Fréttablaðið - 30.12.2006, Page 34
Þ
etta á rosalega vel við mig og
mér fannst þetta ofboðslega
gaman. Handritið er flott og
ég er með fína leikara á móti
mér. Þetta var heilmikið fjör
allt saman. Helvíti erfitt en
skemmtileg vinna. Það er gaman þegar
þetta fer svona saman, vinna og skemmt-
un,“ segir Þröstur um kvikmyndagerðina
sem var síður en svo dans á rósum.
„Myndin var að mestu leyti tekin við
Búrfellsvirkjun og Sultartanga og í
Skagafirði þannig að maður gat ekki
unnið neitt annað á meðan sem var mjög
gott. Það er fínt að vera einangraður úti á
landi, komast burt frá öllu og geta ein-
beitt sér að þessu. Það var góður kostur
við gerð Kaldrar slóðar. Við komumst
líka í ótrúlega flottar leikmyndir þarna
og það var frábært að fá að taka upp í
þessum virkjunum. Ég hafði aldrei komið
inn í þær áður og maður missir eiginlega
vatn fyrst þegar maður sér þetta. Þetta
eru ótrúlega magnaðar byggingar.“
Þröstur og félagar hans þurftu að harka
af sér í nístingskulda og roki í útitökum
úti á landi auk þess sem ýmis skakkaföll
gerðu þeim lífið leitt. Þröstur sjálfur
gerir þó lítið úr því öllu saman enda
þekktur hrakfallabálkur sem hefur lent í
ýmsu. „Þetta eru fastir liðir hjá mér. Ég
var ekki með neinn staðgengil eða
áhættuleikara og gerði allt sjálfur og
Laugardagur
» Sneisafullur helgarkafli í Fréttablaðinu frá blaðsíðu 34 til 49
Mikið fjör, kviðslit
og brotin tá
Þröstur Leó Gunnarsson
fer með aðalhlutverkið
í spennumyndinni Köld
slóð. Hann hefur látið til
sín taka í íslenskum kvik-
myndum af og til í gegnum
árið en Köld slóð er fyrsta
glæpamynd hans. Þórarinn
Þórarinsson ræddi við leik-
arann sem fer ekki leynt
með að hann kann vel við
sig á glæpaslóðum.
Hvernig skipuleggja
foreldrar þríburalífið
hjá sér? Rætt við ferna
þríburaforeldra. » 42
Namibía, Buenos Aires,
Rajasthan – hvert er snið-
ugast að fara í skammdeg-
inu? » 48
Stríðsátök hafa sett
sterkan svip á fréttir
ársins sem er að líða.
Fréttablaðið tekur
saman helstu atburði
ársins. » 38-40