ,hertoginn af Reichstadt‘ en var í raun hálf- gerður fangi í Austurríki. Hann dó úr berklum árið 1832, einungis 21 árs. Eins og með föður hans hafa heyrst raddir um að honum hafi verið byrlað eitur en líklega er engin leið að komast að hinu sanna í málinu. Engir nema hörðustu stuðnings- menn Bónaparte-ættarinnar kalla Napóleon Frans Jósef Karl Bóna- parte nafninu Napóleon II. Samt sem áður ákvað frændi þeirra feðga, Loðvík Napóleon, árið 1852 að taka upp nafnið Napóleon III í virðingarskyni við stutta valdatíð frænda síns. Stefán Gunnar Sveinsson, sagnfræðingur Fræðimenn eru nokkurn veginn sammála um að það sem veldur hækkun á hitastigi jarðar sé auk- inn styrkur svokallaðra gróðurhúsa- lofttegunda af mannavöldum. Sú lofttegund sem leikur hér lykil- hlutverk er koltvíoxíð. Meðal ann- arra gróðurhúsalofttegunda eru vatnsgufa, metan, tvínituroxíð, óson og ýmis halógen-kolefnissam- bönd sem framleidd eru í iðnaði. Til þess að átta sig á verkan þess- ara efna og hvers vegna þau eru kennd við gróðurhús er mikilvægt að skoða hvernig geislar sólar hegða sér á jörðinni. Þegar sólargeislar falla á loft- hjúp jarðar endurkastast 26 pró- sent þeirra strax aftur út í geim- inn vegna frákasts frá skýjum og ýmsum ögnum í lofthjúpnum. Skýin og agnir í andrúmsloftinu gleypa svo í sig um nítján prósent þeirra geisla sem berast frá sólu en afgangurinn, 55 prósent, nær að yfirborði jarðar. Af þeim geisl- um er 4 prósentum varpað strax aftur út í geim. 51 prósent hefur síðan margvísleg áhrif og veldur meðal annars bráðnun jökla, upp- gufun vatns og hitun yfirborðsins. Síðast en ekki síst nýtast þessir geislar til ljóstillífunar plantna. Geislar sólar sem ná yfirborði jarðar eru ljós og önnur rafsegul- geislun með stuttri bylgjulengd. Orka þeirra vermir jörðina og sendir þá jörðin frá sér sem varmageislun með talsvert meiri bylgjulengd en upphaflega ljósið. Aðeins brot af síðarnefndu geisl- unum berst þó út fyrir lofthjúp- inn; meirihluti þeirra er fangaður af sameindum í andrúmsloftinu sem við nefnum í daglegu tali gróðurhúsalofttegundir. Geislun- in frá yfirborði jarðar hitar sam- eindir þessara efna í lofthjúpnum og þær endurkasta hitageislum í allar áttir. Allt að níutíu prósent þessara geisla berast aftur til jarðar, hita hana og kastast svo aftur út í loftið. Þannig gengur þetta fyrir sig aftur og aftur. Því má segja að lofttegundirnar virki eins og gróðurhús þar sem þær halda varmanum innan lofthjúps- ins svipað og loft og gler í gróður- húsi heldur varmanum inni þó að húsið sé ef til vill ekki hitað upp sérstaklega. Aukning gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti hækkar hita loft- hjúpsins þar sem fleiri agnir eru til þess að gleypa í sig geislana og endurkasta þeim. Þetta getur haft slæmar afleiðingar fyrir lífríki jarðar. Þó má ekki gleyma því að gróðurhúsaáhrif eru náttúrulegt fyrirbæri í lofthjúpi jarðar og ef þeirra nyti ekki við væri allt að 33° C kaldara á jörðinni. Meðalhiti jarðar væri þá allt að -18° C en ekki +15° C eins og nú er. Því leika gróðurhúsalofttegundir lykilhlut- verk í því hversu lífvænlegt er á jörðinni. Jón Már Halldórsson, líffræðingur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.