Fréttablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 1. desember 2006 5
Vestrið og austrið mætast í Þingholtsstræti 5 í Reykjavík
Engu hefur verið til sparað svo að gestum Domo líði sem best. Japanskur matur hefur orð á sér fyrir að vera fallegur auk þess að vera hreinasta
lostæti.
Mikið annríki hefur verið í eldhúsinu á Domo, þar sem japönsk matseld virðist falla
Íslendingum í geð.
Skelfiskur eins og stór hörpuskel, hráar rækjur og humar, hentar vel í sashimi.
Sósur
Ragnar segir að gott sé að breyta út
af vana með dýfusósum, en hér eru
uppskriftir að tveimur slíkum:
Sítrónu-chiliSóSa
4 msk. sojasósa
2 msk. sítrónusafi
2 msk. sweet chilisósa
2 msk. hunang
1 msk. saxaður ferskur kóríander
Blandið vel saman.
apríkóSu-graSlaukSSóSa
2 msk. apríkósumarmelaði
Safi úr 2 stk. lime
½ stk. rauður chili (fínt saxaður)
2 msk. hvítvínsedik
2 msk. sojasósa
2 msk. fiskisósa
1 msk. graslaukur (fínt saxað)
Salt og pipar eftir smekk.
Það þarf að huga að hverju smá-
atriði við japanska matargerð til að
ná fram æskilegu bragði.
heima hjá sér.“
Blandaður sashimi og sushi-platti
með tveim tegundum af dýfusósu
Aðferð: Sashimi er einn réttanna
sem boðið er upp á á Domo. Segir
Ragnar hann tilvalinn forrétt
vegna þess hversu léttur og holl-
ur hann er.
Þegar fiskur er valinn í sas-
himi skiptir ferskleiki hans meg-
inmáli að sögn Ragnars, þar sem
menn munu snæða hráefnið hrátt.
Nokkrar fisktegundir eru tilvald-
ar í sashimi, svo sem lax, túnfisk-
ur, lúða og barri. Skelfiskur, eins
og stór hörpuskel, hráar rækjur
og humar, eða reyktur og grafinn
fiskur, svo sem reyktur áll, graf-
inn lax eða karfi, er engu síðri.
Hráefnið er allt skorið niður í
½ cm þunnar og ca. 4-5 cm langar
sneiðar. Þessu er raðað fallega á
platta og skreytt með allskyns
kryddjurtum og laufum og borið
fram með súrsuðu engiferi,
wasabi (japönsk piparrót) og
góðri sojasósu. roald@frettabladid.is
Tékkneski
fjársjóðurinn
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐALÉTTÖL
Hinn heimsþekkti
Budweiser Budvar
er seldur til 52 landa
víðs vegar um heiminn.
Vinsældir hans eru
ekki síst að þakka
þeirri staðreynd
að hann er bruggaður
á einum stað og eingöngu
úr bestu fáanlegu hráefnum.
Hann er alltaf, alls staðar
jafn góður.